Morgunblaðið - 18.02.2019, Qupperneq 6
6 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. FEBRÚAR 2019
María Rún Gunnlaugsdóttir úr FH
og Ísak Óli Traustason úr UMSS
sigruðu á Meistaramóti Íslands í
fjölþrautum innanhúss sem lauk um
helgina. Í kvennaflokki er innanhúss
keppt í fimmtarþraut þar sem María
sigraði með 3.927 stig. Irma Gunn-
arsdóttir úr Breiðabliki varð í öðru
sæti með 3.481 stig og Katla Rut Ró-
bertsdóttir Kluvers sem einnig
keppir fyrir Breiðablik varð í þriðja
sæti með 3.150 stig.
María Rún á best 3.940 stig og er
hún í þriðja sæti afrekalistans á Ís-
landi. Íslandsmetið á Helga Margrét
Þorsteinsdóttir og er það 4.298 stig.
María sigraði í fjórum greinum af
fimm. Hún hljóp 60 metra grinda-
hlaup á 8,76 sekúndum og 800 metra
á 2:24,04 mínútum. Hún stökk 1,66
metra í hástökki, 5,68 metra í lang-
stökki og kastaði kúlunni 11,65
metra.
Ísak Óli fékk 5.344 stig sem er
persónuleg bæting hjá honum. Þessi
árangur kemur honum upp fyrir
Svein Elías Elíasson og Þorstein
Ingvarsson á afrekalistanum og er
Ísak Óli nú í sjöunda sæti listans.
Ísak Óli sigraði í langstökki og 60
metra grindahlaupi. Hann bætti ár-
angur sinn í 60 metra hlaupi, stang-
arstökki og 1.000 metra hlaupi. Í
grindahlaupinu jafnaði hann sinn
besta árangur.
Ísak hljóp 60 metra á 7,10 sek-
úndum, 1.000 metra á 2:45,31 mínútu
og 60 metra grindahlaup á 8,26 sek-
úndum. Ísak stökk 1,82 metra í há-
stökki, 7,01 metra í langstökki og
4,25 metra í stangarstökki. Hann
kastaði kúlu 13,33 metra.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
3.927 stig María Rún Gunnlaugsdóttir sigraði í fimmtarþraut.
María og Ísak
sigruðu á MÍ
María sigraði í fjórum greinum
England
Bikarkeppnin, 16-liða úrslit:
Brighton – Derby ..................................... 2:1
Wimbledon – Millwall .............................. 0:1
Newport – Manchester City.................... 1:4
Bristol City – Wolves ............................... 0:1
Doncaster – Crystal Palace..................... 0:2
Swansea – Brentford ............................... 4:1
B-deild:
Sheffield United – Reading.................... 4:0
Jón Daði Böðvarsson lék seinni hálfleik-
inn fyrir Reading.
Aston Villa – WBA................................... 0:2
Birkir Bjarnason var ekki í leikmanna-
hópi Aston Villa.
Rotherham – Sheffield Wednesday........ 2:2
Bolton – Norwich...................................... 0:4
Ipswich – Stoke ........................................ 1:1
Preston – Nottingham Forest................. 0:0
Staðan:
Norwich 33 18 9 6 65:42 63
Sheffield Utd 33 18 7 8 58:34 61
Leeds 32 18 7 7 53:36 61
WBA 32 16 9 7 64:40 57
Middlesbro 32 14 12 6 36:24 54
Bristol City 31 15 8 8 40:30 53
Derby 31 14 9 8 43:36 51
Nottingham F. 33 11 14 8 46:38 47
Birmingham 32 11 13 8 49:40 46
Aston Villa 33 10 14 9 56:52 44
Preston 33 11 11 11 50:47 44
Hull 32 12 8 12 45:42 44
Swansea 32 12 8 12 42:39 44
Blackburn 33 11 10 12 43:50 43
Sheffield Wed. 32 10 11 11 36:47 41
Brentford 31 10 10 11 50:43 40
Stoke 33 9 13 11 34:41 40
QPR 31 11 6 14 39:47 39
Wigan 32 9 7 16 32:46 34
Millwall 31 7 10 14 34:45 31
Reading 33 6 11 16 34:49 29
Rotherham 33 5 14 14 33:53 29
Bolton 33 6 8 19 21:51 26
Ipswich 33 3 11 19 25:56 20
Bikarkeppni kvenna, 16-liða úrslit:
Reading – Birmingham .......................... 2:1
Rakel Hönnudóttir kom inn á sem vara-
maður á 81. mínútu hjá Reading og skoraði
sigurmark leiksins.
Þýskaland
Hertha Berlín – Werder Bremen .......... 1:1
Aron Jóhannsson hjá Bremen er frá
keppni vegna meiðsla.
Staða efstu liða:
Dortmund 21 15 5 1 54:23 50
Bayern Münch. 22 15 3 4 50:26 48
M’gladbach 22 13 4 5 42:22 43
RB Leipzig 22 12 5 5 41:19 41
Leverkusen 22 11 3 8 39:32 36
Wolfsburg 22 10 5 7 35:30 35
E.Frankfurt 22 9 7 6 41:28 34
Hoffenheim 22 8 9 5 44:32 33
Hertha Berlín 22 8 8 6 35:32 32
Werder Bremen 22 8 7 7 37:33 31
Mainz 22 7 6 9 23:36 27
Düsseldorf 22 7 4 11 25:41 25
Freiburg 22 5 9 8 29:37 24
Schalke 22 6 5 11 25:32 23
A-deild kvenna:
Bayern München – Wolfsburg ............... 4:2
Sara Björk Gunnarsdóttir lék allan leik-
inn fyrir Wolfsburg.
Freiburg – Leverkusen........................... 6:0
Sandra María Jessen lék fyrstu 62 mín-
úturnar fyrir Leverkusen.
Ítalía
Orobica – Roma ....................................... 2:3
Kristrún Rut Antonsdóttir lék fyrstu 65
mínúturnar fyrir Roma.
Frakkland
Mónakó – Nantes ..................................... 1:0
Kolbeinn Sigþórsson var ekki í leik-
mannahópi Nantes.
Sviss
Grasshoppers – Xamax........................... 0:1
Rúnar Már Sigurjónsson var ekki í leik-
mannahópi Grasshoppers.
Lengjubikar karla
A-deild, 2. riðill:
Fylkir – Þróttur R ................................... 1:1
Hákon Ingi Jónsson 72. – Sjálfsmark 20.
A-deild, 3. riðill:
KA – Valur................................................ 4:0
Guðjón Pétur Lýðsson 38. (víti), Ólafur Ar-
on Pétursson 78., Þorri Mar Þórisson 80.,
Torfi Tímoteus Gunnarsson 90. Rautt
spjald: Ólafur Karl Finsen (Val) 57., Kaj
Leo í Bartalsstovu (Val) 66.
A-deild, 4. riðill:
Breiðablik – Grótta ................................. 3:0
Alexander Helgi Sigurðarson 39., 76.,
Brynjólfur Darri Willumsson 72.
Rautt spjald: Halldór Árnason (Gróttu)
Lengjubikar kvenna
A-deild:
Breiðablik – Selfoss................................. 6:0
Hildur Antonsdóttir 38., Karólína Lea Vil-
hjálmsdóttir 41., Sólveig Jóhannesdóttir
Larsen 51., Alexandra Jóhannsdóttir 56.,
75., Ásta Eir Árnadóttir 81.
Valur – ÍBV .............................................. 7:1
Margrét Lára Viðarsdóttir 37., Hlín Ei-
ríksdóttir 48., 51., Guðrún Karítas Sigurð-
ardóttir 52., 90., Bergdís Fanney Einars-
dóttir 66., Dóra María Lárusdóttir 86. –
Sjálfsmark 5.
Þór/KA – Stjarnan .................................. 1:1
Margrét Árnadóttir 67. – Birna Jóhanns-
dóttir 41.
KNATTSPYRNA
KA gerði sér lítið fyrir og tók Ís-
landsmeistara Vals í kennslustund
þegar liðin mættust í A-deild
Lengjubikars karla á Akureyri um
helgina en leiknum lauk með 4:0-
sigri Akureyringa.
Guðjón Pétur Lýðsson kom sínum
mönnum á bragðið gegn sínum
gömlu liðsfélögum þegar hann kom
KA yfir með marki úr vítaspyrnu á
38. mínútu og staðan 1:0 í hálfleik.
Þeir Ólafur Karl Finsen og Kaj Leo í
Bartalsstovu, leikmenn Vals, fengu
báðir að líta rauða spjaldið með
stuttu millibili um miðjan seinni
hálfleikinn og Valsmenn því tveimur
mönnum færri það sem eftir lifði
leiks.
Það nýttu Akureyringar sér og
Ólafur Aron Pétursson og Þorri Mar
Þórisson skoruðu báðir hvor sitt
markið með stuttu millibili á 78. og
80. mínútu. Torfi Tímoteus Gunn-
arsson innsiglaði svo niðurlægingu
Íslandsmeistaranna með marki í
uppbótartíma og lokatölur því 4:0 í
Boganum á Akureyri.
Tvö mörk frá Alexander
Alexander Helgi Sigurðsson skor-
aði tvívegis þegar Breiðablik vann
3:0-sigur gegn Gróttu í Kórnum um
helgina en Alexander kom Blikum
yfir undir lok fyrri hálfleiks. Brynj-
ólfur Darri Willumsson bætti við
öðru marki Blika á 72. mínútu áður
en Alexander Helgi var aftur á ferð-
inni með sínu öðru marki á 76. mín-
útu og öruggur sigur Blika stað-
reynd.
Þá gerðu Fylkir og Þróttur 1:1-
jafntefli í Egilshöllinni þar sem Daði
Ólafsson, leikmaður Fylkis, varð
fyrir því óláni að skora sjálfsmark á
20. mínútu leiksins. Hákon Ingi
Jónsson jafnaði metin fyrir Fylkis-
menn á 72. mínútu en lengra komust
Árbæingar ekki og jafntefli því nið-
urstaðan.
Öruggt hjá Blikum og Val
Breiðablik og Valur unnu bæði
stórsigra í A-deild Lengjubikars
kvenna um helgina en Breiðablik
vann 6:0-sigur gegn Selfossi í Kórn-
um þar sem Alexandra Jóhanns-
dóttir skoraði tvívegis fyrir Blika og
þá skoruðu þær Hlín Eiríksdóttir og
Guðrún Karítas Sigurðardóttir tví-
vegis fyrir Val sem vann 7:1-sigur
gegn ÍBV í Egilshöllinni.
Þór/KA og Stjarnan gerðu svo
1:1-jafntefli fyrir norðan í Boganum
þar sem Birna Jóhannsdóttir kom
Stjörnunni yfir í fyrri hálfleik en
Margrét Árnadóttir jafnaði fyrir
Þór/KA um miðbik síðari hálfleiks
og þar við sat.
Ljósmynd/Þórir Tryggvason
Mark Guðjón Pétur Lýðsson kemur KA yfir gegn sínum gömlu liðsfélögum.
KA fór illa með Íslandsmeistarana
Hamidou Diallo, leikmaður Okla-
homa City Thunder, stal senunni á
stjörnuleikshelgi NBA-deildarinna
í körfuknattleik sem fram fór í
Charlotte í Bandaríkjunum um
helgina en Diallo bar sigur úr být-
um í troðslukeppninni vinsælu.
Diallo er nýliði í deildinni en
hann hafði betur eftir harða keppni
við Dennis Smith Jr., leikmann New
York Knicks. Diallo gerði sér lítið
fyrir og tróð yfir Shaquille O’Neial,
fyrrverandi leikmann Orlando Ma-
gic og Los Angeles Lakers, en Shaq
eins og hann er gjarnan kallaður
varð fjórum sinnum NBA-meistari.
Shaq er engin smásmíði en hann
er 216 sentímetrar á hæð og vegur
um 150.
Þá vann Joe Harris, leikmaður
Brooklyn Nets, óvæntan sigur í
þiggja stiga keppninni en hann
hafði betur gegn Stephen Curry,
leikmanni Golden State Warriors.
Jayson Tatum, leikmaður Boston
Celtics, bar sigur úr býtum gegn
Trae Young í hæfileikakeppninni.
Stjörnuleikurinn sjálfur fór svo
fram í nótt en nánar má lesa um
leikinn inn á mbl.is bjarnih@mbl.is
AFP
Á flugi Hamidou Diallo treður yfir gömlu kempuna Shaquille O’Neal í troðslukeppni stjörnuhelgarinnar.
Nýliðinn
tróð yfir
Ofurmennið