Morgunblaðið - 28.02.2019, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. FEBRÚAR 2019 3
Forsætisráðuneytið auglýsir
embætti seðlabankastjóra
laust til umsóknar
Forsætisráðherra skipar seðlabankastjóra til fimm ára í senn, sbr. 1. mgr. 23. gr. laga nr. 36/2001, um Seðlabanka
Íslands, með síðari breytingum. Aðeins er hægt að skipa sama mann seðlabankastjóra tvisvar sinnum.
Seðlabankastjóri skal fullnægja almennum starfsgengisskilyrðum skv. 6. gr. laga nr. 70/1996, um réttindi og
skyldur starfsmanna ríkisins.
Umsækjendur skulu hafa lokið háskólaprófi í hagfræði eða tengdum greinum og búa yfir víðtækri reynslu og
þekkingu á fjármálastarfsemi og efnahags- og peningamálum. Gerð er krafa um stjórnunarhæfileika og hæfni
í mannlegum samskiptum.
Við skipun í embættið mun forsætisráðherra, skv. 2. mgr. 23. gr. laga um Seðlabanka Íslands, skipa þriggja manna
nefnd er hefur það hlutverk að leggja mat á hæfni umsækjenda um embættið. Verður einn nefndarmaður
skipaður samkvæmt tilnefningu samstarfsnefndar háskólastigsins, einn samkvæmt tilnefningu bankaráðs
Seðlabanka Íslands og einn án tilnefningar og er hann formaður nefndarinnar.
Í umsókn um embættið skal greina frá nafni, kennitölu og heimilisfangi umsækjanda auk þess sem veita skal
ítarlegar upplýsingar um menntun viðkomandi, starfsferil og reynslu.
Um laun og önnur starfskjör fer eftir ákvæðum laga um launa- og starfskjör seðlabankastjóra, sbr. b-lið 28. gr.
laga um Seðlabanka Íslands.
Skipað verður í embættið frá og með 20. ágúst 2019.
Umsóknarfrestur er til og með 25. mars 2019. Vinsamlega sendið umsóknir og starfsferilskrár til forsætis-
ráðuneytisins, Stjórnarráðshúsinu við Lækjartorg, eða á netfang ráðuneytisins postur@for.is. Konur jafnt
sem karlar eru hvött til að sækja um stöðuna. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um skipun í
embættið hefur verið tekin.
Nánari upplýsingar veitir Ragnhildur Arnljótsdóttir
ráðuneytisstjóri forsætisráðuneytisins.
Í forsætisráðuneytinu, 20. febrúar 2019.
Fjárfestingastjóri
Upplýsingar og umsókn
capacent.com/s/12966
Menntunar- og hæfniskröfur :
Háskólapróf sem nýtist í starfi
Reynsla af greiningu fjárfestingakosta og gerð kynninga
Reynsla af fyrirtækjarekstri og stjórnun
Mjög góðir samskiptahæfileikar
Sjálfstæði og frumkvæði í starfi
Mjög gott vald á íslensku í ræðu og riti. Góð enskukunnátta
skilyrði.
Umsóknarfrestur til og með
11. mars
Ábyrgðar- og starfsvið :
Greining á fjárfestingakostum og viðskiptatækifærum
Gerð kynninga á fjárfestingartækifærum
Seta í stjórnum félaga sem sjóðurinn fjárfestir í
Þátttaka í stefnumótun fyrirtækja og eftirfylgni
Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins leitar að öflugum einstaklingi til starfa. Viðkomandi mun taka þátt í uppbyggingu fyrirtækja í
eignasafni, miðla af þekkingu og reynslu ásamt því að gæta hagsmuna sjóðsins.
Æskilegt er að viðkomandi hafi innsýn í umhverfi nýsköpunar- og sprotafyrirtækja.
Capacent – leiðir til árangurs
Nýsköpunarsjóður
atvinnulífsins er
fjárfestingarsjóður sem
tekur virkan þátt í þróun og
vexti íslensks atvinnulífs
með því að fjárfesta í
vænlegum nýsköpunar- og
sprotafyrirtækjum.
·
·
·
·
·
·
·
·
·
·