Morgunblaðið - 28.03.2019, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 28.03.2019, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. MARS 2019 5 Landsnet | Gylfaflöt 9 | 112 Reykjavík | Sími 563 9300 | landsnet@landsnet.is | www.landsnet.is MÁ BJÓÐA ÞÉR RAFMAGNAÐ SAMBAND VIÐ FRAMTÍÐINA? Við leitum að metnaðarfullum og snjöllum einstaklingum í sérfræðingateymin okkar. Um er að ræða tvö fjölbreytt og spennandi störf hjá okkur. Umsóknarfrestur er til og með 1. apríl 2019. Nánari upplýsingar veitir Valka Jónsdóttir mannauðsstjóri, sími: 563-9300, netfang: mannaudur@landsnet.is. Umsækjendur eru beðnir um að sækja um starfið á heimasíðu Landsnets, www.landsnet.is. Umsóknum þarf að fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Við vinnum fyrir þig Við erum þjónustufyrirtæki – við vinnum fyrir þig í takt við samfélagið og höfum sett okkur það markmið að tryggja örugga afhendingu á raforku til framtíðar. Við viljum vera eftirsóknarverður vinnustaður þar sem umhyggja og öryggi er haft í hávegum. Þannig sköpum við góðan vinnustað með spennandi verkefnum, með gildin okkar – samvinnu, ábyrgð og virðingu – að leiðarljósi. Sérfræðingur í stafrænni þróun raforkuflutningskerfis Starfið felst í áframhaldandi þróun og innleiðingu á stafrænum lausnum fyrir rekstur flutningskerfis raforku. Stafrænar lausnir raforkukerfisins innifela meðal annars stjórn- og varnarbúnað tengivirkja, ýmsan mælabúnað og snjallnetslausnir. Menntunar- og hæfniskröfur • Rafmagnsverkfræðingur, tölvunarfræðingur eða rafmagnstæknifræðingur. • Brennandi áhugi og þekking á sjálfvirknivæðingu og snjallnetslausnum. • Góð þekking á raforkukerfinu. • Þekking á stjórn- og varnarbúnaði fyrir raforkukerfi og samþættingu búnaðar er kostur. • Skipuleg og sjálfstæð vinnubrögð og framúrskarandi umbótahugsun. • Hæfni í samskiptum og jákvæðni. Sérfræðingur í stjórn- og varnarbúnaði Starfið felur í sér rekstur á stjórn- og varnarbúnaði ásamt öðrum stafrænum búnaði í tengivirkjum Landsnets svo sem að annast prófanir, breytingar og uppfærslur. Bilanagreining og undirbúningur verkefna er einnig hluti af spennandi starfi við að hámarka áreiðanleika flutningskerfisins með nútíma tækni. Menntunar- og hæfniskröfur • Rafmagnsverkfræðingur eða rafmagnstæknifræðingur. • Þekking á stjórn- og varnarbúnaði fyrir raforkukerfi. • Öryggisvitund og umbótahugsun. • Greiningafærni. • Sjálfstæð og öguð vinnubrögð. • Hæfni í samskiptum og jákvæðni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.