Morgunblaðið - 28.03.2019, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. MARS 2019 5
Landsnet | Gylfaflöt 9 | 112 Reykjavík | Sími 563 9300 | landsnet@landsnet.is | www.landsnet.is
MÁ BJÓÐA ÞÉR RAFMAGNAÐ SAMBAND VIÐ FRAMTÍÐINA?
Við leitum að metnaðarfullum og snjöllum einstaklingum í sérfræðingateymin okkar. Um er að ræða tvö fjölbreytt og
spennandi störf hjá okkur.
Umsóknarfrestur er til og með 1. apríl 2019.
Nánari upplýsingar veitir Valka Jónsdóttir mannauðsstjóri, sími: 563-9300, netfang:
mannaudur@landsnet.is. Umsækjendur eru beðnir um að sækja um starfið á heimasíðu
Landsnets, www.landsnet.is. Umsóknum þarf að fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf
þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.
Við vinnum fyrir þig
Við erum þjónustufyrirtæki – við vinnum fyrir þig í takt við samfélagið og höfum sett okkur það
markmið að tryggja örugga afhendingu á raforku til framtíðar. Við viljum vera eftirsóknarverður
vinnustaður þar sem umhyggja og öryggi er haft í hávegum. Þannig sköpum við góðan vinnustað
með spennandi verkefnum, með gildin okkar – samvinnu, ábyrgð og virðingu – að leiðarljósi.
Sérfræðingur í stafrænni þróun
raforkuflutningskerfis
Starfið felst í áframhaldandi þróun og innleiðingu á stafrænum
lausnum fyrir rekstur flutningskerfis raforku. Stafrænar lausnir
raforkukerfisins innifela meðal annars stjórn- og varnarbúnað
tengivirkja, ýmsan mælabúnað og snjallnetslausnir.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Rafmagnsverkfræðingur, tölvunarfræðingur eða rafmagnstæknifræðingur.
• Brennandi áhugi og þekking á sjálfvirknivæðingu og snjallnetslausnum.
• Góð þekking á raforkukerfinu.
• Þekking á stjórn- og varnarbúnaði fyrir raforkukerfi og samþættingu
búnaðar er kostur.
• Skipuleg og sjálfstæð vinnubrögð og framúrskarandi umbótahugsun.
• Hæfni í samskiptum og jákvæðni.
Sérfræðingur í stjórn- og varnarbúnaði
Starfið felur í sér rekstur á stjórn- og varnarbúnaði ásamt öðrum
stafrænum búnaði í tengivirkjum Landsnets svo sem að annast
prófanir, breytingar og uppfærslur. Bilanagreining og undirbúningur
verkefna er einnig hluti af spennandi starfi við að hámarka
áreiðanleika flutningskerfisins með nútíma tækni.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Rafmagnsverkfræðingur eða rafmagnstæknifræðingur.
• Þekking á stjórn- og varnarbúnaði fyrir raforkukerfi.
• Öryggisvitund og umbótahugsun.
• Greiningafærni.
• Sjálfstæð og öguð vinnubrögð.
• Hæfni í samskiptum og jákvæðni.