Morgunblaðið - 30.04.2019, Side 6
Fyrir glysgjarna gæti þetta verið
bíllinn. Þótt hann kalli á ríkidæmi
og kosti formúu verður hann hins
vegar aldrei til aksturs fær.
Hvers vegna ekki? Jú hér er á
ferðinni Ford Escort í hlutföll-
unum 1⁄25, smíðaður úr gulli, silfri
og demöntum. Höfundurinn er
enski gullsmiðurinn – og bens-
ínhausinn – Russell Lord. Um
dagana hefur hann átt hvorki
fleiri né færri en 55 eintök í fullri
stærð af Ford Escort-fjöl-
skyldubílnum.
Hann flýtti sér ekki við smíði
undraverða skartbílsins. Við hann
hefur hann dundað í 25 ár og var-
ið þúsundum klukkustunda í þá
fínlegu vinnu.
Byrðingurinn er úr silfri og í
bílnum er að finna bremsur og
stuðara úr gulli, og hjól úr 18 ka-
rata gulli. Framgrillið er úr 18
karata hvítagulli, aðalljósin úr
demöntum og stefnuljósin úr app-
elsínugulum safír. Bremsuljósin
að aftan eru svo úr roðasteini, svo
nokkuð sé nefnt.
„Þetta hefur verið áhugamál
sem ég hef dundað við öðru
hverju. Fyrir þremur árum ákvað
ég svo að klára dæmið. Ég þekki
bílinn í þaula, stykki fyrir stykki.
Ég studdist ekki við teikningar
heldur smíðaði hann eftir höfðinu,
bita fyrir bita,“ segir Lord, sem
er frá Essex í Englandi.
Við smíðina hafði hann þó í
huga Escort Mk2-rallbíl sem
finnski heimsmeistarinn Ari Vat-
anen ók á áttunda aratug nýlið-
innar aldar. Lord segir að efnið
eitt og sér sem í bílinn fór hafi
kostað sem nemur 90.000 evrum,
eða um 12 milljónum íslenskra
króna. Bíllinn verður boðinn upp
á uppboðsvefnum www.themar-
ket.co.uk næstkomandi fimmtu-
dag, 2. maí. Andvirðið rennur til
líknarmála.
agas@mbl.is
Klæddur gulli, silfri og demöntum
Skartbíll Russells Lords sem verður boðinn upp er einn tuttugasti og fimmti af fullri stærð Ford Escort.
6 | MORGUNBLAÐIÐ
Einn fremsti bíllinn í núverandi fólksbílalínu Honda er
Civic Type R en nú hefur eintak af honum verið smíðað
í fullri stærð úr legókubbum.
Til uppátækisins var efnt í tilefni svonefnds Lego
Masters-þáttar sem hóf göngu sína á áströlsku sjón-
varpsstöðinni Channel Nine í fyrradag, sunnudag. Þar
leiða saman hesta – eða öllu heldur legókubba – sína í
ákafri keppni alls átta pör af mönnum sem lagt hafa
fyrir sig smíði hluta úr legókubbum.
Ástralskur sérlega vottaður legósmiður að nafni
Ryan McNaught smíðaði Civic Type R-bílinn og verður
meðal dómara í sjálfri sjónvarpskeppninni. Til smíð-
innar þurfti rúmlega 320.000 kubba og tók sköpun bíls-
ins 1.300 klukkustundir þegar talinn er tími allra
þeirra níu manna sem komu að smíðinni. Ástríðufullir
lögðu þeir kubb fyrir kubb með berum höndum frá
gólfi og upp.
agas@mbl.is
Til smíði hinnar
nákvæmu eftirlíkingar
af Hondunni fóru rúm-
lega 320.000 kubbar.
Það er vandasamt að líkja sem
nákæmast eftir hjólum Honda
Civic R með legókubbum.
Honda í fullri stærð úr legókubbum
Með litlum kassabíl að nafni Proace
City ætlar Toyota að gera strand-
högg á markaði fyrir létta atvinnu-
bíla, þar sem eitilhörð samkeppni
ríkir. Múrbrjótur þessi kemur ekki
á götuna fyrr en á næsta ári, 2020,
en hann er minni en stóribróðir
með nafninu Proace.
Proace City verður frumsýndur á
atvinnubílasýningu í Birmingham á
Englandi, en Toyota hefur látið frá
sér nokkrar myndir af bílnum. Þar
kemur í ljós að hér er í raun á ferð-
inni fjórða afkvæmið í flokki léttra
atvinnubíla PSA-samsteypunnar,
en þar eru fyrir Peugeot Partner,
Citroën Berlingo og Opel Combo.
Eins og stallsystkinin þrjú verður
Proace City í boði með margs konar
útfærslum í farangurs- og farþega-
rými og mismunandi vélum. Hann
verður ýmist 4,4 og 4,7 metra, með
þremur sætum frammi í og ýmist
lokað vörurými eða með gluggum.
Lengri bílinn má einnig fá sem smá-
rútu til farþegaflutninga, Proace
City Verso, með sætum fyrir fimm
eða sjö. Vörurýmið verður frá 3,3
til 4,3 rúmmetra og þar má flytja
tvö svonefnd Evrópubretti.
Bíllinn býðst annaðhvort með
bensínvél eða dísil, að afli frá 75 til
130 hestöfl. Velja má milli fimm eða
sex hraða handskiptingu eða átta
hraða sjálfskiptingu.
agas@mbl.is Toyota Proace City ætti m.a. að nýtast iðnaðarmönnum vel. Hann mun fást í 4,4 og 4,7 metra útfærslum.
Toyota spanar inn í nýjan geira með Proace City
Þriðja sæti Kia þykir endurspegla
háa einkunn sem eigendur gáfu
bílnum fyrir þjónustuviðhald, áreið-
anleika, upplýsingakerfi og nytsemi.
Var ánægjustuðull kóreska bíl-
smiðsins 91,54%.
Niðurstaðan fyrir tíu efstu bíla-
merkin varð sem hér segir:
1. Lexus 92,06%
2. Alfa Romeo 92,04%
3. Kia 91,54%
4. Mazda 91,51%
5. Skoda 91,36%
6. Subaru 91,09%
7. Honda 90,97%
8. Suzuki 90,75%
9. Jaguar 90,72%
10. Toyota 90,54%
Í síðustu viku voru birtar niður-
stöður Driver Power yfir ágæti
nýrra bíla og hreppti Toyota Prius
toppsæti og var útnefndur bestu bíl-
kaupin í dag.
agas@mbl.is
Sex af 10 bílamerkjum sem best
komu út úr svonefndri Driver Pow-
er ánægjukönnun voru japönsk. Í
efsta sæti varð Lexus sem þótti
áreiðanlegastur allra bíla og af-
burða hannaður innandyra.
Um var að ræða stærstu mælingu
á ánægju bíleigenda í Bretlandi. Í
öðru sæti varð Alfa Romeo og í því
þriðja Kia.
Í merkjakönnuninni tóku mörg
þúsund lesendur vikuritsins Auto
Express þátt og gáfu bílum sínum
einkunn. Ánægjustuðull Lexus
mældist 92,06% og tilgreindu eig-
endur sérstaklega óbilandi ending-
artraust, smíðisgæði og stílfegurð.
Varð Lexus-merkið einnig efst í
þessari könnun 2017 og 2018.
Alfa Romeo fylgdi fast á eftir með
92,04% einkunn og munaði því nær
engu. Fékk ítalski bílsmiðurinn
hæstu einkunn fyrir vél og gírkassa,
aksturseiginleika og meðfærileika.
Sex japanskir í hópi
tíu bestu bílamerkja
Lexus hlaut toppsætið þriðja árið í röð. Hér er Lexus IS300h á ferð.
Mitsubishi hinn japanski mætti til
nýafstaðinnar bílasýningar í
Sjanghæ í Kína með nýjan hug-
myndabíl, sem sagður er rafbíll í
þróun.
Ámóta bíl birtist Mitsubishi með á
bílasýningunni í Genf í mars sl., en
þar var hann kynntur sem „Engel-
berg Tourer“-þróunarbíllinn.
Þar sem Kínverjar flestir þekkja
lítið eða ekkert til skíðabæjarins í
Sviss hafði bíllinn verið lakkaður
upp á nýtt í mun dekkri lit en í Genf,
ásamt því sem nafninu hefur verið
breytt í „e-Yi“.
Sú skýring hefur verið gefin, að
líta megi svo á að e-ið í heitinu
standi fyrir Explore, Experience og
Engage, og i sé viðbót er vísi til raf-
magns. Þá var sagt að Yi í nafninu
væri stytting á kínverska leturtákn-
inu sem þýðir kröftugur, harð-
ger og gangviss, og tákninu sem
stendur fyrir þokka.
Rætt er um bíl þennan sem nýja
kynslóð af Outlander-tvinnbílnum,
sem senn er von á. Í aflrásinni er 2,4
lítra bensínvél og tveir rafmótorar.
Um getu rafgeymisins hefur ekkert
verið látið uppi en Mitsubishi gefur
í skyn að á honum einum dragi bíll-
inn 70 kílómetra, samkvæmt
WLTP-staðlinum. Heildardrægi
tvinnaflrásarinnar sé aftur á móti
700 km.
agas@mbl.is
Mitsubishi e-Yi er sagður vera næsta útgáfa af Outlander-tvinnbílnum.
Nýr litur og nýtt nafn