Morgunblaðið - 30.04.2019, Síða 9

Morgunblaðið - 30.04.2019, Síða 9
ur á viðbragði og lipurð í venjuleg- um akstri. Þó UX taki vel af stað þá er hann alls engin raketta, enda er það ekki í anda Lexus að búa til bíla sem aka dónalega hratt: upplif- unin snýst ekki um að spana eins og villingur, heldur að njóta ferðalags- ins og mæta á áfangastað í full- komnu andlegu jafnvægi. Mætti kannski segja: „For relax- ing times, make it Lexus time.“ Að vera góðu vanur Erfitt er að finna marga nei- kvæða hluti við Lexus UX. Við- mótið í leiðsögukerfi Lexus er ekki allra, og alveg kominn tími á að hressa upp á grafíkina á skjánum – samt er upplýsingagjöfin prýðileg og erfitt að villast þegar tölvan vís- ar veginn. Útlit Lexus-bifreiðanna er heldur ekki fyrir alla og sumum gæti þótt grillið orðið að fullmiklu gini, eða full mikill svipur orðinn með Lexus og Toyota (margt í hönnun UX minnir t.d. á C-HR jepplinginn), en öðrum á eftir að þykja UX-inn ómótstæðilegur á að líta og í góðu jafnvægi á milli glæsi- leika, sportlegs útlits og japanskrar hógværðar. Er það helst agn- arsmátt skottið á tvinn-gerðinni sem gæti komið flatt upp á kaup- endur enda UX enginn smábíll en gæti seint rúmað farangur fjögurra manna fjölskyldu með öll sæti í uppréttri stöðu. Var pláss fyrir á að giska þrjár flugfreyjutöskur. Að því sögðu þá kemur UX feiki- sterkur inn í flokki minni lúxus- jepplinga og gefur þýsku eð- almerkjunum ekkert eftir. Þeir sem vita hvað þeir vilja munu ekki verða fyrir vonbrigðum. Einu ætti samt að vara lesendur við, því það þykir gilda bæði um Lexus-bifreiðar og Suntory-viskí, að þegar fólk hefur á annað borð fengið að smakka þá getur það ekki hugsað sér að skipta yfir í aðra tegund. tt að meta Eitt og annað við útlit aftur- hlutans minnir töluvert á „frænda“ UX-ins Toyota C-HR. Frágangur að innan er í sérflokki. Virðist hvergi skeika millimeter. MORGUNBLAÐIÐ | 9 Qiantu K50 heitir tiltölulega smekkleg sköpun sem dúkkaði upp á bílasýningunni í New York, sem er nýlokið. Þar er á ferðinni kínverskur ofursportbíll frá fyrir- tæki í Kaliforníu að nafni Mullen sem er óskrifað blað í bílsmíði. Mullen kom að vísu við sögu rafbílsins Coda á sínum tíma en aldrei varð neitt úr framleiðslu hans. Og ekkert hefur heyrst um hann síðar. Þess vegna eru áhöld um hvort Qiantu K50 sé kínversk- ur bíl, eins og látið er í veðri vaka, eða hvort hann sé kaliforn- íukínverskur. Ætlunin er að smíða Qiantu K50 í Kaliforníu og stefnt er að því að hann komi á götuna á næsta ári, 2020. Yfirbyggingin verður úr koltrefjum en svo vekur það at- hygli að af sportbíl vera skuli hann aðeins vera með 402 hesta aflrás. Orkunni deila tveir rafmót- orar til hjólanna fjögurra. Bíllinn þarf rúmar fjórar sek- úndur til að ná 100 km ferð úr kyrrstöðu og þykir það ekki bein- línis til að flagga. Hármarkshrað- inn ekki heldur en hann er 200 km/klst. Rafgeymirinn er 78 kíló- vattstunda sem þýðir tæplega 400 km drægi á fullri rafhleðslu. Undirvagn Qiantu K50 er úr áli og bíllinn sagður hlaðinn raf- eindabúnaði til að liðsinna öku- manni við störfin. Þegar mál og vog eru skoðuð kemur fullvaxinn sportbíll í ljós; 4.634 millimetrar að lengd, 2.069 mm á breidd og 1.253 mm á hæð- ina. Öxulbilið er 2.650 mm og samtals vegur bíllinn 1.960 kíló. Stóra spurningin er hvort heyr- ast eigi eitthvað meira af þessum bíl eða hvort hann fari í glatkist- una eins og svo margir hug- myndabílar sem hafa lofað góðu en áformin síðan aldrei ræst. agas@mbl.is Dulafullur Kínverji í New York Morgunblaðið/ Quinatu K50 á stalli sínum. Er hann kínverskur eða kaliforníukínverskur? Rafbílar á bifreiðaskrám í Evrópu fóru í fyrsta sinn yfir 100.000 eintök í marsmánuði. Af heildinni voru dís- ilbílar 31% nýskráninganna og hefur hlutfallið ekki verið lægra frá í sept- ember árið 2.000. Í heildina drógust nýskráningar bíla á Evrópumarkaði saman um 3,6% í mars. Var það sjöundi mán- uður samdráttar í röð. Fyrstu þrjá mánuðina voru 4,13 milljónir bíla nýskráðar sem er 3,2% samdráttur frá sama tíma í fyrra. Áframhaldandi pólitísk og efna- hagsleg óvissa, meðal annars vegna Brexit, og óvissu um aðgengi dís- ilbíla að borgum skýrir samdráttinn. Í mars varð samdráttur á 19 mörkuðum af 27 í Evrópulöndum, en þar á meðal eru tíu stærstu mark- aðslöndin í álfunni. Þróunin er meira áberandi fyrir ársfjórðunginn því þá jukust nýskráningar í ein- ungis sex löndum. Góðu fréttirnar eru hins vegar þær, að rafvæðing bílaflotans heldur áfram af þrótti og var það sérlega áberandi í bílasölunni í mars. Fóru þá nýskráningar allra útgáfa raf- drifinna bíla í fyrsta sinn yfir hundr- aðþúsund og námu 125.400 eintök- um. Aukningin varð 31%, aðallega vegna kröftugrar fjölgunar ný- skráninga í Þýskalandi, Noregi, Spáni og Hollandi. Hreinir rafbílar og tengiltvinnbílar voru uppistaða sölunnar, eða helmingur hennar. agas@mbl.is Í fyrsta sinn yfir 100.000 rafbílar á skrá í Evrópu Morgunblaðið/ Tesla er öflugt fyrirtæki í smíði rafbíla. Hér er Tesla Roadstear á ferð. Franska bílablaðið Auto Plus skýrði frá því í gær, mánudag, að franska bílasamsteypan PSA væri við það að hætta sölu og smíði þriggja Opel-módela. Þessu heldur og Reuters- fréttastofan fram og segir að Phil- ippe de Rovira, fjármálastjóri PSA, hafi á símafundi með fjármála- greinendum nýverið gefið ótvírætt til kynna að hætt yrði smíði þriggja módela sem framleidd væru í smiðj- um Opel í Þýskalandi. Í kjölfar erfiðs fyrsta ársþriðj- ungs í rekstrinum teldi PSA þörf fyrir „vorhreingerningar“ í starf- seminni, að sögn Reuters. Þau mód- el sem helst væru nefnd sem dauða- dæmd væru smábílarnir Adam og Karl og blæjubílinn Cascada. agas@mbl.is Þrjú módel Opel undir fallöxina Morgunblaðið/ Opel Adam er einn þriggja bíla sem hætt verður að smíða. » Fjögurra strokka 2,0 l línu- vél, bensín/rafmagn. Einn- ig fáanlegur í bensínútgáfu. » 181 hö / 190 Nm » CVT-sjálfskipting » 5,9l/100 km í blönduðum akstri » 0-100 km/klst á 8,7 sek. » Hámarkshr. 177 km/klst. » E-Four aldrif. Einnig fáan- legur framhjóladrifinn » P225/50HR18 dekk » Eigin þyngd: 1.635 kg » 484 lítra farangursrými » Sótspor: 140 g/km » Verð frá 6.370 þús. kr. Lexus UX 250h

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.