Rúsínur - 17.11.1923, Síða 2
2
RÚSÍNUK
Ef þú ert spruttsali, hefir þú aldrei
frið fyrir Sherlock Holmes hinum ís-
lenzka.
Ef þú ert geðveikralæknir, dregur
þú dám af þínum sjúklingum.
Sértu apótekari, ertu saklaus sekt-
aður um sprúttsölu eða kallaður Fír-
tommusen.
Ef þú ert hvítliði, þá óskar þú í
huga þínum, að hinir gullnu dagar
byltingarinnar renni sem fyrst upp
aftur með 20 kall og nóg sprútt.
Svona gæti maður haldið áfram að
telja mein og þjáningar meðbræðra
vorra í það endalausa.
Þess vegna og að eins þess vegna
er þetta blað — þetta mannúðarfyrir-
tæki — stofnað. Ætlar það að létta
sorgir allra þessara mæðumanna, með
þvi að láta þá hoppa af hlátri tvisvar
í viku fyrir 20 aura.
Þess vegna skorum vér á yður,
heiðraði borgari, að efla íslenskan iðn-
að með því að kaupa íslenzkar rúsínur.
ReykjaYÍkurflaut.
Fjallkonan i umsátursástandi.
Sagt er að hinn íslenzki þefvísi
Sherlock Holmes hafi á ný sagt Bakk-
usi strið á hendur. Síðasta orustan
átti sér stað á kaffihúsinu „Fjallkon-
an“. Gekk hinn þefvísi þar vel fram
að vanda, — ásamt nokkrum ungum
vinum sínum.
Vitum vér ekki, hvort hann óð inn
um bakdyrnar, en inn fór hann.
Óskar.
Hvitir hrafnar fljúga út.
Morðmálin ?
Blóð finst á Hafnargarðinnm.
Fyrir nokkru fanst frosinn blóð-
pollur á Hafnargarðinum. Lögreglan
var kölluð. Við nánari rannsóknir
ýmsra efnafræðinga kom í ljós, að
blóðið stafaði af pokandarlagabroti.
Verð á brennivíni hækkar.
Félag íslenzkra sprúttsala hefir ekki
alls fyrir löngu hækkað verð á spíritus-
blöndu úr 5 krónum upp í 6 krónur
hálfflöskuna.
Fastur viðskiftavinur.
Tízkan ( Reyk]avík.
Oftar sjá eg ekki vildi
unga menn á spraðfötum
sem ætla að kafna í tískutildri
tepruskap og dansleikjum.
Og sem hafa aðeins gildi
áþekt fölskum peningum.
Þegar tízkan gekk í gildi
glaðnaði yfir stúlkunum.
Sérhver trítla á tánum vildi
með tappa nið’rúr iljunum,
það er annnars mesta mildi
meðan þær tolla á fótunum.
Fáránlegum skrýddar skrúða
skunda þær eftir götunum,
eykst við rannsókn allra búða
ofstækið í búningum.
Loks hafa sumar lendapúða
laglegann á mölunum.
Hallfreður vandratðaskáld.