Bæjarblaðið - 28.06.1952, Side 3
BÆJARBLAÐIÐ
3
Luagurdagur 28. júní 1952
Dr. ARNI ARNASON:
Landsmálaíélögin og æskan
Pólitík er grískt orð og þýðir
málefni bæjarfélagsins eða rík-
isins, þ. e. landsmál eða þjóð-
mál. Þjóðmálin eru margvísleg
og stefnurnar margar, en þeim
má skipta í tvo aðaíflokka.
Annars vegar er samband ein-
staklinganna við þjóðfélags-
heildina, afstaða hvers marms
til ríkisins, til rikisvaldsins.
Hér er um að ræða það, sem
nefnt er einræði og þjóðræði
eða lýðræði í ýmsum myndum.
Hins vegar eru svo þau mál.
sem varða afkomu og allan
hag þegnanna í þjóðfélaginu,
andlegan og efnalegan.
Því verður ekki neitað, að
fjárhagur og afkoma alls al-
mennings eru mikilvægur þátt-
ur i hamingjusömu þjóðlífi, i
friði og allri farsæld, og þess
vegna er það hiikilvægt, hvern-
ig efnahagsmálum þjóðar og
einstaklinga er stjórnað. Það er
því ekki furða, þótt landsmálin
beinist að þessu efni og flokk-
arnir athugi, ræði og deili um
þá háttu og þær aðferðir, sem
þeir telja beztar og vænlegast-
ar til góðs árangurs.
Það er ekki ætlunin, að fara
að ræða hér um kosti og lesti
hinna einstöku flokka og bera
þá saman, sem þó er vitanlega
merkilegt mál, heldur ■ skal
vikið að sameiginlegum ein-
kennum og göllum á þjóðmála-
lífinu og nokkrum skerjum,
sem almenningur verður að
reyna að sneiða hjá.
Það liggur í hlutarins eðli,
að flokkarnir, sem hafa ólíkar
stefnur, eru ósammála. Það
þykir hverjum sinn fugl fag-
ur. Hver flokkur er sannfærð-
ur, um að' skoðun hans og
stefna sé rétt, — hin eina rétta.
En hér ber þess að gæta, að i
öllum hinum mörgu og marg-
háttuðu atvinnu- og efnahags-
málum og þjóðhagsmálum yf-
irleitt er engin ein ákveðin
stefna eða aðferð til, sem sé
algild, sönnuð og almennt við-
urkennd. Væri svo, þá þyrfti
ekki að bollaleggja, rannsaka
og deila. Ein stefnan hefir
þetta til síns ágætis og önnur
hitt. Þar á ofan bætist svo það,
að framkvæmdirnar og árang
ur þeirra fara eftir mönnunum,
sem hafa stjórn og framkvæmd
á hendi hverju sinni. Þeir
stjórnendur opinberra fram-
kvæmda og starfsmenn eru
margir, sem leysa starf sitt svo
vel af hendi, sem bezt verður
á kosið, en á hinn bóginn er
framkvæmd annarra til tjóns
fyrir hag og afkomu því frem-
ur sem sú vill oft verða raun-
in á, að hver flokkur virðist
treysta bezt mönnum af sínu
sauðahúsi og lætur þá oft sitja
fyrir. Flokkurinn verður því
meiri og minni hagsmunasam-
tök að þessu leyti, en það á
landsmálaflokkur ekki að vera
samkvæmt eðli sínu og til-
gangi.
Það er hverjum manrni skylt
og nauðsynlegt, að reyna að
athuga öll mál og málavöxtu
sjálfur eftir beztu föngum og
mynda sér síðan sína ákveðnu,
rökstuddu skoðun. Þetta er að
vísu oítast erfitt. Það er hvort-
tveggja, að erfitt ar að_ afla sér
réttrar og fullrar vitneskju í
mörgum málum og svo er hitt,
að það eru öfÍ að verki, sem
beinlínis. spilla fyrir réttri at-
hugun og heilbrigðri dóm-
greind almennings í landsmál-
um. Þessi öfl eru svo nefnd
múgáhrif, en þó einkum áróð-
urinn.
Múgáhrif eða fjöldaáhrif
eru ákveðin áhrif, sem fjöl
menni hefir á hugsun manna
og tilfinningar. Það er reynsla,
að í fjölmenni hugsa menn
ög finna til nokkuð á annan
veg en þegar þeir eru einir og
haga sér oft öðruvísi. Svo er
að sjá, sem hver vérði fyrir
áhrifum af öðrum. Tilfinning-
arnar magnast og samstillast
og athafnir verða oft ofsafengn
ari og vanhugsaðri. Margir
kannast kannast við þann ofsa,
sem getur gripið mannsöfnuð,
og hrifning eða æsing getur
leitt til athafna, $em hver ein-
stakur ekki myndi framkvæma,
væri hann einn sér og sjálfráð-
ur. Sagt er, að Sólon, hinn forni
gríski spekingur, hafi sagt við
Aþenumenn: „Þegar ég tala við
hvern einstakan yðar, þá eruð
þér vitrir, en þegar ég tala við
yður alla í senn, þá eruð þér
heimskir.“ .
Áróður munu flestir kann-
ast við að nafninvi til, enda er
hans oft getið, bæði í sambandi
við innlend og álþjóðamálefni.
Prófessor Símon Jóh. Ágústs-
son skýrgreinir áróður þannig:
„Hann er tilraun til að hafa
áhrif á skoðanir manna og at-
hafinir, einkum félagslegar skoð
anir og athafnir, á þann hátt,
að menn aðhyllist skoðanir án
fullgildra raka og sannana eða
fremji athafnirnar án þess að
gera sér yerulega grein fyrir.
því, hvers vegna þeir fremja
þær.“ Áróðurinn er notaður í
ýmsum tilgangi, stundum góð-
um og stundum illum. Áróð-
ursmenn beita honum til þess
að afla skoðunum sinum fylgis
og afla sér fylgis manna, til
þess að efla flokk sinn, staþpa
stálinu i fylgismennina og
tryggja sér fylgi þeirra. En
hver sem tilgangurinn er, þá er
áróður varasamt tæki, sem verð
ur að beita varlega og aðeins
um stundarsakir. Hann mið-
ar að því að sljóvga og tefja
sjálfstæða hugsun og athugun
og heilbrigða dómgreind.
Það er alltítt, að þeir, sem
eru sömu skoðunar í landsmál-
um og fylla sama stjórnmála-
flokk, bindist samtökum og
stofni með sér landsmálafélag.
Þetta getur verið þarflegt, ef
rétt er með farið. Slíkur félags-
skapur getur verið til þess gagn-
legur, að veita félagsmönnum
fræðslu um menn og málefni,
skoðanir og atburði, og þar gefst
tækifæri til þess að ræða málin.
Hins vegar er hætt við, að um-
ræðurnar verði einhliða og
jafnvel að þetta verði áróðurs-
stöðvar.
En það er líka orðin tízka,
að börn og unglingar, 14 til
18 ára, stofni til landsmála-
félagsskapar og stundi hann,
ef til vill undir stjórn nokkru
eldri félaga. Þessi félög eru
ekki almenn, óf lokksbundin
fræðslufélög um landsmál, held
ur flokksfélög. Hér er öðru máli
að gegna en um félög fullorð-
inna og ýmislegt við slíkan fé-
lagsskap að athuga. Raunar
mætti segja, að ungmennin
gætu haft samskonar not af
félögunum og fullorðnir, tíg þvi
hefir verið haldið fram. En
hér kemur fleira til athugunar.
Ungmennin vantar mikið á þá
þekkingu og reynslu, dóm-
greind og þroska yfirleitt, sem
fullorðnu fólki er ætlandi að
hafa. Áhrif þau, sem ungmenn-
in þurfa að vérða fyrir, skulu
vera menntandi, fræðandi og
þroskandi. Það er rangt og
þeim óhollt, að láta þau verða
fyrir áhrifum, sem sljóvga skiln
ing þeirra, rugla dómgreind
þeirra og tefja frjálsa hugsun
og ályktanir. 1 stjórnmálaflokk-
unum verða eÍdri og jmgri fyr-
ir flokkspólitískum áróðri. Þar
er einkum haldið fram þeim
staðreyndum, sem flokknum
henta, og túlkun staðreynda er
einhliða. Áróðurinn hefir þá
galla, sem áður voru nefndir.
Ungmenni eru næm fyrirLá-
róðri. Stöðugur áróður hefir öf-
ug áhrif við sanna menntun.
Hún eflir þroska og víðsýni,
skýrir hugsun og athugun mál-
efna, gjörir menn færari um
að draga rétttar ályktanir og
dæma óvilhallt og með sann-
girni um menn og málefni.
Menntun hjálpar ungmennum
til að líta á allar hliðar á hverju
máli, skapa sér sjálfstæðar, rök-
studdar skoðanir, meta skoðan-
ir og stefnur og velja um þær.
Áróðurinn sýnir eina eða fáar
hliðar, en hylur aðrar, og er
hættulegur fræðilegri og víð-
sýnni hugsun. Um þetta kemst
próf. Símon Jóh. Ágústsson svo
að orði: „Hlutdrægur áróðurs-
maður gefur almenningi ekki
einungis ranga mynd af véruj
leikanum, heldur elur hann
upp í honum óvandaðan hugs-
unarhátt, sem er gagnstæður
sannri menntun........ Áhrif
þessa einhliða og óvandaða póli-
tíska áróðurs á almenning vega
að miklu leyti á móti áhrifum
hlutlausrar fræðslu i skólum
og öðrum mennta- og vísinda-
stofnunum.“
Það er mörgum góðum mönn
um áhyggjuefni, að svo virðist
sem æskulýðurinn sé búinn að
taka ákveðna trú, hina pólitisku
trú, trúna á flokkinn. Þetta er
skaðleg trú, eins og hér hefir
verið leitazt við að sýna. Það
er rétt og sjálfsagt að auka
þekkingu og áhuga æskunnar
á málefnum þjóðarinnar. Það
er hverjum skylt, að hugsa um
þau mál eftir föngum. Tands-
málafélög eru að vísu ekki
sama sem flokkar og það, sem
sagt er mn flokka, áróður
þeirra og flokkstrú, þarf ekki
nauðsynlega að eiga við um
slik félög. Þau gætu verið al-
menn landsmálafélög, þar sem
fram færi alhliða fræðsla og
sanngjarnar og hófsamar um-
ræður um allar skoðanir og
stefnur. En landsmálafélögin
eru flokksfélög, einnig þau fé-
lög æskufólks, og þegar litið er
á starfsemi og baráttuaðferðir
flokkanna hér á landi, þá er
það vart láandi þótt landsmála-
félögum flokkanna sé ekki trú-
að til að veita algjörlega rétta,
samvizkusama alhliða fræðslu.
Bæjarfréttir
Höfnin:
Bæjartogarinn Bjarni Ólafssori,
landaði hér þ. 21. og 22. þ. m. 312
tonnum af karfa og Akurey þ. 23. og
24. 300 tonnum.
Foldin lestaði söltuð fiskþunniidi
til Italíu þ. 26. þ. m.
Brúarfoss er væntanlegur um heig-
ina og lestar hvalkjöt til Englands.
Undanfarið hefir verið ágætur aíli
á triilubáta og virðist strax farið að
gæta áhrifa friðunarinnar.
Bátar eru nú óðum að búast á síld-
veiðar fyrir Norðurlandi. Aðeins einn
þeirra, Heimaskagi, er farinn. Ýmsir
aðrir munu fara nú um helgina og í
næstu viku.
M.b. Keilir fór í gærkvöldi út á
Svið til að reyna að fiska í síldarnót
og fékk hann nokkuð af þorski. —
Nótin var þó „óklár.“ Mikill fiskur
mældist og eru líkur til, að á þennan
hátt verði hægt að veiða með góðum
árangri. Getur þetta breytt nokkru
um afstöðu til síldveiða. Veður var
óhagstætt í þetta sinn.
Akraneskirkja:
Messa í Akraneskirkju n. k. sunnu-
dag (29. júni) kl. 11 f. h.
Nýir símanotendur, -
er bættust viö innanbœjarkerfiö á Akranesi
27. júní 1952.
359 Ágúst Sigurðsson, Suðurgötu 35.
364 Árni Daníelsson, Suðurgötu 20.
351 Árni Magnússon, Vesturgötu 74.
331 Árni Runólfsson, Fjólugrund 9.
338 Árni Sigurðsson, Suðurgötu 31.
384 Ársæll Valdemarsson, Jaðarsbraut 17.
87b Ástráður Proppé, Hafnarbraut 2.
380 Bjarni Jónsson, Suðurgötu 102.
354 Borghildur Magnúsdóttir, Suðurgötu 102.
321 Bragi Magnússon, Kirkjubraut 35.
375 Einar Mýrdal, Vesturgötu 67.
368 Elías Níelsson, Kirkjubraut 15.
326 Elías Guðmundsson, Vesturgötu 69.
357 Félagsheimili Templara, Miðteig.
343 Geirlaugur Árnason, Háholti 12.
336 Georg Sigurðsson, Vesturgötu 69.
360 Gísli Vilhjálmsson, Vesturgötu 70.
366 Guðbjörg Vilhjálmsdóttir, Bjarkagrund 1.
349 Guðmundur Jónsson, Kirkjubraut 21.
323 Halldór Ólafsson, Merkigerði 12.
209 Hallgrímur Tómasson, Vesturgötu 123.
332 Halldór Magnússon, Suðurgötu 118.
358 Halldóra Hallsteinsdóttir, Suðurgötu 66.
327 Jón Helgason, Mánabraut 22.
333 Iþróttahúsið, Laugarbraut.
329 Jóhannes Gunnarsson, Heiðarbraut 17.
365 Jóhann Jónsson, Jaðarsbraut 21.
373 Jón Hall Magnússon, Skagabraut 31.
334 Karl Sigurðsson, Skagabraut 44.
330 Leifur Þjóðbjörnsson, Skagabraut 41.
345 Lögregluvarðstofan, Kirkjubraut 8.
339 Magnús Magnússon, Krókatúni 6.
335 Ólafur J. Bachmann, Vesturgötu 63.
372 Ólafur Elíasson, Laugarbraut 33.
355 Páll Eggertsson, Sandabraut 8.
363 Pétur Georgsson, Melteig 16b.
353 Sigurður Jónsson, Skólabraut 26.
328 Skattstofan, Kirkjubraut 2.
322 Steypusmiðja bæjarins, Vesturgötu.
342 Sverre Valtýsson, Akurgerði 2.
337 Valgeir Runólfsson, Kirkjubraut 4.
350 Verzlunin Bjarni & Sverrir, Suðurgötu 45.
340 Þórður Ásmundsson, Suðurgötu 38.
356 Þórður Þórðarson, Suðurgötu 37.
Þessir símanotendur hafa veriS á línu meÖ öörum, en fá nú
nýtt númer:
369 Ármann Ármannsson, raftækjavinnustofa,
Vesturgötu 26.
341 Árni B. Sigurðsson, Skólabraut 18.
388 Barnaskólinn, skólastjórinn.
367 Brynjólfur Kjartansson, Skagabraut 35.