Fréttablaðið - 24.06.2019, Blaðsíða 1
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —1 4 4 . T Ö L U B L A Ð 1 9 . Á R G A N G U R M Á N U D A G U R 2 4 . J Ú N Í 2 0 1 9
Fréttablaðið í dag
SKOÐUN Guðrún Hafsteins-
dóttir skrifar um bætt lífskjör
og EES-samningninn. 8
SPORT Mörg spurningarmerki
eru innan leikmannahóps Ars-
enal fyrir næsta tímabil. 12
MENNING Á Kjarvalsstöðum er
nú að finna yfirlitssýningu á
verkum Sölva Helgasonar. 18
LÍFIÐ Secret
Solstice
hátíðinni
lauk í
Laugar-
dalnum í
gær. 22
www.kronan.is
399 kr.pk.
Jiffy pop
Hri
sta
hristahrista
FJÖLMIÐLAR Þingflokkur Sjálfstæð-
isf lokksins leggur mikla áherslu
á að f jölmiðlafrumvar p Lilju
Alfreðsdóttur, mennta- og menn-
ingarmálaráðherra, taki verulegum
breytingum áður en það verður lagt
fram að nýju í haust. Þetta herma
heimildir Fréttablaðsins innan
þingflokksins.
Einn heimildarmaður blaðsins
segist raunar ekki muna eftir öðru
stjórnarfrumvarpi sem hafi verið
afgreitt úr þingflokknum með jafn
miklum fyrirvörum. Þannig muni
þingflokkurinn meðal annars setja
það skilyrði að tekið verði á mál-
efnum RÚV. Að minnsta kosti verði
settar miklar skorður við sam-
keppnisrekstri félagsins og það
helst dregið alveg af samkeppnis-
markaði.
Frumvarp Lilju sem ætlað var
að styrkja stöðu einkarekinna
fjölmiðla komst ekki til umræðu
áður en Alþingi fór í sumarleyfi.
Bryndís Haraldsdóttir, þingmaður
Sjálfstæðisflokksins, segir að þótt
frumvarpið hafi verið afgreitt út úr
þingflokknum hafi verið samstaða
um að það færi ekki í gegn á þessu
þingi. Ljóst sé að fyrirvarar séu hjá
mörgum þingmönnum flokksins.
„Ég held að það sé alveg deginum
ljósara að það voru ekki allir í þing-
f lokknum sáttir við frumvarpið
eins og það var lagt fram. Ráðherra
fannst mikilvægt að leggja málið
fram svo það fengi kynningu og
einhverja umræðu. Það yrði svo
verkefni næsta þings að ná þessu í
gegn,“ segir Bryndís.
Þegar ráðherra kynnti frumvarp-
ið í lok janúar sagði hann að málefni
RÚV yrðu skoðuð síðar. Endanleg
útgáfa frumvarpsins leit svo dags-
ins ljós í maí en þá hafði málsgrein
verið bætt við greinargerð um að
skoða ætti tekjuuppbyggingu RÚV.
Frumvarpinu var ekki dreift á
Alþingi fyrr en 20. maí þrátt fyrir
að ríkisstjórnin hafi afgreitt það 3.
þess mánaðar. Voru þær tafir meðal
annars raktar til andstöðu innan
þingflokks Sjálfstæðisflokksins.
Að mati Óla Björns Kárasonar,
þingmanns Sjálfstæðisf lokksins,
er staða RÚV lykilatriði. „Ef það er
einhver alvara í því að styrkja stöðu
sjálfstæðra fjölmiðla þá verða menn
að taka á þátttöku RÚV á sam-
keppnismarkaði þar sem það nýtur
yfirburða. Það verður að jafna leik-
völlinn,“ segir Óli Björn.
Eitthvað verði að gera en mikill
meirihluti þingsins vilji vernda
RÚV. „Það má ekkert gera sem
raskar stöðu RÚV og þá skil ég ekki
hvernig menn ætla að jafna leik-
völlinn.“
Annar heimildarmaður segir
málið snúið fyrir f lokkinn þar sem
verið sé að búa til styrkjakerfi sem
gangi gegn grunnhugmyndum
hans um atvinnulíf. Hins vegar
telji ýmsir það réttlætanlegt í ljósi
ójafnrar stöðu einkarekinna fjöl-
miðla. - sar
Vilja verulegar
breytingar á
frumvarpinu
Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins vill sjá verulegar
breytingar á frumvarpi um stuðning við fjölmiðla
áður en það verður lagt fram að nýju í haust. Ekki
tókst að mæla fyrir frumvarpinu á þessu þingi.
Ef það er einhver
alvara í því að
styrkja stöðu sjálfstæðra
fjölmiðla þá verða menn að
taka á þátttöku RÚV á
samkeppnismarkaði
Óli Björn Kárason,
þingmaður Sjálf-
stæðisflokksins
Patti Smith kom fram á tónlistarhátíðinni Secret Solstice í Laugardalnum í gærkvöldi við mikið lof viðstaddra.
Hin 72 ára Smith er mikill Íslandsvinur og hefur áður haldið hér ferna tónleika, síðast í Eldborgarsal Hörpu
árið 2014. Í gær var lokadagur Secret Solstice, en hátíðin hefur staðið síðan á föstudag. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
FÓTBOLTI Markahrókurinn Harpa
Þorsteinsdóttir þurfti að fara aftur
undir hnífinn vegna rifu í liðþófa
og kemur hún því ekkert við sögu á
þessu tímabili. Harpa
er samningslaus
og veit að endur-
hæf ingin mun
taka sinn tíma
en stefnir á að
komast aftur út
á völl á næsta
ári. - kpt /sjá
síðu 10
Harpa fór í aðra
liðþófaaðgerð
HEIMSMÁL Jarðarbúar verða tæp-
lega ellefu milljarðar árið 2100
samkvæmt nýrri mannfjöldaspá
Sameinuðu þjóðanna. Um miðja
öldina er gert ráð fyrir að þeir verði
9,7 milljarðar en í dag eru þeir 7,7.
Mesta fjölgunin verður í Afríku
sunnan Sahara. Evrópubúum mun
hins vegar fækka um 117 milljónir
samkvæmt spánni. Þá er því spáð
að Indland taki sæti Kína sem fjöl-
mennasta ríki heims árið 2027.
Fæðingartíðni hefur lækkað í
heiminum undanfarna áratugi en
árið 1990 átti hver kona að meðal-
tali 3,2 börn. Í dag er meðaltalið 2,5
börn en um miðja öldina stefnir í að
talan verði komin í 2,2 börn.
Sameinuðu þjóðirnar telja vanda-
mál tengd öldrun samfélaga meðal
stærstu breytinga 21. aldarinnar.
-þea / sjá síðu 6
Evrópubúum
mun fækka
PLÚS 2 SÉRBLÖÐ l FÓLK
l FASTEIGNIR
2
4
-0
6
-2
0
1
9
0
5
:2
8
F
B
0
4
0
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
4
4
-4
C
F
C
2
3
4
4
-4
B
C
0
2
3
4
4
-4
A
8
4
2
3
4
4
-4
9
4
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
4
0
s
_
2
3
_
6
_
2
0
1
9
C
M
Y
K