Fréttablaðið - 17.07.2019, Page 33
Hvað?
Hvenær?
Hvar?
Miðvikudagur
hvar@frettabladid.is
17. JÚLÍ 2019
Ganga
Hvað? Píanótónleikar
Hvenær? 21.00
Hvar? Norræna húsið
Hinn sænski Mattias Nilsson leik-
ur, hann hefur sinn eigin tónblæ
og áslátt.
Tónlist
Hvað? Hádegistónleikar Schola
cantorum
Hvenær? 12.00
Hvar? Hallgrímskirkja, Skólavörðu-
holti
Á efnisskrá tónleikanna má finna
íslenskar og erlendar kórperlur.
Miðaverð er 2.700 krónur.
Hvað? Tónlist og sögur
Hvenær? 20.00
Hvar? Iðnó við Tjörnina
Stephen Jenkinson, rithöfundur,
bóndi, kennari, sagna- og tónlist-
armaður frá Kanada, kemur fram
ásamt hljómsveit sinni.
Hvað: Kóngasveifla / Jazz með
útsýni
Hvenær: 21.00
Hvar: Múlinn, jazzklúbbur, Björtu-
loftum í Hörpu
Í tríóinu Kóngasveiflu eru Ómar
Guðjónsson á gítar, Tómas R.
Einarsson á bassa og
Sigtryggur Baldursson á kónga-
trommur. Þeir leika sér að
fjölbreytilegri sveiflutónlist,
frumsaminni og aðfenginni.
Björtuloft eru á 5. hæð Hörpu.
Miðaverð er 2.500 krónur og 1.500
krónur fyrir nemendur og eldri
borgara.
Stephen Jenkinson kemur fram í Iðnó, ásamt hljómsveit sinni. Það er fyrsta giggið af þremur .
1 7 . J Ú L Í 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R17 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
MENNING
Enn hefur Bræðsl-
unni á Djúpavogi
verið breytt í
vettvang stórrar,
alþjóðlegrar sam-
tímalistsýningar.
Sýningin Rúllandi
snjóbolti / 12, var
opnuð þar um síð-
ustu helgi.
Hátt á annað hundrað manns voru viðstödd opnunina og við erum í sk ý junum,“ seg ir Bryndís Reynisdóttir,
menningarmálafulltrúi á Djúpa-
vogi, um sýninguna Rúllandi snjó-
bolta / 12. Hún segir forkólfana
Ineke og Sigurð Guðmundsson
myndlistarmann og starfsfólk
Chin ese European Art Center
(CEAC) hafa unnið baki brotnu að
uppsetningu hennar, ásamt Þór
Vigfússyni listamanni. Svo taka
allir bæjarbúar taka þátt, starfsfólk
sveitarfélagsins, börnin í bæjar-
vinnunni, kvenfélagskonurnar …
það leggjast allir á eitt við að gera
þennan dag sem glæsilegastan.“
Alls taka 24 listamenn frá Íslandi,
öðrum Evrópulöndum og Asíu þátt í
sýningunni sem er skipulögð af
CEAC og er samstarfsverkefni þeirr-
ar stofnunar og Djúpavogshrepps.
Hún er meðal stærstu samtímalist-
sýninga á Íslandi. Spurð hvort eitt-
hvert verk þar veki athygli umfram
annað svarar Bryndís: „Það er erfitt
að velja eitthvað eitt, þau eru hvert
öðru glæsilegra og vekja öll athygli
og umræðu.“
B r y nd í s s e g i r s ý n i ng u n a
opna alla daga til 8. ágúst frá 11-16
og eflaust eigi margir eftir að koma
þar við enda ókeypis inn. „Hér
er mikið rennerí ferðamanna og
Bræðslan er við smábátabryggj-
una eins og eggin hans Sigurðar
Guðmundssonar. Við höfum ekki
nákvæmar tölur um fjölda gesta
síðustu ár en viljum meina að um
8.000 manns hafi séð sýningarnar.“
Rúllandi snjóbolti laðar til sín gesti
Eygló Harðardóttir, myndlistarmaður ársins, er meðal sýnenda. MYNDIR/BRYNDÍS REYNISDÓTTIR
Kristján Guðmundsson og verkið hans. Nick Renshaw er maðurinn bak við þetta verk.
Gunnþóra
Gunnarsdóttir
gun@frettabladid.is
Listamenn sem
taka þátt eru:
Axis Art project, Eva Ísleifs,
Eygló Harðardóttir, Guðrún
Benónýsdóttir, Halldór Ás
geirsson, Hildigunnur Birgis
dóttir, Jin Jing, Jos Houweling,
Kjartan Ari Pétursson, Kristján
Guðmundsson, Lilja Birgis
dóttir, Liu Yuanyuan, Luuk
Schröder, Marianne Lamm
ersen, Marjan Teeuwen,
Meiya Lin, Nanda Runge, Nick
Renshaw, Örn Alexander
Ámundason, Rakel McMahon,
Styrmir Örn Guðmundsson,
Twan Janssen, Una Margrét
Árnadóttir og Yan Jian.
1
7
-0
7
-2
0
1
9
0
4
:5
8
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
7
0
-0
6
4
C
2
3
7
0
-0
5
1
0
2
3
7
0
-0
3
D
4
2
3
7
0
-0
2
9
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
4
0
s
_
1
6
_
7
_
2
0
1
9
C
M
Y
K