Fréttablaðið - 24.07.2019, Blaðsíða 1
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —1 7 0 . T Ö L U B L A Ð 1 9 . Á R G A N G U R M I Ð V I K U D A G U R 2 4 . J Ú L Í 2 0 1 9
Fréttablaðið í dag
SKOÐUN Elliði Vignisson skrifar
um EES-samninginn og ESB. 8
SPORT HK-ingur inn að hjarta-
rótum segir Valgeir Valgeirsson. 10
MENNING Systkinin Mikael
Máni og Lilja María halda í tón-
leikaferð um landið og flytja
verk sem þau sömdu í sam-
einingu. 16
LÍFIÐ Keppni full-
orðnu bréfdúfn-
anna á Íslandsmóti
bréfdúfna fékk
skjótan endi eftir
ófyrirsjáan-
legar hrakn-
ingar. 22
PLÚS 2 SÉRBLÖÐ l FÓLK
l AUGUN OKKAR
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Gallup apríl-júní 2015 Faxafeni 11 • Sími 534 0534
Finndu okkur á
Sendum samdægurs
Regnbogavörur!
... því veiði dagsins grillar sig ekki sjálf
Afgreiðslutímar á www.kronan.is
GRILLJÓN
ástæður til að grilla
STJÓRNSÝSLA Úrskurðarnefnd um
upplýsingamál féllst í gær á beiðni
Seðlabanka Íslands um frestun rétt-
aráhrifa úrskurðar sem kveðinn var
upp 10. júlí síðastliðinn. Ekki hefur
verið fallist á slíka beiðni áður, í
máli sem varðar upplýsingarétt
fjölmiðils.
Með úrskurði nefndarinnar frá
10. júlí var bankanum gert skylt að
veita blaðamanni Fréttablaðsins
aðgang að upplýsingum um fjár-
mögnun bankans á framhaldsnámi
fyrrverandi forstöðumanns gjald-
eyriseftirlits bankans. Forsendur
þeirrar niðurstöðu voru meðal
annars að almenningur hefði rík-
ari hagsmuni af því að skjalið verði
gert opinbert en viðkomandi starfs-
maður af því að það fari leynt.
Með úrskurði sínum í gær féllst
nefndin hins vegar á beiðni bank-
ans um að samningurinn verði
ekki af hentur fyrr en dómur um
skyldu til að af henda samning-
inn liggur fyrir. Frestunin er bundin
því skilyrði að bankinn vísi málinu
til dómstóla innan sjö daga og krefj-
ist f lýtimeðferðar.
Í niðurstöðu nefndarinnar um
frestunina er einkum vísað til
óvissu um túlkun ákvæðis um
undan þágu upplýsingaréttar í
málum sem varða starfsmenn
opinberra stofnanna; umsóknir um
starf, framgang í starfi eða starfs-
sambandið að öðru leyti.
Í niðurstöðunni segir að fyrri
úrskurður hennar um rétt blaða-
mannsins styðjist hvorki við skýr
fordæmi dómstóla eða rótgróna
úrskurðarframkvæmd nefndar-
innar sjálfrar. Ekki verði séð að
dómstólar hafi áður tekið afstöðu
til sambærilegs ágreinings og
úrskurðurinn tekur til. Því kunni að
vera ástæða til að bera ágreining um
túlkun fyrrgreinds ákvæðis upplýs-
ingalaga undir dómstóla.
Liðnir eru átta mánuðir frá því
að blaðamaðurinn hugðist skrifa
frétt um námsstyrk bankans til
starfsmannsins. Fyrirséð er að yfir-
vofandi málaferli Seðlabankans við
blaðamanninn um rétt hans til upp-
lýsinga muni valda áframhaldandi
töfum á því starfi. – aá, ab
Hefur viku til að stefna blaðamanni
Fréttablaðið fær ekki
umbeðnar upplýsingar
um námssamning
starfsmanns Seðlabank-
ans að svo stöddu. Rétt-
aráhrifum úrskurðar
um skyldu bankans til
að afhenda blaðamanni
gögn hefur verið frest-
að. Seðlabankinn fékk
sjö daga frest til að vísa
málinu til dómstóla.
Úrskurðarefndin hefur
tvívegis áður fallist á beiðni
um frestun réttaráhrifa. Í
hvorugu tilvikinu var um
upplýsingarétt fjölmiðils að
ræða. Beiðnum um frestun
hefur sextán sinnum verið
synjað.
Boris Johnson tekur í dag við embætti forsætisráðherra Bretlands. Hann vann stórsigur á keppinaut sínum í leiðtoga-
kjöri Íhaldsf lokksins. Niðurstöðurnar komu ekki á óvart enda Johnson mælst mun vinsælli í könnunum. Með kjöri
Johnsons aukast líkur á samningslausri útgöngu því hann ætlar alls ekki að fresta Brexit aftur. Sjá síðu 6 NORDICPHOTOS/AFP
Fleiri myndir af Boris Johnson er að finna á +Plús-
síðu Fréttablaðsins. Fréttablaðið +Plús er í Frétta-
blaðs-appinu og PDF-útgáfu á Fréttablaðið.is.+PLÚS
FÓTBOLTI Valgeir Valgeirsson, leik-
maður HK, hefur farið mikinn í
liði nýliðanna á þessu sumri. Hann
stefnir hátt en er þó með báða fæt-
urna á jörðinni.
Þrátt fyrir að vera aðeins 16 ára
er Valgeir búinn að taka mataræð-
ið algerlega í gegn. „Ég borðaði ekk-
ert hollt í fjórða og þriðja flokki en
mamma tók í mig og fór að láta mig
borða hollara fæði. Ég
hef fylgt því og mér
finnst það hafa skilað
miklu. Ég er í miklu
betra formi eftir
að ég fór að hlusta
á mömmu,“ segir
hann hress.
– bbh / sjá
síðu 10
Tekur mark á
mömmu sinni
2
4
-0
7
-2
0
1
9
0
4
:5
5
F
B
0
4
0
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
7
7
-6
6
E
4
2
3
7
7
-6
5
A
8
2
3
7
7
-6
4
6
C
2
3
7
7
-6
3
3
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
4
0
s
_
2
3
_
7
_
2
0
1
9
C
M
Y
K