Fréttablaðið - 24.07.2019, Blaðsíða 6
TÆ K N I K ínversk i tæk nirisinn
Huawei hefur sagt upp tveimur af
hverjum þremur starfsmönnum
Futurewei, rannsóknardeildar
fyrirtækisins í Bandaríkjunum.
Reuters greindi frá þessu í gær.
Uppsagnirnar eru afleiðing þess
að ríkisstjórn Donalds Trump
Bandaríkjaforseta setti Huawei á
hinn svokallaða svarta lista og þar
með viðskiptabann á fyrirtækið.
Bannið kemur sér afar illa fyrir
Huawei, sem reiðir sig að miklu
leyti á bandaríska tækni á borð við
Android-stýrikerfið frá Google og
örf löguhönnun frá breska fyrir-
tækinu ARM, sem að hluta byggir á
bandarískri tækni.
Alls var 600 starfsmönnum af 850
sagt upp. Ekki liggur fyrir hvaða
áhrif það hefur á starfsemina.
Viðskiptabannið hefur gert rann-
sóknarstarfið í Bandaríkjunum
afar erfitt þar sem móðurfyrirtækið
Huawei má í raun ekki nýta nema
lítinn hluta rannsóknarvinnunnar.
Að því er Engadget greinir frá eru
starfsmenn Huawei í Bandaríkjun-
um í heild þó enn um 1.200 talsins.
Flestir þeirra vinna við neytenda-
þjónustu, almannatengsl og birgða-
stjórnun. Þessi tala hefur sömuleiðis
lækkað ört og ekki er útlit fyrir að
staða fyrirtækisins vestan hafs lagist
nema Kína og Bandaríkin komist
að samkomulagi um nýjan fríversl-
unarsamning sem í senn afléttir við-
skiptabanninu. – þea
Fjöldauppsagnir
hjá Huawei í
Bandaríkjunum
Bandarísku starfsfólki fækkar hjá
Huawei. NORDICPHOTOS/GETTY
BRETLAND Boris Johnson, fyrr-
verandi utanríkisráðherra Breta,
gengur á fund Bretlandsdrottn-
ingar í dag þar sem hann fær að öllu
óbreyttu heimild til að mynda ríkis-
stjórn og þannig verða forsætisráð-
herra landsins. Tekur hann við af
Theresu May.
Þetta kom í ljós í gær þegar til-
kynnt var um að meðlimir Íhalds-
f lokksins völdu hann fram yfir
Jeremy Hunt, núverandi utanríkis-
ráðherra. Niðurstöðurnar komu
fæstum, jafnvel engum, á óvart
enda hafði Johnson mælst mun vin-
sælli í öllum skoðanakönnunum.
Hann fékk rétt tæplega tvöfaldan
atkvæðafjölda Hunts.
„Við munum klára Brexit þann
31. október og nýta okkur þau tæki-
færi sem þá bjóðast,“ sagði Johnson
í sigurræðu sinni og bætti við: „Við
munum fá sjálfstraustið á ný. Líkt og
sofandi risi munum við vakna upp
og hrista af okkur bönd efa og nei-
kvæðni.“
Hunt sagðist aftur á móti afar
vonsvikinn í viðtali við breska
ríkisútvarpið. Sagði að Johnson
myndi standa sig vel og að hann
hefði óbilandi trú á Bretlandi.
„Þetta var alltaf að fara að vera
erfitt fyrir okkur af því ég greiddi
atkvæði gegn útgöngu. Ég held að
mörgum flokksmönnum hafi þótt
mikilvægt að styðja einhvern sem
greiddi atkvæði með Brexit. Þetta
var, svona eftir á að hyggja, óyfir-
stíganleg hindrun,“ sagði utanríkis-
ráðherrann.
Það er einmitt Brexit sem þetta
snýst allt saman um. Hvað sem líður
kyrrsetningu breskra skipa á Persa-
flóa eða vá sem stafar af mögulegri
þátttöku hins kínverska Huawei í
fjarskiptauppbyggingu tröllríður
útgöngumálið allri stjórnmálaum-
ræðu á Bretlandi.
Johnson hefur heitið því að
halda í samþykktan útgöngudag,
31. október, hvað sem öðru líður.
Thatcher með hamslaust hár
Boris Johnson verður forsætisráðherra Bretlands í dag. Vann stórsigur í leiðtogakjöri Íhaldsflokksins.
Líkurnar á samningslausri, og dýrri, útgöngu úr ESB aukast með kjöri Johnsons. Donald Trump fagnar.
Johnson vann leiðtogakjörið með miklum yfirburðum. Fékk nærri tvöfalt fleiri atkvæði en Hunt. NORDICPHOTOS/AFP
Lítill vinskapur
Þessir suðurkóresku mótmælendur virtust ekki sérlega hrifnir af Shinzo Abe, japanska forsætisráðherranum, í gær þegar þeir klipptu í sundur
mynd af honum fyrir utan japanska sendiráðið í Seúl. Kastast hefur í kekki á milli ríkjanna og deila þau nú bæði um nýjar og hertar reglugerðir
Japana um útf lutning til Suður-Kóreu sem og bætur til Kóreumanna sem unnu nauðungarvinnu er Japanar héldu Kóreuskaga. NORDICPHOTOS/AFP
Hann vill ekki fresta útgöngu líkt
og May-stjórnin gerði eftir að
þingið hafnaði samningnum sem
hún náði við Evrópusambandið.
Útgöngu var áður frestað vegna þess
að hvorki þing né ríkisstjórn vildu
ganga út án samnings en ef marka
má orð Johnsons væri samningslaus
útganga, sem varað hefur verið við
að yrði afar dýrkeypt, engin fyrir-
staða.
Óttinn við samningslausa út-
göngu sem og umdeild persóna
Johnsons, sem í gegnum tíðina
hefur til að mynda líkt konum í
búrkum við póstkassa, ESB við
Hitler og Napóleon, sagt asískt
fólk yfirburðagreint og svart fólk
heimskt og sagt ósatt um fjárhags-
legan ávinning Brexit, leiddi strax í
gær til afsagnar nokkurra ráðherra.
Anne Milton menntamálaráð-
herra sagðist til að mynda segja
af sér vegna þess að það væri þörf
á skynsemi í útgöngumálinu og
David Gauke, dómsmálaráðherra
og mikill andstæðingur samnings-
lausrar útgöngu, gerði slíkt hið
sama. Áður höfðu fjármálaráð-
herra, aðstoðarutanríkisráðherra
og menningarmálaráðherra sagt af
sér þar sem þau gátu ekki hugsað sér
að starfa undir Johnson.
Kjöri hins umdeilda Johnsons
var misjafnlega tekið úti í heimi
og utan Íhaldsf lokksins. Jeremy
Corbyn, leiðtogi Verkamanna-
flokksins, sagði af og frá að Johnson
nyti stuðnings þjóðarinnar. Frans
Timmer man, varaforseti fram-
kvæmdastjórnar ESB, varaði svo
við því að May-samningnum yrði
kastað fyrir borð.
Öllu glaðari var Donald Trump,
forseti Bandaríkjanna, er sagði
Johnson bæði harðan af sér og
greindan. „Þau kalla hann Bret-
lands-Trump. Fólk segir að það sé
gott, þau kunna vel við mig þarna.
Boris er góður, hann mun standa sig
vel,“ sagði forsetinn.
Newt Gingrich, fyrrverandi for-
seti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings
og mikill stuðningsmaður Trumps,
tók í sama streng og sagði spenn-
andi tíma fram undan. „Skriffinn-
arnir hjá Evrópusambandinu munu
sjá að hann er mun klárari og seigari
en fyrirrennarinn. Ímyndið ykkur
Margaret Thatcher með hamslaust
hár.“ thorgnyr@frettabladid.is
Þau kalla hann
Bretlands-Trump.
Fólk segir að það sé gott, þau
kunna vel við mig þarna.
Donald Trump, forseti
Bandaríkjanna
L ANDBÚNAÐUR Félag atvinnu-
rekenda (FA) sakar afurðastöðvar
um að hafa búið til skort á lamba-
hryggjum og hryggsneiðum sem
hafi leitt til verðhækkunar. Ráð-
gjafarnefnd um inn- og útflutning
landbúnaðarvara hefur lagt til að
gefinn verði út tímabundinn inn-
flutningskvóti á lækkuðum tollum
til að bregðast við þessum skorti.
„Það hefur legið fyrir vikum
saman að það stefndi í skort á
lambahryggjum, en afurðastöðvar
hafa sagst eiga nóg og ráðuneytið
látið þar við sitja. Nú, þegar stutt
er í að skortur bitni á neytendum,
kemur loks þessi ófullnægjandi
tillaga frá nefndinni,“ er haft eftir
Ólafi Stephensen, framkvæmda-
stjóra FA, í tilkynningu.
Ólafur segir að niðurstaðan verði
líklega sú að loks þegar tekist hafi
að f lytja kjöt til landsins verði
sláturtíð í þann veginn að hefjast.
Málið sé dæmi um öfugsnúið kerfi
þar sem hagsmunir neytenda séu
ekki í fyrirrúmi.
„Innlendar afurðastöðvar hafa
selt lambahryggi til útlanda í
stórum stíl, á verði sem er miklu
lægra en það sem innlendri verslun
stendur til boða,“ segir Ólafur. – sar
FA segir
afurðastöðvar
búa til skort
FA segir hagsmuni neytenda ekki í
fyrirrúmi. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
2 4 . J Ú L Í 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
2
4
-0
7
-2
0
1
9
0
4
:5
5
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
7
7
-9
3
5
4
2
3
7
7
-9
2
1
8
2
3
7
7
-9
0
D
C
2
3
7
7
-8
F
A
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
4
0
s
_
2
3
_
7
_
2
0
1
9
C
M
Y
K