Fréttablaðið - 24.07.2019, Blaðsíða 12
Viltu birta minningargrein á frettabladid.is?
Minningargreinar skal senda á timamot@frettabladid.is.
Birting er endurgjaldslaus og opin öllum á frettabladid.is/timamot
Haraldur Sturlaugsson athafnamaður er fæddur 24. júlí 1949 og er því sjötugur í dag.„Séra Friðrik skírði mig Harald, foreldrar
mínir fengu engu um það ráðið. Fjöl
skyldan kallaði mig „Hadda“ þegar
ég var yngri. „Vinirnir í fótboltanum
kölluðu mig Halla – en „Evrópurudd
ann“ eftir að ég varð fyrsti íslenski leik
maðurinn sem UEFA dæmdi í leikbann
í Evrópukeppni 1975,“ segir Haraldur
hlæjandi.
Sveitungar segja Harald fremur hlé
drægan og látlausan mann en býsna
fastan fyrir. Hann er sagður feiminn að
eðlisfari og hógvær því oft hefur hann
sig ekki mikið í frammi heldur lætur
öðrum eftir sviðsljósið.
Snemma forstjóri
Haraldur fór til Englands í skóla eftir
gagnfræðapróf og lauk prófi árið 1968
í ensku og verslunarfræðum frá Dane
End College í Englandi. Árið 1970 lauk
hann prófi frá Samvinnuskólanum á
Bifröst. Að námi loknu hóf hann störf í
fjölskyldufyrirtækinu HB & Co á Akra
nesi. Þegar faðir hans féll frá 1976 tók
Haraldur alfarið við stjórnartaumunum
aðeins 26 ára gamall. Framkvæmda
stjórastarfinu gegndi hann í 35 ár. Auk
þess að stýra fyrirtækinu sinnti hann
margvíslegum trúnaðarstörfum á sviði
íslensks athafnalífs, einkum sjávar
útvegs.
Ræturnar: Skaginn og útgerð
„Rætur mínar eru á Skaganum og í
útgerð,“ segir Haraldur. Hann er í sjötta
ættlið útgerðarmanna allt aftur til
Sturlaugs, útvegsbónda og sjósóknara
í Rauðseyjum á Breiðafirði. „Afi sagði
útgerðarblóðið frá Rauðseyjum.“
„Foreldrar mínir voru hjónin Stur
laugur H. Böðvarsson útgerðarmaður
og Rannveig Böðvarsson húsmóðir.
Afi minn Haraldur Böðvarssonar, hóf
útgerð frá Akranesi árið 1906. Fyrirtæk
inu var stýrt af þremur ættliðum í 98 ár.“
Haraldur er næstelstur sex alsystkina,
en auk þess átti Haraldur eldri hálf
systur sem nú er látin.
Haraldur giftist Ingibjörgu Pálma
dóttur, fyrrverandi heilbrigðisráðherra,
árið 1972. Hún er fædd og uppalin á
Hvolsvelli en réðst til starfa á Akranesi
sem hjúkrunarfræðingur og þá lágu
leiðir þeirra saman. „Að kynnast henni
hefur reynst mín gæfa,“ segir hann.
Þau eiga fjóra syni, þá Sturlaug, fram
kvæmdastjóra Norebo Europe, Bret
landi, fæddan 1973; Pálma, viðskipta
stjóra hjá Íslandsbanka, fæddan 1974;
Ísólf athafnamann, fæddan 1979; og
Harald, sölumann hjá Icelandair Cargo,
fæddan 1989.
Margvísleg áhugamál
Haraldur hætti sem framkvæmdastjóri
árið 2005. Í dag sinnir Haraldur áhuga
málum og fjölskyldunni.
Aðspurður um áhugamál segir Har
aldur það aðallega vera knattspyrna.
„Ég óx úr grasi á Akranesi á sjötta og
sjöunda áratugnum á gullöld Skaga
manna í fótbolta. Það voru góðir tímar.
Ég spilað með Akranesliðinu frá 1966
1975 og nokkra landsleiki. Síðar var ég
formaður Knattspyrnuráðs ÍA í nokkur
ár,“ segir hann.
„Samfélagsmál hér á Skaganum hafa
alltaf verið mér hjartfólgin. Ég hef m.a.
unnið mikið með ljósmyndir og þá sögu
er þær segja. Haldið ljósmyndasýningar
og haldið úti vefsetri um ljósmyndirnar
sem tengjast atvinnu og íþróttasögu
Akurnesinga.
„Fjölskyldan á mestan hug minn nú.
Við Ingibjörg eigum stolt 16 barnabörn.
Þau eru guðsgjöf og okkur mikil upp
spretta gleði,“ segir hann.
Hvað ætlar athafnamaðurinn að gera
á sjötugsafmælinu?
„Við ætlum að vera með fjölskyldunni
í rólegheitunum, gera eitthvað skemmti
legt með krökkunum,“ segir afmælis
barnið Haraldur Sturlaugsson.
david@frettabladid.is
Haraldur Sturlaugsson
athafnamaður sjötugur
Afmælisbarnið og eigin-
kona hans ætla að eyða
deginum í rólegheitum í
faðmi fjölskyldunnar og
gera eitthvað skemmti-
legt með krökkunum.
Haraldur og Ingibjörg með barnaskaranum á góðri stund.
Við Ingibjörg eigum stolt 16
barnabörn. Þau eru guðsgjöf og
okkur mikil uppspretta gleði.
1148 Loðvík 7. Frakkakonungur tók höndum saman við
Konráð 3. Þýskalandskonung og Baldvin 3., konung Jerú-
salem, í umsátri um Damaskus í annarri krossferðinni.
Umsátrið mistókst hrapallega og Loðvík hélt heim þrátt
fyrir andstöðu eiginkonunnar Elinóru. Þau skildu síðar.
1567 María Skotadrottning var neydd til að afsala sér
völdum í hendur sonar síns, Jakobs 6.
1783 Fæddur Símon Bólívar, frelsishetja Suður-Ameríku
(d. 1830).
1847 Mormónar undir forystu Brighams Young nema
land í Utah.
1896 Nunnur koma til Íslands í fyrsta sinn eftir siðaskipti.
Þær eru fjórar og setjast að til að annast hjúkrun og vitja
sjúkra. Þetta er upphaf starfs St. Jósefssystra í Reykjavík
og Hafnarfirði.
1902 Fæddur Sigurður S. Thoroddsen, íslenskur verk-
fræðingur, stjórnmálamaður og knattspyrnumaður
(d. 1983).
1924 Alþjóða skáksambandið stofnað í París.
1933 Ferðafélag Íslands fer í sína fyrstu Þórsmerkurferð.
1956 Vinstri stjórnin, ríkisstjórn Framsóknar, Alþýðu-
bandalags og Alþýðuflokks undir stjórn Hermanns Jónas-
sonar, tekur við völdum og situr í tvö ár.
1961 Júrí Gagarín, fyrsti geimfarinn, kemur við á Kefla-
víkurflugvelli á leið sinni til Kúbu, skömmu eftir að hann
fór í fyrstu geimferðina.
1962 Fædd Sigríður Beinteinsdóttir, íslensk söngkona.
1969 Fædd Jennifer López, bandarísk leikkona og söng-
kona.
1979 Fæddur Birkir Jón Jónsson, íslenskur stjórnmála-
maður.
Merkisatburðir
Ástkær eiginmaður minn og faðir,
Helgi Þór Guðmundsson
rafeindavirki,
Stakkhömrum 9, Reykjavík,
lést á Vífilsstöðum miðvikudaginn
17. júlí. Útför verður auglýst síðar.
Salóme Guðný Guðmundsdóttir
Auður Helgadóttir
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Jóna Veiga Benediktsdóttir
Kvíarholti í Holtum,
lést miðvikudaginn 17. júlí.
Útförin fer fram frá Hveragerðiskirkju
laugardaginn 27. júlí kl. 11.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeir sem
vilja minnast hennar láti Hjúkrunarheimilið Lund á Hellu
njóta þess.
Ingibjörg Sigurðardóttir Ágúst Geirsson
Þórður Karlsson Brynhildur Magnúsdóttir
Margrét Karlsdóttir Gunnar Gunnarsson
Fjóla Karlsdóttir Sigurður Steingrímsson
Þorsteinn Karlsson Sigurbjörg Sara Sveinsdóttir
Berglind Karlsdóttir Arnar Bjarnason
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir,
tengdamóðir, amma og langamma,
Álfheiður Unnarsdóttir
lést á hjúkrunarheimilinu Hömrum í
Mosfellsbæ mánudaginn 22. júlí.
Ingólfur Jóhannsson
Unnur V. Ingólfsdóttir Guðjón Magnússon
Jóhann Ingólfsson Jónína Daníelsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur faðir, tengdafaðir og afi,
Ólafur Geirsson
andaðist 6. júlí sl.
Bálför fór fram í kyrrþey.
Þökkum starfsfólki í þjónustuíbúðum
við Dalbraut, hjúkrunardeild aldraðra
á Akranesi og hjúkrunarheimilinu
Seltjörn ágæta umönnun.
Helga Björk Ólafsdóttir
Styrmir Geir Ólafsson Anna Margrét Þorbjarnardóttir
Geir Ólafsson Kristín Edda Óskarsdóttir
og barnabörn.
Elskuleg móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
Guðrún Benediktsdóttir
frá Hólmavík,
lést á Droplaugarstöðum í Reykjavík
laugardaginn 20. júlí. Útförin fer fram frá
Fossvogskirkju mánudaginn 29. júlí kl. 15.
Ólafur Reykdal
Guðrún Björk Reykdal Sigurður Sigurðsson
Sigrún Edda Reykdal
Þórarinn, Auðunn, Alexander og Sara Xiao.
2 4 . J Ú L Í 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R12 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
TÍMAMÓT
2
4
-0
7
-2
0
1
9
0
4
:5
5
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
7
7
-7
5
B
4
2
3
7
7
-7
4
7
8
2
3
7
7
-7
3
3
C
2
3
7
7
-7
2
0
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
4
0
s
_
2
3
_
7
_
2
0
1
9
C
M
Y
K