Fréttablaðið - 24.07.2019, Qupperneq 18
Sandra Guðrún
Guðmundsdóttir
sandragudrun@frettabladid.is
Margrét María Sigurðar-dóttir, forstjóri Þjónustu- og þekkingarmiðstöðvar-
innar, segir að miðstöðin sé með
upp undir 1.700 notendur og hátt í
Mikilvægt að ná til allra
Margrét segir að sá hópur sem notar þjónustuna sé fjölbreyttur FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Þjónustu- og
þekkingarmið-
stöð fyrir blinda,
sjónskerta og
einstaklinga
með samþætta
sjón- og heyrnar-
skerðingu hefur
að markmiði
að veita fólki
þjónustu til að
auðvelda því fulla
þátttöku í sam-
félaginu.
70% þeirra séu eldri borgarar.
„Til að eiga rétt á þjónustu hjá
okkur þarf einstaklingur að vera
sjónskertur eða blindur. Það er
miðað við að sjónin sé minni en
30% á betra auga. Við veitum mjög
umfangsmikla þjónustu sem er
notendum að kostnaðarlausu,“
segir Margrét.
Miðstöðin aðstoðar fólk meðal
annars við athafnir daglegs lífs
og umferli. Ráðgjafar heimsækja
skóla og fræða skólasamfélagið
til að það sé betur í stakk búið
til að aðstoða sjónskert og blind
börn í námi. Miðstöðin er með
framleiðsludeild, sem framleiðir
meðal annars efni á punktaletri,
hún býður upp á félagsráðgjöf, sál-
fræðiráðgjöf, náms- og starfsráð-
gjöf og ýmislegt f leira.
„Hér hjá okkur eru helstu sér-
fræðingar á Íslandi í málefnum
blindra og sjónskertra. Við erum
með sjónfræðinga og augnlækni
sem starfrænt meta sjón og halda
utan um blinduskráningu í land-
inu. Mikið er afhent af sérhæfðum
gleraugum og stækkunarkerfum
sem nýtast okkar notendum.
Hingað kemur augnsmiður sem
smíðar gerviaugu eða skel á auga
fyrir það fólk sem þarf á því að
halda. Tölvu- og tækniaðstoð er
alltaf að aukast hjá okkur, hjálpar-
tæknin er alltaf að verða tækni-
væddari. Við úthlutum einnig
leiðsöguhundum í ákveðnum
tilvikum. Þetta er mjög umfangs-
mikil og fjölbreytt þjónusta sem
við veitum.“
Yfirleitt kemur fólk á miðstöð-
ina eftir að hafa fengið tilvísun
frá augnlækni. Margrét segir þó
að það komi fyrir að fólk viti ekki
af þjónustunni sem því stendur
til boða og mikilvægt sé að ná
til allra sem þurfa aðstoð mið-
stöðvarinnar. Hér fer fram mikið
þverfaglegt samstarf og gott sam-
starf við aðrar þjónustustofnanir
og hagsmunafélög.
Aukin tæknivæðing
Miðstöðin býður upp á fjöl-
breytt hjálpartæki sem fólk getur
prófað og metið hvað hentar
þeim. Fyrir utan leiðsöguhund og
hvíta stafinn sem er kannski það
fyrsta sem fólki dettur í hug eru
í boði fjölbreytt stækkunartæki,
talgervlar í tölvur, kennslugögn,
punktaleturs skjáir og punkta-
letursprentarar og svo mætti lengi
telja.
„Það er til dæmis til tæki sem
getur sagt liti á ensku. Margir
vilja vita hvernig fötin þeirra eru
á litinn upp á að þau passi saman
og þetta tæki skynjar liti. Síminn
er að taka yfir mörg hjálpartækin.
Margir nota síma eða spjaldtölvur
sem stækkunartæki, til dæmis í
námi. Þá getur fólk tekið myndir
sem það stækkar upp og getur
þannig lesið. Þorrinn af okkar
notendum eru eldri borgarar, en
þeir eru líka sífellt að verða tækni-
væddari,“ segir Margrét.
Margrét segir að miðstöðin
reyni að mæta hverjum ein-
staklingi þar sem hann er staddur
og byggja á þeim styrkleikum
sem hann býr yfir. Margir eru
með framsækna augnsjúkdóma
þannig að sjónin fer versnandi og
þörfin fyrir aðstoð og hjálpartæki
breytist samhliða því.
„Hópurinn sem til okkar leitar
er fjölbreyttur. Fólki af erlendum
uppruna hefur fjölgað. Eins hefur
börnum fjölgað sem eru blind og
sjónskert en líka fjölfötluð. Þá er
fólk á vinnualdri í hópnum sem
þarf aðstoð við aðlögun á vinnu-
markaði. Við þurfum að mæta
ólíkum þörfum þessara hópa,“
segir Margrét.
Meðal þjónustu sem mið-
stöðin býður upp á er að veita
aðstoð á heimilum fólks. „Við
aðstoðum fólk við að finna alls
kyns praktískar leiðir til að reka
heimili og vera sjálf bjarga. Þetta
geta verið leiðir eins og að setja
hnapp á eldavélina til að auðvelda
fólki að kveikja og slökkva á henni
og ýmislegt í þeim dúr,“ útskýrir
Margrét. „Það eru miklar fram-
farir og tækninýjungar í hjálpar-
tækjunum og við bindum miklar
vonir við þær.“
Miðstöðin er í sama húsi og
Blindrafélagið og segir Margrét að
öllum sem þangað leita sé tekið
vel. „Það er mjög mikilvægt að
allir sem þurfa á þjónustu okkar
að halda viti að hún sé í boði. Við
erum hér til að vinna fyrir fólkið,“
segir Margrét að lokum.
Gleraugnaverslunin þín
MJÓDDIN
S:587 2123
FJÖRÐUR
S: 555 4789
Gleraugu með FL-41 gleri geta
hjálpað þeim sem þjást af mígreni
Mígreniglerið er litað og síar burt u.þ.b. 80% af bláu og grænu
ljósi frá skjám og flúorsentljósum. Glerin hafa reynst mörgum
vel sem fá birtutengdan höfuðverk eins og mígreni.
Prófaðu að fá mígrenigler í umgjarðirnar þínar,
með eða án styrkleika. Við tökum vel á móti þér í Augastað.
MÍGRENIGLER
4 KYNNINGARBLAÐ 2 4 . J Ú L Í 2 0 1 9 M I ÐV I KU DAG U RAUGUN OKKAR
2
4
-0
7
-2
0
1
9
0
4
:5
5
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
7
7
-9
8
4
4
2
3
7
7
-9
7
0
8
2
3
7
7
-9
5
C
C
2
3
7
7
-9
4
9
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
4
0
s
_
2
3
_
7
_
2
0
1
9
C
M
Y
K