Fréttablaðið - 24.07.2019, Page 21
Við vorum fyrst
hér á landi til að
beita PRESBYMAX
meðferð, sem er sér-
hönnuð til að losa fólk
við bæði fjarlægðar- og
lesgleraugun.
Jóhannes Kári Kristinsson
Jóhannes Kári
skoðar sjúkling
í raufarlampa.
MYND/LÁRUS
SIGURÐARSONA
Augljós býður upp á tvenns konar augnaðgerðir. MYND/LÁRUS SIGURÐARSON
spyrð spurningarinnar: Getur fólk
orðið blint út af snertilinsum, þá
er svo sannarlega hægt að svara
því játandi. Það eru meira að segja
því miður allnokkur tilvik, hérna
á litla Íslandi, þar sem fólk hefur
fengið alvarlegan augnskaða
eða misst sjónina algerlega út af
snerti linsum og jafnvel misst auga.
Síðan þekki ég persónulega vel
til nokkurra sjúklinga sem hafa
hlotið alvarlegan augnskaða vegna
þess að gleraugu hafa brotnað og
skorið augun og fólk jafnvel hlotið
blindu af.“
Fjöldinn allur af fólki kemur í
forskoðun til Jóhannesar vegna
óþæginda við notkun gleraugna í
leik og starfi. „Stundum hefur fólk
verið hætt komið vegna notkunar
á gleraugum sem fylltust af móðu.
Ég man sérstaklega eftir vélsleða
manni sem fór fram af hengju,
vegna móðu innan á gleraugunum
sem hann var með, og slasaðist
illa. Það er nauðsynlegt að horfa
á þessa hluti í samhengi þegar
maður horfir á öryggi laserað
gerða.“
Vinsælar aðgerðir
Ekkert lát virðist vera á vinsældum
laseraðgerðanna. Mikill fjöldi
fólks fer í aðgerð á hverju ári en
Jóhannes Kári segir merkilegt að
á kreppuárinu 2008 fækkaði ekki
í hópi þeirra sem fór í laseraugn
aðgerðir. „Á meðan fólk dró úr
neyslu og fjárfestingum þá hélst
svipaður fjöldi fólks sem fór í
laseraðgerðir.“
Hjá Augljósi eru framkvæmdar
í kringum 1.000 aðgerðir ár hvert.
Jóhannes segir laseraðgerðir eins
varanlegar og aðrir hlutar augans
leyfa. „Við gerum aðgerð á fremri
linsu augans sem við köllum
hornhimnu. Ef aftari linsa augans,
sem við köllum augastein, fer að
breytast, þá breytir það sjónlagi
augans og þar með dvína áhrif
aðgerðarinnar. En aðgerðin sem
slík heldur. Breytingar á sjónlagi
geta gerst hvenær sem er á ævinni
þó þær gerist yfirleitt ekki fyrr
en fólk er komið vel yfir sextugt,“
útskýrir Jóhannes Kári.
Sjálfur fór Jóhannes í augnað
gerð árið 2003, en hann var með
7,50 í nærsýni. „Núna 16 árum
síðar er ég ennþá algjörlega núll
stilltur og nota ekki gleraugu nema
bara rétt aðeins lesgleraugu. Enda
kominn kirfilega á þann aldur.“
Hjá Augljósi eru einkum fram
kvæmdar tvenns konar augnað
gerðir. Það er transPRK aðgerðin
sem líkist mjög aðgerðinni eins
og hún var stuttu eftir að hún
var fundin upp árið 1991. „Þá fer
lasergeislinn beint á hornhimnuna
og breytir lögun hennar. Þekjan
er sem sé tekin af með lasergeisla
og hornhimnan mótuð beint,“
útskýrir Jóhannes. Hin aðgerðin
sem er mun vinsælli er kölluð
LASIK aðgerð. Þá er f lipi á hjör
búinn til á hornhimnuna og settur
til hliðar. Svo er löguninni breytt
undir f lipanum og hann lagður
aftur yfir.
„Stærsti munurinn á þessum
aðgerðum er sá að það tekur lengri
tíma að jafna sig eftir transPRK
aðgerðina. Það tekur nokkrar
vikur en það tekur bara nokkra
daga að jafna sig eftir LASIKað
gerðina. Þess vegna hefur LASIK
aðgerðin verið langvinsælust hér á
landi og í f lestum öðrum löndum.
Ég held það sé bara í Noregi og á
Ítalíu sem transPRK aðgerðin er
algengari,“ segir Jóhannes.
TransPRK er snertilaus með
ferð og Jóhannes Kári segir að
einstaka aðilar velji þá aðgerð því
þeim finnist þægilegt að manns
höndin komi sem minnst nálægt.
„Við hjá Augljósi byrjuðum með
þessa snertilausu meðferð árið
2012 og við beitum henni í sumum
tilvikum. Sérstaklega þegar um er
að ræða þunnar hornhimnur. En
oftast beitum við LASIK meðferð
inni, einfaldlega vegna þess að fólk
er f ljótara að ná sér. Við erum líka
svolítið óþolinmóð, Íslendingar.
Við viljum sjá árangur sem fyrst
og það er alveg skiljanlegt ef það
er hægt á annað borð. Við erum jú
alltaf að nota þessi blessuðu augu
okkar,“ segir Jóhannes.
Losa fólk við hækjurnar
Jóhannes Kári segir að aðgerðirnar
séu ekki leyfðar fyrir 18 ára aldur.
„Á unga aldri er sjónlag að breytast
og skiptir miklu að það sé orðið
stöðugt áður en aðgerð er fram
kvæmd. Sem dæmi má nefna að ef
nærsýni er enn að aukast, þá þarf
að bíða með aðgerð. Ungt fólk er
oftast ekki tilbúið í aðgerð fyrr en
í fyrsta lagi um tvítugt. Það kemur
fyrir að við gerum aðgerðir á ungu
fólki milli 18 og 20 ára en það er
frekar sjaldgæft og þá einkum hjá
fjarsýnum einstaklingum.“
Jóhannes segir algengt að
framkvæmdar séu aðgerðir á
fólki yfir fertugu þar sem aðal
vandamálið sé hversu háð það sé
lesgleraugum. „Við vorum fyrst
hér á landi til að beita svokallaðri
PRESBYMAX meðferð, sem er sér
hönnuð til að losa fólk algjörlega
við bæði fjarlægðar og lesgler
augun. Þessi aðgerð hefur komið
mjög vel út. Þetta er LASIK aðgerð
en lasergeislinn býr til sérstakan
lespunkt á hornhimnuna, sem
aðstoðar einstaklinginn við að sjá
hluti nálægt sér.“
PRESBYMAX aðgerðin er oftast
ekki gerð fyrr en eftir 45 ára aldur.
Ef fólk fer í aðgerð um þrítugt
þá þarf lesgleraugu eftir 45 ára
aldurinn, þar sem augasteinninn
– sem séð hefur um nálægðarsjón
ina – hefur harðnað og er hættur
að hjálpa til að fókusera nálægt. „Í
sumum tilvikum getum við gert
viðbótaraðgerð, það er að segja
gert PRESBYMAX aðgerðina og
losað fólk við lesgleraugun, en það
þarf bara að skoða það í hverju til
viki,“ útskýrir hann.
„Ég tel að í það heila hafi sjón
lagsaðgerðir ekki bara þau áhrif að
losa fólk við hækjur, eins og gler
augu og snertilinsur, heldur hafi
þær mjög jákvæð áhrif á ýmislegt
annað. Það er stórkostleg tilfinn
ing að vakna og sjá skýrt. Vera
góður eins og maður er og þurfa
ekki hjálpartæki til. Geta líka
stundað leik og störf við erfiðar
aðstæður þar sem ekki þarf sífellt
að hafa áhyggjur af hjálpartækj
unum. Mér þykir afar vænt um að
hafa fengið tækifæri til að hjálpa
fólki að ná þessum markmiðum.
Þessar aðgerðir eru svo sannarlega
komnar til að vera,“ segir Jóhannes
Kári að lokum.
XXXXXXXXXXXXXXXXXXXXKYNNINGARBLAÐ 7 M I ÐV I KU DAG U R 2 4 . J Ú L Í 2 0 1 9 AUGUN OKKAR
2
4
-0
7
-2
0
1
9
0
4
:5
5
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
7
7
-8
4
8
4
2
3
7
7
-8
3
4
8
2
3
7
7
-8
2
0
C
2
3
7
7
-8
0
D
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
4
0
s
_
2
3
_
7
_
2
0
1
9
C
M
Y
K