Fréttablaðið - 24.07.2019, Blaðsíða 36
Gaman-dramamynd-in Once upon a time in Hollywood var frumsýnd á mánu-daginn og var rauði dregillinn stjörnum
prýddur, enda engir aukvisar sem
standa að gerð myndarinnar. Hér
er um að ræða níundu mynd Quent-
ins Tarantino, en hann hefur sagst
ætla standa við þau áform að hans
tíunda mynd verði hans síðasta.
Nýjasta myndin hefur fengið ein-
róma lof gagnrýnenda og er þegar
þetta er skrifað með 9,5 í einkunn
á vefnum IMDb.com. Myndin er
síðasta myndin sem Beverly Hills
90210 leikarinn Luke Perry lék í,
en hann lést úr hjartaáfalli fyrr á
árinu. Í minningu hans klifraði
sonur hans, Jack Perry, upp á aug-
lýsingaskilti með mynd af föður
hans. Myndin verður frumsýnd hér
á landi þann 16. ágúst.
steingerdur@frettabladid.is
Quentin Tar-
antino, leikstjóri
og höfundur myndar-
innar, ásamt aðalleikur-
unum, þeim Brad Pitt,
Margot Robbie og
Leonardo DiCaprio.
Leikkonan
Vanessa Hu
dgens
ásamt kæra
sta sínum
Austin Butl
er, en nýbú
ið
er að tilkyn
na að hann
taki að sér
hlutverk El
vis
Presley í væ
ntanlegri
kvikmynd.
Leikonan
knáa Julia Butters
fer með hlutverk í
myndinni, en hún hefur
undanfarið slegið í
gegn í þáttunum
American House-
wife.
Systurnar Scout, Tallullah og Rumer Willis
voru glæsilegar á frumsýningunni.
Í fyrsta sinn mætti söngkonan
Britney Spears með kærasta sinn,
Sam Asghari, á opinberan viðburð.
Once upon a time in
Hollywood frumsýnd
Kvikmyndin Once upon a time in Hollywood var frumsýnd
á mánudaginn. Hún hefur hlotið einróma lof gagnrýnenda.
Myndin var sú síðasta sem leikarinn Luke Perry lék í.
Sonur Luke
Perry, Jack Perry,
mætti á frumsýn-
inguna. Í tengslum við
útgáfu kvikmyndarinnar
kleif hann auglýsinga-
skilti sem á var mynd
af föður hans.
Íslands-
vinurinn Eli Roth mætti á frumsýning-una en hann hefur átt farsælt samstarf við Tarantino í gegnum
tíðina.
Hæfileikar, útlit og heppni geta
haft mikið um að segja um hvernig
fólki tekst að fóta sig á frægðar-
brautinni í Hollywood en dæmin
sanna að fátt er þó jafn mikilvægt
og nöfnin sem fólk ber. Foreldrar
hafa líklega sjaldnast frægðar-
drauma barna sinna í huga þegar
þeim eru valin nöfn, þannig að
löngum hefur tíðkast að fólk breyti
eða skipti alfarið um nafn til þess
að koma sér áfram í Hollywood.
Mikilvægt er að nýja nafnið sé
grípandi og festist strax í minni
áhorfenda. Hér eru nokkrar
stjörnur sem breyttu um nafn með
góðum árangri.
n Blake Lively Leikkonan sem er
þekktust fyrir þættina Gossip
girl heitir vissulega Blake en hún
var skírð Blake Ellender Brown
en ekki Lively sem er vissilega
miklu líflegra.
n Lily James Breska leikkonan sem
fór með hlutverk Öskubusku var
skírð Lily Chloe Ninette Thom-
son. Lily James er óneitanlega
töluvert þjálla nafn.
n Helen Mirren
Drottningin sjálf,
Helen Mirren, er af
rússneskum ættum
og heitir Ilyena Lydia
Mironoff. Helen
Mirren er því
ágætis ensk
útgáfa af
nafni hennar.
n Chevy Chase Skírnarnafn grínist-
ans er Cornelius Crane
Chase en ekki Chevy.
Cornelius Crane hefði
samt getað virkað
fullkomlega sem
listamanns-
nafn.
n Mila Kunis
That 70's Show leikkonan Mila
Kunis er í raun úkraínsk og heitir
Milena Markovna Kunis.
n Audrey Hepburn Heimildum ber
ekki saman um hvert raunveru-
legt skírnarnafn stórleikkonunar
Audrey Hepburn er en talið er að
skírnarnafn hennar hafi annað
hvort verið Audrey Kathleen
Ruston eða Edda Van Heemstra.
n Cary Grant Breski sjamörinn
Cary grant var skírður Archibald
Alexander Leach.
Fleiri stjörnur með önnur nöfn:
n Kirk Douglas - Issur Danielovitch
Demsky
n Natalie Wood - Natalia Nikola-
evna Zakharenko
n John Wayne - Marion Robert
Morrison
n Judy Garland - Frances Ethel
Gumm
n Elizabeth Banks - Elizabeth Irene
Mitchell
n Jodie Foster - Alicia Christian
Foster
Nú skulum við segja
hvað við heitum!
Kvikmyndahornið
Edda Karítas Baldursdóttir
eddakaritas@frettabladid.is
2 4 . J Ú L Í 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R20 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
LÍFIÐ
2
4
-0
7
-2
0
1
9
0
4
:5
5
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
7
7
-8
E
6
4
2
3
7
7
-8
D
2
8
2
3
7
7
-8
B
E
C
2
3
7
7
-8
A
B
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
4
0
s
_
2
3
_
7
_
2
0
1
9
C
M
Y
K