Fréttablaðið - 24.07.2019, Síða 38
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jóhanna Helga Viðarsdóttir johannahelga@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Svava O’Brien svava@frettabladid.is, Örn
Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage
johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is. FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Benedikt Bóas Hinriksson
benediktboas@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is
ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is, Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is
Bréfdúfnafélag Íslands var stofnað 2009 á grunni Dúfnaræktar-s a mba nd s Ísla nd s . Ragnar Sigurjónsson segir tilgang félagsins
fyrst og fremst að ef la bréfdúfna-
rækt á landinu og standa fyrir kapp-
flugi þessara merkilegu fugla sem er
eðlislægt að rata alltaf heim.
„Því miður er ekki hægt að segja
að þetta sé stór hópur sem stundar
bréfdúfnasportið, eins og við köll-
um það,“ segir Ragnar sem vonast
til þess að úr þessu rætist þar sem
áhuginn á bréfdúfunum sé þrátt
fyrir allt talsverður.
Þannig eru 1.887 manns skráðir
í Facebook-hópinn Dúfnaspjallið
þótt mun færri en þeir rækti dúfur
og tefli þeim fram í kappflugi. Hann
segir sportið engu að síður henta
fólki á öllum aldri og hver og einn
geti ráðið því hversu miklum tíma
og peningum hann eyði í dúfurnar.
Upp, upp, mín fiðraða sál
Ragnar segir bréfdúfnasportið sér-
staklega geðbætandi og hafa góð
áhrif á sálarlífið. „Fyrst og fremst
vegna þess að þegar þú ferð út í kofa
þá er þar engin önnur truflun. Þú ert
náttúrlega ekki með síma eða neitt
og ert bara þarna að hreinsa til og
spá og spekúlera í fuglunum. Og svo
er endalaust hægt að dást að þeim
þegar þeir f ljúga um loftin blá.“
Ragnar bendir einnig á að sjálf-
sagt og eðlilegt sé að tala við fuglana
og hann efast ekki um að þær sam-
ræður geri bæði manni og fuglum
gott. „Maður gerir þetta sérstaklega
á varptímanum og þegar maður
byrjar að handfjatla ungana. Ég
held að þetta hafi róandi áhrif á
fuglana en allt ræðst þetta af því
hversu miklum tíma þú eyðir með
þeim í kofanum og þeir læra að
treysta þér betur eftir því sem þú
ert meira hjá þeim.“
Fréttaritarar háloftanna
Bréfdúfan á sér langa sögu og ætla
má að eðlisgáfur hennar og hæfi-
leikar ráði miklu um að þær vekja
forvitni og áhuga fólks. Ragnar segir
að þeir sem til þekkja viti að dúfur
eru gáfuð dýr auk þess sem þær geti
lært mikið, bæði af eigin reynslu og
eigendum sínum.
„Bréfdúfur eru í raun einn elsti
fiðraði vinur mannsins og hafa
fylgt honum öldum saman,“
segir Ragnar og minnir einn-
ig á mikilvægi bréfdúfnanna
í fjarskiptum fyrri alda. Fyrir
utan vitaskuld að þær voru
fyrstu fréttaritarar Júlíusar
Reuters á 19. öld.
Hrakningar á
Íslandsmeistara-
móti
B r é f d ú f u r n a r
keppa sumar-
langt í kapp-
f lugi í tveimur
f lokkum, full-
o r ð i n n a o g
u ng a . Keppn i
þeirra eldri fékk
þó óvæntan endi fyrir
nokkrum vikum þegar
vont veður feykti sumum
þeirra langt af braut og
þótt f lestar hafi þær að
lokum ratað heim er svo
af þeim dregið að meira
verður ekki lagt á fuglana í sumar.
Ungarnir eru hins vegar enn í
toppformi og halda keppni áfram á
laugardaginn.
Féll fyrir brúðkaupsdúfum
„Ég byrjaði ungur í þessu en hætti
í nokkur ár þegar ég fór að eldast,“
segir Ragnar sem rataði þó
aftur til baka og áhuginn
vaknaði á ný eftir að hann
flutti austur fyrir fjall fyrir
tólf árum.
„Þetta byrjaði þannig
að ég hafði séð í bíómynd
og á netinu hvítum dúfum
sleppt í brúðkaupum.
Ég held þetta sé ein-
hver amer ísk ur
siðu r og m ig
langaði rosalega
að vita hvort ég
gæti komið mér
upp hv ít u m
dúfum og gert
þet t a hér na
heima. Og hef
ver ið í þessu
síðan og þetta er
svona hliðarbú-
g r e i n ,“ s e g i r
R ag nar sem unir
sér vel í félagsskap
hinna fiðruðu boð-
bera friðar og frétta.
toti@frettabladid.is
Bréfdúfur eru góðir
og gáfaðir félagar
Keppni fullorðnu fuglanna á Íslandsmóti bréfdúfna fékk skjótan
endi eftir ófyrirsjáanlega hrakninga. Ragnar Sigurjónsson segir
sorglega fáa stunda geðbætandi dúfnasportið sem henti öllum.
BRÉFDÚFUR ERU Í
RAUN EINN ELSTI
FIÐRAÐI VINUR MANNSINS OG
HAFA FYLGT HONUM ÖLDUM
SAMAN.
Merkilegir fuglar
n Fullvaxin dúfa hefur um 10.000
fjaðrir.
n Vitað er um dúfur sem lifað hafa
í 30 ár.
n Dúfur geta slegið vængjum sín-
um allt að tíu sinnum á sekúndu.
n Dúfur geta náð hjartslætti upp
á 600 slög á mínútu og haldið
honum í allt að 16 klukkustundir
án hvíldar.
n Dúfur hafa þann einstaka eigin-
leika fyrir fugl af sinni stærð að
geta flogið beint upp.
n Bréfdúfur fljúga að jafnaði á 80
til 100 kílómetra hraða.
n Mesti hraði á bréfdúfu sem
vitað er um og mælst hefur er
148 kílómetrar á klukkustund,
það gerir 2.481 metra á mínútu.
n Vitað er um bréfdúfur sem
flogið hafa rúma 1.120 kíló-
metra á einum degi.
n Milljónir fólks út um allan heim
stunda kappflug með bréfdúfur.
n Pólland er eitt af fáum löndum
þar sem fólki fjölgar í sportinu.
Ragnar Sigurjónsson segir endalaust hægt að dást að bréfdúfum á flugi og vonast til þess að fjölga muni í bréf-
dúfusportinu. Pólverjar hafi helst verið að bætast í hópinn og þeir komi með mikla þekkingu frá heimalandinu.
Ragnar
segir þá sem til
þekkja vita að
dúfurnar eru
eðlisgreind dýr.
2 4 . J Ú L Í 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R22 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
> Loksins, loksins er Myllu smáar-kökur komnar
með karamellu og lakkrís. Núna er tilefni til
að gera sér ferð út í búð og grípa með sér nýju
karamellu og lakkrís kökurnar strax í dag.
Smakkaðu nýju silkimjúku
karamellu-lakkrís kökuna strax í dag
Þær eru fjórar saman í pakka
„Vinnum að’í“
- að gera enn betur
Nýtt !
Fleiri Myllu sm
áar-kökur
í boði
fyrir útileguna
mmm þú ba
ra verður ...
> Fjórar saman í pakka. Nýju karamellu
og lakkrís kökurnar í viðbót við möndlu-,
súkkulaði- og karamellukökurnar.
Bragðaðu þær
strax í dag.
Fjórar saman
í pakka
Myllan hefur bakað fyrir Íslendinga í 60 ár.
> myllan.is
cw190085_Myllan_SmáKökur_KaramLakkrís_dagbl2dx38_20190624_END.indd 1 15.7.2019 14:33:09
2
4
-0
7
-2
0
1
9
0
4
:5
5
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
7
7
-7
A
A
4
2
3
7
7
-7
9
6
8
2
3
7
7
-7
8
2
C
2
3
7
7
-7
6
F
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
4
0
s
_
2
3
_
7
_
2
0
1
9
C
M
Y
K