Fréttir - Eyjafréttir

Tölublað

Fréttir - Eyjafréttir - 15.06.2015, Blaðsíða 6

Fréttir - Eyjafréttir - 15.06.2015, Blaðsíða 6
6 Eyjafréttir / Miðvikudagur 15. júlí 2015 Aldrei hafa fleiri farið með Herjólfi í einum mánuði en í nýliðnum júnímánuði. Voru farþegar 48.781 í ár sem er fjölgun um 2000. Ekkert lát er á straumi fólks til Eyja það sem af er þessum mánuði og nú er staðan sú að erfitt er að fá pláss í Herjólfi. Mikið hefur verið rætt um þessa stöðu á samskipta- miðlum og fjölmiðlum. „Það gengur ekki að álagið á Herjólf sé orðið slíkt að heimamenn geti ekki notað skipið þegar á þarf að halda, þetta er vegurinn heim til okkar og frá okkur,“ segir Elliði Vignisson, bæjarstjóri við Morgunblaðið og bendir á að einfaldast sé að sigla skipinu fleiri ferðir á milli lands og Eyja. Við þessu hefur verið brugðist að hluta og fer Herjólfur sex ferðir tvo daga í viku. Gunnlaugur Grettisson, rekstarstjóri Herjólfs, kannast við umræðuna og er ánægður með góða nýtingu á skipinu en kemur til greina að fjölga ferðum enn frekar? „Já, það kemur til greina en umfram sex ferðir á dag er erfitt við að eiga því þá daga, þegar mest er að gera, eru ákveðnar ferðir vinsælli en aðrar eins og gengur. Flutnings- geta Herjólfs á venjulegum fimm ferða degi er mikil en þá getum við flutt til Eyja um 2000 farþega sem er rétt tæplega helmings viðbót við íbúafjölda Vestmanneyjar og 250 til 300 bíla til Eyja og samt eru biðlistar. Vegagerðin og Eimskip sameinuð- ust um það í sumar að bæta við sjöttu ferðinni alla föstudaga og sunnudaga og að auki hafa verið sigldar fleiri aukaferðir aðra daga í sumar en áður hefur verið gert svo sem í tengslum við Goslok og Orkumótið,“ sagði Gunnlaugur en hvað má Herjólfur taka marga farþega? „Samkvæmt farþegaleyfi má Herjólfur taka 391 farþega í reglulegri áætlun.“ 391 farþegi í reglulegri áætlun Þegar Gunnlaugur er spurður að því hvort hægt sé að fjölga farþegum með því að hafa fleiri í áhöfn segir hann það ekki sjálfkrafa ávísun á heimild til að flytja fleiri farþega. „Ekki er hægt að fá heimild til að sigla með fleiri farþega en 391 í reglulegri áætlun en s.s. í tengslum við Þjóðhátíð hefur verið gefin út undanþága til að flytja 530 farþega í ferð. Þá er gerð krafa um 17 manna áhöfn í stað tólf sem við auðvitað uppfyllum. Í sumaráætlun erum við þó alltaf með fleiri en tólf í áhöfn alla daga til að þjónusta betur farþega skipsins.“ Prýðileg samvinna Er góð samvinna milli ykkar og bæjarstjórnar og fólks í ferðaþjón- ustu? „Já, prýðileg samvinna án þess að verið sé að setjast formlega yfir málið reglulega. Allir þessir aðilar, Eimskip, bæjarstjórnin, aðilar í ferðaþjónustu og svo Vegagerðin eru með sama markmið þ.e. að samgöngur milli lands og Eyja verði sem öruggastar í öllum skilningi þess orðs,“ sagði Gunn- laugur. „Auðvitað sér hver hópur verkefnið út frá sínum bæjardyrum og mögulega aðeins misjafnar leiðir sem hver vill fara en í grunninn eru allir sammála. Landeyjahöfn þarf að virka eins og að var stefnt. Það er sannarlega verkefni bæjarstjórnar að þrýsta á bættar samgöngur og það hefur verið haldið uppi þéttri pressu á öllum aðilum, það get ég staðfest. Ferðaþjónustan, þ.m.t. við hjá Eimskip/Herjólfi, vill fá sem allra flesta ferðamenn til Eyja en það hefur eins og sést hefur í fjöl- miðlum sl. vikur örugglega óþægindi í för með sér fyrir einhverja þar sem skipið er oft fullt bæði fyrir bíla og einnig stundum farþega. Einkum í morgunferðir til Eyja og eftirmiðdagsferðir frá Eyjum. Ég tel þó að það sé mikilvægt fyrir samfélagið í Eyjum að ferðaþjónustan vaxi og dafni áfram eins og hún hefur verið að gera. Það bætir bara okkar góða samfélag enn frekar.“ Skilja bílinn eftir Gunnlaugur bendir á þann mögu- leika að skilja bílinn eftir í Landeyjahöfn. „Við þurfum að hvetja fólk til að skilja bílinn eftir í Landeyjahöfn og ganga, hjóla eða nýta sér góða akstursþjónustu Víking Tours og Eyja Tours hér í Eyjum. Og einnig hvetja fólk til þess að koma til Eyja seinni part dags, fara út að borða, skoða söfnin, fara í golf, í bátsferð eða hvað eina sem hér er hægt að gera því af nógu er að taka. Gista svo og fara aftur frá Eyjum um miðjan daginn daginn eftir. Þar eru sóknarfæri í þessu fyrir okkur öll,“ sagði Gunnlaugur að endingu. Herjólfur :: Metflutningar í júní :: Erfitt að fá pláss :: Eyjamenn segjast ekki komast á milli: Getur flutt um 2000 farþega og 250 til 300 bíla til Eyja og samt eru biðlistar :: Þetta miðast við fimm ferðir á dag :: Sex ferðir tvo daga í viku :: Fleiri aukaferðir en áður :: Fjölgun í áhöfn ekki ávísun á leyfi fyrir fleiri farþegum :: Undanþága um þjóðhátíð Ómar GarðarSSon omar@eyjafrettir.is Vestmannaeyjahlaupið verður haldið laugardaginn fimmta september nk. og er ekki seinna vænna að hefja undirbúning. Sigmar Þröstur Óskarsson, fyrrum markmaður ÍBV, landsliðsins í handbolta og ofurskokkari bendir fólki á æfingaplan sem Rannveig Oddsdóttir hefur sett saman. Annars vegar fyrir þá sem eru að byrja og hins vegar fyrir lengra komna og miðast það við tíu kílómetra hlaup. Gert er ráð fyrir þremur æfingum í viku, á þriðjudögum klukkan 12.00 til 12.45, fimmtudögum kl. 17:30 og á laugardögum kl. 10.00 en hver og einn getur að sjálfsögðu raðað þeim á vikuna eftir eigin hentug- leika. Þrjú skipti í viku er hæfilegt fyrir flesta sem eru að byrja en sumir þola þó að bæta við fjórða skiptinu. Til að auka fjölbreytni og minnka hættu á meiðslum er frekar mælt með að ganga, synda, hjóla eða stunda aðra hreyfingu ef fólk vill æfa oftar en þrisvar í viku. Fyrir byrjendur er mælt með þriggja til fimm kílómetra göngu eða skokki þrisvar í viku. Gott er að hlusta á líkamann. Það er eðlilegt að vera þreyttur eftir æfingar og strengir eftir fyrstu æfingarnar eru eðlileg viðbrögð líkamans við nýrri og aukinni hreyfingu. Það er öllu stífara prógrammið fyrir lengra komna og er ætlað þeim sem hafa verið að hlaupa, ráða vel við að hlaupa sjö til átta km og hafa hlaupið 10 km. áður. Gert er ráð fyrir fjórum æfingum í viku, frá fimm upp í sjö km og þar af einni svolítið erfiðri æfingu þar sem tekið er vel á. Hér er reiknað með að mánudagar, þriðjudagar, fimmtudagar og laugardagar séu hlaupadagar. Gott er að taka aðra hreyfingu með tvisvar í viku en hvíla a.m.k. í einn dag. „Svo er bara að mæta á æfingar og vera klár í Vestmannaeyjahlaupið eftir sex vikur,“ segir Sigmar Þröstur. Sigmar Þröstur í Vestmannaeyja- hlaupinu í fyrra sem var það fjórða í röðinni. Alls tóku 120 hlauparar þátt í því. Vestmannaeyjahlaupið :: Nauðsynlegt að byrja að æfa sig: Heppilegt æfingaplan fyrir þá sem stefna á 10 kílómetrana

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.