Fréttir - Eyjafréttir

Tölublað

Fréttir - Eyjafréttir - 12.04.2017, Blaðsíða 9

Fréttir - Eyjafréttir - 12.04.2017, Blaðsíða 9
9Eyjafréttir / Miðvikudagur 12. apríl 2017 einhver haldi að þetta sé athyglis- sýki“. Shakespeare toppurinn Sæbjörg og Ragga létu til sín taka í Leikfélagi Vestmannaeyja. Ragga segir „toppinn“ hafa verið þegar þær vinkonurnar léku í Ofviðrinu eftir Shakespeare. ,,Ég lék Miröndu en Sæbjörg Ariel álf. Þetta var mjög þungt verk. Við vorum ungar og hlógum mikið af öllum skrýtnu orðunum en við gerðum þetta eins vel og við gátum. Ég þurfti að hlaupa í gegnum allan salinn hrópandi faðir minn, já maður var þorinn á þessum tíma,“ segir Ragga sem engu hefur gleymt. Áreynslu- laust rennur texti Shakespeare frá henni ,,Faðir minn hafi kyngikraftur kallað á brimsins gný þá hastið á hann ...“. Myndlistarsýningar Röggu eru tíu talsins. ,,Ég hef verið með tvær sýningar í Eyjum. Sú fyrri var á þrítugsafmælinu mínu en sú síðari ásamt Bjartmari vini mínum Guðlaugs á goslokahátíð 2014. Ég er ekki að mála bara til að mála, það kemur eitthvað yfir mig sem kallast listagyðja eða -andi. Ég er bara komin með pensilinn í hönd og ég myndi lýsa þessu eins og nokkurs konar maníu án sjúkdóms- ins. Ég áorka rosalega miklu og er fókúseruð. Eftir á er svo bara eðlileg þreyta eftir mikla törn en að hafa komið tilfinningunum frá mér á strigann er stórkostleg.“ Ragga heldur áfram að útskýra listsköpun sína. ,,Ég upplifi svo mikið af litum í höfðinu á mér og ég upplifi tilfinningar í litum. Ég hef alltaf verið frekar lokuð á það sem tengist mér persónulega en opin á annan hátt. Ég hef tamið hugann þannig að ég vinn úr öllu jafn óðum og tengi allar upplifanir við tónlist. Ég áttaði mig ekki á því hvernig ég hefði getað auðveldað mér hlutina fyrr ég fór að mála himininn fyrir pabba. Ég fann léttinn og í staðinn fyrir að pína mig í að tala þá tjáði ég mig með litum.“ Listin er andleg ,,Ég fæddist greinlega með þessa liti. Ég veit nákvæmlega hvaða litum ég þarf að blanda saman til að fá akkurat litinn minn. Suma litina sé ég ekki einu sinni í náttúrunni en kann að búa þá til. Æ, það er erfitt að útskýra þetta. Ég hafði aldrei málað fyrr en ég keypti þennan stóra striga. Ég er engin teiknari, ég er málari. Ég hef engan áhuga á að gera þetta að starfi enda get ég bara málað þegar kallið kemur. Ég gæti ekki málað ef þetta færi að snúast um kvöð og peninga, þá er tilfinningin farin og hún er ástæðan. Þetta snýst ekki um neitt annað en að losa tilfinningar.“ Hefur Ragga lært eitthvað í myndlist? ,,Ég tók eina önn, ég mátti ekki mála landslag. Mér var sagt að gera eitthvað nýtt sem ég og reyndi. Ég málaði epli og það tóku allir andköf þegar þeir sáu það, enginn hafði séð jafn ljótt epli á ævinni,“ segir Ragga alvarleg. ,,Að mínu mati hefur listin ekkert með menntun að gera, hún kemur innan frá, hún er andleg. En þú getur alltaf sótt þér þekkingu og tækni með því að fara í skóla. Hvort ég eigi eftir að læra meira hef ég ekki hugmynd um. Ég er búin að þróa minn stíl og er sátt við hann. Það eina sem ég þarf að koma frá mér eru litirnir.“ Féll niður af Hánni Ragga hefur alla tíð verið hraust og með sterkan líkama. Hún þufti þó óvænt að fara í stóra aðgerð á baki í fyrra til þess að koma í veg fyrir lömun. Mænan var klemmd á þremur stöðum og það var enginn mænuvökvi þar sem klemmurnar voru. Ragga tekur skýrt fram að hún sé ekki meiri nagli en hver annar og finnst veikindin sem hún lenti í ekki vera meira en hjá hverjum öðrum.“ ,, Ég datt sem barn niður af Hánni. Var að klifra með Sæbjörgu sem horfði á eftir mér hrapa niður. Við vorum sex ára og vorum alltaf að klifra upp í einhvern helli. Við máttum að sjálfsögðu ekki vera þarna en börn í Eyjum voru svo frjáls. Við fórum ofar og ofar þar til við tókum eftir því að húsin fyrir neðan okkur voru öll pínulítil og við áttum í vandræðum með að komast niður. Ég man ekki eftir fallinu en ég datt sem betur fer í einhverja sandgryfju sem snýr að Spröngunni.“ Ragga var flutt með hraði á sjúkrahús mikið skorin í andliti, með heilahristing og mikil uppköst. ,,Ég var mynduð fyrir ofan brjóst og eðlilega einblíndu læknarnir á höfðuðáverka. Ég kvartaði aldrei um bakverk. Þegar ég kom heim af spítalanum gáfu mamma og pabbi mér hjól með rósakörfu. Ég átti í erfiðleikum með jafnvægið til að byrja með og datt alltaf af hjólinu á hliðina. Það gerðist líka þegar ég sat. Ég var ekki lengi á spítalanum en var viðloðandi hann vegna uppkasta tengdum heilahristingn- um. Ég hef aldrei verið bakveik, spilaði fótbolta og tók þátt í öllu sem ég vildi.“ Hefði getað endað í hjólastól ,,Það fá flestir verk í mjóbakið eða þreytu. Ég fór að fá bakverki en ekki mjög alvarlega að mér fannst. Ég fór til kíropraktos í átta mánuði sem leiðrétti hryggskekkju sem ég hafði áunnið mér með annarri líkamsbeitingu eftir fallið. Í ljós kom svo eldgamalt bakbrot, mjög sennilega eftir fallið. Ég var hjá nuddara og öðrum heilusnudd- meistara sem bæði notaði á mig nálar og teipaði mig alla. Ég hélt bara að líkaminn væri að aðlaga sig og sá ástandið ekki í réttu ljósi,“ segir Ragga og virðist hissa á eigin viðbrögðum. ,,Ég gerði ekkert meira fyrr en Begga yfirmaðurinn minn skipaði mér að hringja í lækni. Ég grét af sársauka sem var engan veginn eðlilegt og gat stundum ekki gengið. Ég hringdi í heimilislækni minn sem sendi mig í röntgen og þaðan beint í segulómum. Hlutirnir gerðust hratt í kjölfarið og ég var komin í bráðaaðgerð stuttu seinna. Mænuvökvinn var þornaður upp á ákveðnum stöðum og ef ekkert hefði verið að gert hefði ég getað endað í hjólastól. Það var mikill sársauki sem fylgdi þegar mænu- vökvinn komst þar sem áður voru hindranir.“ ,,Mamma var kletturinn minn í þessu verkefni. Ég veit hún tók þetta nærri sér þó að ég hafi búið yfir stóískri ró yfir þessu öllu saman. Hún mætti í bæinn og sá um Rögguna sína. Ég þurfti stundum að minna hana á að ég væri orðin 39 ára. Ég náði mér á stuttum tíma eftir aðgerðina. Ég var með tvö mein í bakinu, annað er búið að laga en mjóbakið er illa farið. Það verður að koma í ljós hvernig og hvenær verður unnið með það. Ég finn ekki mikið til en ég viðurkenni það núna að verkirnir fyrir aðgerð voru mjög miklir.“ Aldrei hunsa verki Ragga hefur þurft að aðlaga sig að breyttum aðstæðum. ,,Ég get gert allt sem ég þarf að gera í dag. Ég gat staðið í 12 til 14 tíma samfellt og málað. Þegar ég málaði í fyrsta sinn eftir aðgerðina kom í ljós að ég varð að breyta um aðferð. Ég þarf að hvíla mig vel og mörgum sinnum á milli. Nú tek ég mér pásur og held svo áfram, það stoppar samt ekki flæðið.“ Nú verður Ragga alvarleg og segir með þunga: ,,Ég er búin að læra að hlusta á líkamann og ég mun aldrei hunsa verki aftur. Ég lærði mína lexíu og hafði gott af því. Það á að taka á hlutunum og það er ólíkt mér að treysta ekki eigin tilfinningu. Ég hlusta á og tek rökum en varðandi bakið hlustaði ég ekki. Ég er alveg búin að skamma mig fyrir þetta en líka fyrirgefa.“ Gæran er vinalaus Gæran er karakter sem Ragga skapaði til gamans á snapchat ,,Gæran er snarbiluð. Hún er ekki alveg farin, hún kemur stundum þegar það eru landsleikir. Gæran er sjúk í fótboltamenn,“ segir Ragga með sérstökum gærusvip. ,,Mér finnst gaman að ímynda mér týpur. Gæran er vinalaus en telur sér og öðrum trú um að hún sé alltaf með fræga fólkinu og allir sé að eltast við hana. Algjör firra auðvitað.” Ragga heldur áfram: ,,Sýndar- mennsku lít ég á sem minnimáttar- kennd. Ég er búin að stúdera mannlegt eðli frá því ég man eftir mér. Gæran upphefur sjálfa sig vegna minnimáttarkenndar og reynir þannig að fylla upp í tómarúmið. Það er ekki sátt fólk sem rótar í annarra manna görðum í leit að arfa. Af hverju leitar það ekki að arfa í sínum garði?“ Ragga telur að lífsýn hennar mótist af viðhorfum foreldra hennar. ,,Ég heyrði pabba aldrei hallmæla nokkrum manni. Það var ekki neikvætt tal á mínu æsku- heimili né garg, öskur eða blótsyrði. Það veitti mér lífsgleði. Uppeldi hefur gríðarlega mikið að segja, að alast upp á jákvæðu heimili er blessun og gott veganesti. Við mótuðumst af góðu og jákvæðu umhverfi. Okkur var kennt að rétt skal vera rétt og við áttum að standa á okkar en alltaf að vera sanngjörn. Það þarf tilfinningar í uppeldi, ekki leiðbeiningar úr bókum.“ Ef ég kynnist manni með fimm börn ,,Lífsmottóið mitt er að lifa í núinu, njóta og leyfa hlutunum að gerast. Allir hafa væntingar en við megum ekki ganga of langt. Við eigum fyrst og fremst að vera heiðarleg gagnvart sjálfum okkur og öðrum. Þú þarft að elska sjálfan þig svo þú sért fær um að elska aðra. Að næra sjálfið og hrósa því er besta gjöfin sem maður gefur sjálfum sér.“ ,,Ég er einhleyp og hef enga þörf fyrir að leita mér að maka en ef ég hitti einhvern þá bara gerist það. Það sama á við um barneignir sem ég er margspurð um. Ég elska börn og á systkinabörn sem ég dýrka, elska og dekra í döðlur. Ég hef aldrei spáð í það að nú þurfi ég að fara að eignast barn eða hvað þau ættu að vera mörg. Ekki það að mig langi ekki í barn. Ef ég eignast barn þá gerist það. Ef ekki þá mun ég aldrei gráta það. Ef ég kynnist manni sem á fimm börn þá er það ekki neinn „pakki“ heldur bónus.“ Ragga heldur áfram af eldmóði: ,,Það eru margir staðsettir í boxum og römmum sem halda að lífið snúist um að ná sér í maka, barneignir, menntun og húsnæði. Það er ekki fyrir mig og þess vegna er ég ekki að sýta eitthvað sem á kannski ekki að vera. Ég er hamingjusöm og hef engar reglur nema að taka ekki þátt í nei- kvæðni.“ ,,Lífið er núna, njótið“ Áfram heldur Ragga að ausa úr viskubrunni sínum. ,,Það glíma allir við eitthvað. Það má aldrei gera lítið úr erfiðleikum annarra. Við eigum að sýna samkennd af einlægni. Við erum missterk og eigum að taka tillit til þeirra sem standa höllum fæti.Við fæðumst öll með einhverjar náðargjafir og öll erum við með bresti. Spurningin er bara hvort og hvernig við nýtum það sem við höfum.“ ,,Við höfum alltaf val og jákvæðni skipar stóran sess. Það hafa allir gott af því að fara í sjálfsskoðun reglulega og sofna ekki á verðinum gagnvart sjálfinu. Ég geri það og fer mildari höndum um sjálfa mig en áður fyrir vikið.“ Að lokum biður Ragga að heilsa öllum Eyjamönnum og óskar þeim góðs gengis í lífsins amstri. Hún hlakkar til að kíkja heim og er með ein skilaboð að lokum: ,,Lífið er núna, njótið.“ Ragga og fjölskyldan. Helga Björk (systir) og Eyþór (mágur) með synina Kristján Ægi, Þórð Ými og Benedikt Þór. Harpa Rútsdóttir (móðir), Kiddi (bróðir) með Öldu (mágkonu) og sonur þeirra Bjarni Rúnar. Á myndina vantar georg Þór, eldri son Kidda og Lilju (systur), Halla (mág) og dóttur þeirra Amy. ,,gæran“ á jólunum heima hjá mömmu. Lífsmottóið mitt er að lifa í núinu, njóta og leyfa hlutunum að gerast. Allir hafa væntingar en við megum ekki ganga of langt. Við eigum fyrst og fremst að vera heiðarleg gagnvart sjálfum okkur og öðrum. Þú þarft að elska sjálfan þig svo þú sért fær um að elska aðra. Að næra sjálfið og hrósa því er besta gjöfin sem maður gefur sjálfum sér. ”

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.