Fréttir - Eyjafréttir - 12.04.2017, Qupperneq 14
14 Eyjafréttir / Miðvikudagur 12. apríl 2017
Það angraði ekki nokkurn einasta
mann, sem gekk út að lokinni
frumsýningu Leikfélags Vestmanna-
eyja á verkinu Sex í sveit, að það
rigndi yfir prúðbúna leikhúsgestina.
Það var sama hvert okkur Kolbrúnu
Hörpu Kolbeinsdóttur leik(hús)
félaga mínum var litið, allstaðar
mættu okkur brosandi andlit sem
mörg hver voru enn að rifja upp
atriði úr verkinu og enginn lét
regndropana spilla fyrir sér gleðinni
sem þau höfðu upplifað klukku-
stundirnar á undan.
Sex í sveit sáum við Kolbrún
Harpa fyrst á sviði í kringum
síðustu aldamót þegar Leikfélag
Reykjavíkur ferðaðist með
uppfærsluna hingað til Eyja. Þar
fóru leikararnir Edda Björgvins og
Gísli Rúnar algjörlega á kostum
ásamt öðrum, enda varð verkið eitt
hið vinsælasta frá upphafi hjá LR
og sýnt í heil þrjú ár.
Þetta er hraður farsi sem gerist í
sumarbústað hjónanna Benedikts og
Þórunnar sem þau hafa snyrtilega
útbúið sér í gömlum súrheysturni.
Rómantísk helgi fjarri heimilinu og
lygar sem í upphafi virðast ekkert
svo flóknar, verða það hinsvegar
þegar inn í söguna blandast viðhöld,
veisluþjónustukokkur og eigin-
maður hennar. Þetta er farsi eins og
þeir gerast bestir, uppfullur af
endalausum misskilningi, vand-
ræðagangi, hagræðingu sannleik-
ans, orðaleikjum og því sem mestu
máli skiptir, sprenghlægilegum
húmor.
Algjör veisla
Maður græðir ýmislegt á því að
vera reglulegur gestur í leikhúsum
úti á landi. En fyrir utan það að fá
að njóta allskonar leikhúsverka í
góðum félagskap, hlæja eða gráta
nema hvort tveggja sé, þá á
stundum gefast manni tækifæri að
sjá unga og óreynda leikara stíga
sín fyrstu skref á leiklistarsviðinu.
Samfara því fáum við svo að
fylgjast með þessum sömu leikurum
vaxa og dafna með hverju hlut-
verkinu sem þeir takast á hendur og
hrífast svo mjög að við liggur að
manni vökni um augun af stolti...þó
maður eigi nákvæmlega ekkert í
neinum á sviðinu. Og þó byrjanda-
hlutverkin séu ekki endilega stór í
sniðum, margorða eða fyrirferðar-
mikil þá er maður orðinn ansi
lunkinn við að koma auga á þá
einstaklinga sem í sínum fyrstu
hlutverkum virðast hafa þetta
,,eitthvað” sem þarf til að geta náð
lengra á sviði leiklistarinnar. Eins
fáum við að sjá þá, sem vöktu
kannski litla athygli í sínu fyrstu
verkum, allt í einu blómstra á
sviðinu þannig að maður hálf gapir
af undrun yfir framförunum.
BIRTA MARINÓSDÓTTIR leikur
Þórunni. Ég hef áður nefnt í þessum
pistlum mínum að Birta hafi andlit
fyrir sviðið og stend við það. Þrátt
fyrir ungan aldur er Birta ein af
reynsluboltunum á sviðinu að þessu
sinni. Hún er alltaf eftirminnileg
sama í hvaða hlutverki hún er,
algjört sjarmatröll, bráðskemmtileg
og með allt sitt á hreinu. Hún passar
einkar vel í hlutverk Þórunnar og á
auðvelt með að fá mann til að halda
svolítið með henni í samskiptum
hennar við eiginmanninn þó hún
hafi síst minna á samviskunni en
hann.
ÓLAFUR INGI SIGURðSSON
leikur Benedikt en Ólafur er einn af
þessum ungu leikurum LV sem
hefur vaxið með hverju hlutverkinu
sem hann hefur tekist á hendur.
Ólafur virkaði mjög öruggur á
frumsýningunni, líkt og hann hafi
beðið lengi eftir að taka þetta stórt
hlutverk að sér og verið staðráðinn í
að tækla það hundrað prósent. Það
gerir hann líka...og virðist meira að
segja hafa lítið fyrir því.
Hann er þolinmóður strax í fyrstu
innkomu þar sem hann stendur einn
á sviðinu í góða stund og spjallar
við áhorfendur. Hann er sérstaklega
skýrmæltur, gefur sér góðan tíma í
að gera hlutina og gerir þá vel.
Leikræn tjáning var líka með
eindæmum góð hjá honum og oft
sjúklega fyndin. Nægir þá að nefna
sem dæmi ,,hádramatísku“ atriðin í
seinni hluta verksins þar sem Ólafur
fékk leikhúsgesti hreinlega til að
frussa af hlátri.
THELMA LIND ÞÓRARINS-
DÓTTIR leikur Sóleyju. Það er
langur vegur frá síðasta hlutverki
Thelmu, sem hin virðulega
álfadrottning í ævintýrinu um
Benedikt búálf, til hinnar seiðandi
Sóleyjar. Thelma er dásamleg í
túlkun sinni á hinni munúðarfullu
fyrirsætu og ótrúlega örugg þar sem
hún spígsporar um teppalagað
sviðið á háum pinnahælum.
Hún stendur sig í raun ótrúlega vel
miðað við hversu ung hún er. En ef
sessunautar okkar hefðu ekki haft
orð á því að fyrra bragði, þá hefði
okkur aldrei grunað að þarna færi
stúlka aðeins á sautjánda ári.
Thelma hefur háan og skýran
talanda og virðist algjörlega á
heimavelli á leiksviðinu enda á hún
víst ekki langt að sækja leikhæfi-
leikana.
MARGRÉT STEINUNN JÓNS-
DÓTTIR leikur Sólveigu. Ég man
síðast eftir Margréti í hlutverki
Patty Simcox í söngleiknum Grease
sem LV setti upp hér um árið. Ekki
veit ég hvort hún hefur verið
eitthvað viðloðandi leiklistina síðan
þá en hér birtist hún okkur
hinsvegar sem veisluþjónustukokk-
urinn Sólveig.
Margrét er bráðfjörug, mætir full
af sjálfsöryggi á sviðið og ótrúlegt
en satt verður hún bara betri eftir
því sem líður á verkið. Þegar síðan
kemur inn í seinni hluta verksins fer
Margrét hreint og beint á kostum.
Hún er skýr í tali, hressilega
ófeimin án þess að vera alltof ýkt
og hefur góða tilfinningu fyrir
karakternum sínum.
ALExANDER PÁLL SALBERG
leikur Benóný hinn leðurjakka-
klædda og sólbrennda eiginmann
Sóleyjar. Þó hlutverkið sé það
minnsta í verkinu verður það sama
hvorki sagt um túlkun Alexanders á
hlutverkinu né því sem blasir við
áhorfendunum í hvítum, níð-
þröngum gallabuxum persónunnar.
Áhorfendur hreinlega veltust um
af hlátri í sætum sínum um leið og
Alexander Páll sté á sviðið enda
persónusköpunin óaðfinnanleg,
túlkunin frábær og framkoman
þannig að hún heimtar að öll athygli
beinist að honum. Fáar en drep-
fyndnar setningar hittu sannarlega í
mark og magnað hversu frábærlega
vel Alexander fer alltaf með
línurnar sínar svo hvert einasta orð
skilst vel út í salinn.
ALBERT SNÆR TÓRSHAMAR
leikur Ragnar vin Benedikts. Albert
sá ég fyrst á haustsýningu LV í
fyrra þar sem hann fór með lítið
hlutverk en vakti engu að síður
athygli mína fyrir örugga fram-
komu, flottan söng og skýran
framburð. Hér mætir Albert Snær
aftur á sviðið og nú í mun stærra
hlutverki en síðast.
Albert er alveg frábær í persónu-
sköpun sinni og hrikalega fyndinn.
Hann býr yfir mjög góðri framsögn,
virðist ekkert hafa fyrir því að þylja
upp langan texta og dettur ekki eina
sekúndu úr hlutverki sínu... hvort
heldur athyglin er á honum eður ei.
Samleikur hans og Ólafs Inga var á
köflum algjörlega frábær og svo er
bara ekki annað hægt en að minnast
á stjörnusamleik Alberts og
Margrétar Steinunnar.
Fyrsta atriðið þeirra eftir hlé var
sjúklega fyndið enda réðu leikhús-
gestir sér vart fyrir kæti og
klöppuðu þeim lof í lófa eftir að
hafa tekið ítrekuð bakföll og hreint
út sagt grátið af hlátri. Það
hreinlega hlakkaði í mér eftir
frumsýninguna að sjá að grunur
minn um að í Alberti Snæ byggi
flottur leikari, væri á rökum reistur.
Leikstjórinn má vera stoltur
Þetta er fjórða verkið sem Guðjón
Þorsteinn Pálmarsson leikstýrir hjá
LV en jafnframt fyrsti farsinn sem
hann setur upp hjá félaginu. Hann
má sannarlega vera stoltur enda
afraksturinn af þrotlausri vinnu
sjúklega fyndið og vel heppnað
verk. Mín vegna mætti leikfélagið
fá Guðjón aftur til að leikstýra hjá
sér í framtíðinni, því árangurinn af
starfi hans með leikhópnum er að
mínu mati sérstaklega áberandi og
áþreifanlegur í þessu verki.
Hann virðist hafa fengið þessa sex
ungu leikara, sem öll eru að leika
vel uppfyrir sig í aldri, til að vinna
vel í karakterunum og fyllt þau af
svo miklu sjálfsöryggi í hlutverkum
sínum að þau virðast fara, allt að
því, áreynslulaust með rulluna sína.
Verða eitt með karakterunum. Geri
aðrir betur!
Það hefur síðan þann stóra kost í
för með sér, fyrir okkur leikhús-
gesti, að við fáum að gleyma því í
rétt rúmar tvær klukkustundir að
þarna á sviðinu fer fólk sem við, í
þessu litla samfélagi, hittum
reglulega í Krónunni, pósthúsinu
eða á 900 Grillhúsi. Það er
nefnilega eitt að fá Jóa Jóns, sem
allir í bænum þekkja, til að fara
með hlutverk uppá sviði hjá LV. En
að fá alla í bænum til að gleyma
eina örskotstund að þarna fari Jói
Jóns er allt annar handleggur.
Ríkur metnaður lagður
í alla vinnu
Leikstjóranum hefur hinsvegar
tekist nákvæmlega það og frammi-
staða leikarana á sviðinu sannar það
svo um munar. Það gefur okkur,
sem viljum veg bæjarleikhússins
sem mestan, mikið þegar við sjáum
svo ríkan metnað lagðan í alla
vinnu tengda verki sem þessu. Leik-
gerðin var líka skemmtilega útfærð
og handritið bæði staðfært og lagað
að nútímanum með tilvísununum í
snjallforrit og nafnkunna Eyjamenn.
Sviðsmyndin var líka með þeim
flottari sem sést hafa hjá LV og
nokkuð ljóst að þar hefur verið
vandað til verka, þökk sé Guðjóni
leikstjóra, Ragnari Gíslasyni og
Alexander Salberg. Ég var alveg að
kaupa þennan teppalagða og
ledljósa-lýsta súrheysturn með
steyptu útveggjunum.
Ég hef margoft nefnt allt það góða
fólk sem starfar hjá leikfélaginu
bæði við búninga, hár, förðun, hljóð
og mynd en ég má til með að hrósa
þessu fólki enn og aftur.
Flotti búningar
Búningarnir voru æði, sérstaklega
múnderingin á Benóný, náttföt
Ragnars og Benedikts og svo frábær
úrvinnsla á dressinu hennar
Sólveigar þegar hún breytist á fimm
sekúndum úr prúðri þjónustustúlku
í sjóðheita skvísu. Það er síðan ekki
hægt að láta hjá líða að minnast á
bráðskemmtilega og nokkuð
súrealíska notkun á einstaka
leikmunum í verkinu eins og
brauðristina sem sá um tónlistina,
nuddtækið sem reyndist vera sími
og svo sturtublöndunartæki sem
gegndi hlutverki dyrasíma!
Öllum græjunum fylgdu síðan
bráðskemmtileg hljóð sem fengu
leikhúsgesti ítrekað til að skella
uppúr þökk sé Viktori Rittmuller
sem stjórnaði allri hljóðvinnslu og
lýsingu að sinni alkunnu snilld. Ég
hreinlega skora á alla Eyjamenn að
sjá Sex í sveit um leið og ég hvet
aðra landsmenn til að skella sér til
Eyja og eiga frábæra stund í nýju
þægilegu sætunum í hinu glæsilega
leikhúsi okkar Eyjamanna. Það
verður enginn svikinn af því, því
get ég lofað ykkur.
Bravó...Guðjón Þorsteinn og þið öll
hjá Leikfélagi Vestmannaeyja og
hjartanlega til hamingju með þessa
frábæru og vel heppnuðu sýningu.
Takk fyrir mig og okkur,
Helena Pálsdóttir
Helena Pálsdóttir er ánægð með nýjustu uppfærslu LV:
Grátið af hlátri á Sex í sveit
:: Bravó...Guðjón Þorsteinn og þið öll hjá LV og hjartanlega til hamingju með þessa
frábæru og vel heppnuðu sýningu
helena pálsdóttir
áhugaleikhúsrýnir
Leikarar í uppfærslu LV. Efri röð frá vinstri; Margrét Steinunn Jónsdóttir, Birta Marinósdóttir, Thelma
Lind Þórarinsdóttir. Neðri röð: Albert Snær Tórshamar, Ólafur ingi Sigurðsson og Alexander Páll Salberg.
Leikfélag Vestmannaeyja sýnir SEx í SVEit
Höfundur: Marc Camoletti
Þýðing og staðfærsla: Gísli Rúnar Jónsson
Leikstjóri: Guðjón Þorsteinn Pálmarsson
Hljóð og ljósahönnun: Viktor Rittmuller
Sviðshönnun: Guðjón Þorsteinn Pálmarsson