Skessuhorn


Skessuhorn - 05.11.1998, Side 3

Skessuhorn - 05.11.1998, Side 3
agESSlÍHfÍEH FIMMTUDAGUR 5. NÓVEMBER 1998 3 Cilsfjarðarbmin vígb Styttir Vestfjarðaveg um 17 kílómetra Það var létt yftr fólki við Gilsfjörð- inn síðastliðinn föstudag þegar Gils- fjarðarbrúin var formlega tekin í notkun. Mikill mannfjöldi fylgdist með því þegar samgönguráðherra, Halldór Blöndal, klippti á borðann sem strengdur var yfir brúna á miðj- um Gilsfirðinum til marks um að þetta mikla samgöngumannvirki væri formlega tekið í notkun. Að athöfn- inni lokinni bauð Vegagerðin og Reykhólahreppur til kaffisamsætis í félagsheimilinu Vogalandi á Króks- fjarðamesi þar sem konur úr kvenfé- lagi Geiradals sáu um glæsilegar veitingar. Samkór Reykhólahreps söng og fjöldi gesta flutti ávörp. Vegurinn yfir Gilsfjörð, Brunná - Króksfjarðames, styttirVestfjarðarveg um 17,3 km, eða 17,3 erfiða kílómetra eins og Helgi Hallgrímsson vega- málastjóri komst að orði í ræðu sinni. Sjálf brúin er aðeins 65 metrar á lengd en vegurinn um tíu kílómetrar, þar af 3,7 km í sjó. Aðalverktakinn við vegagerðina var Klæðning ehf. en brúargerðina annaðist Viðar hf. Hönn- un og eftirlit var í höndum starfs- manna Vegagerðarinnar. Fram- kvæmdir hófust í mars 1996 og þann 14. júlí 1997 náði vegfyllingin saman yfir fjörðinn og umferð var hleypt á veginn til bráðabrigða síðastliðið haust. Gífurlegt magn af fyllingarefni þurfti í vegagerðina og sem dæmi um stærð- imar nefndi Gunnar Birgisson for- stjóri Klæðningar að í veginn hefðu Jóna Valger&ur Kristjánsdóttir. Sæmundur Kristjánsson oddviti Saurbæjarhrepps. farið 200.000 vömbflshlöss af grjóti og samanlagður akstur væri álíka og þrisvar sinnum vegalengdin til tunglsins. Eins og áður segir er brúin ekki nema 65 m á lengd og þar sem firðin- um er nánast lokað óttuðust margir að brúin hefði áhrif á lífríki fjarðarins. Samkvæmt upplýsingum frá Vega- gerðinni á Isafirði hafa áætlanir um vatnsskiptin gengið eftir þannig að selta í firðinum er nánast sú sama og áætlað var. Einnig kom fram að fugla- líf í firðinum virðist ekki hafa orðið fyrir teljandi áhrifum en við fram- kvæmdimar var tekið sérstakt tillit til amarparsins í Garpsdalsey. Sneri í vestur Það vakti athygli Dalamanna að í á- varpi sínu við opnunina talaði sam- gönguráðherra um áframhaldandi samgöngubætur á Vestfjarðarvegi á næstu átta ámm en minntist ekki einu orði á Bröttubrekku eða aðra vegi í Dalasýslu. Sæmundur Kristjánsson oddviti Saurbæjarhrepps orðaði það svo í sinni ræðu að samgönguráðherr- ann hefði snúið baki í Dalamennina á Gilsfjarðarbrúinni og talað í vestur. Þá bað hann vegagerðarmenn að hanna góðan veg yfir Bröttubrekku á heim- leiðinni þannig að hægt væri að bjóða hann út á mánudag. Þess má hinsveg- ar geta að þegar blaðið fór í prentun í gærmorgun hafði útboðið ekki verið auglýst. Vesturkjördæmi „Við uppgötvuðum það strax í fyrrahaust þegar umferð var hleypt á veginn hve gífurleg breyting þetta er fyrir íbúana hér á svæðinu," sagði Jóna Valgerður Kristjánsdóttir, odd- viti Reykhólahrepps í samtali við Skessuhorn. „Málin hafa þróast þannig á síðari árum að við sækjum þjónustu meira suður í Vesturland- skjördæmi. Okkar skólaskrifstafa er í Borgarnesi, byggingarfulltrúinn í Búðardal og sömuleiðis heilsugæslan og sorplosunin. Þá erum .við aðilar að Heilbrigðiseftirliti Vesturlands og nú er svo komið að það em einungis mál- efni fatlaðra sem við höfum samvinnu um í okkar kjördæmi. I þá áttina hef- ur Gilsfjörðurinn verið aðal farartálm- inn og það sem ferðalangar hafa kvið- ið fyrir. Það má því segja að styttingin sé 2x17 kflómetrar í okkar huga,“ sagði Jóna Valgerður. Aðspurð um hvort Reykhólahreppur ætti fremur heima í Vesturlandskjördæmi sagði hún: „Ég horfi til þess að þessi tvö kjördæmi sameinist í eitt Vesturkjör- dæmi og Gilsfjarðarbrúin er stórt skref í þá átt,“ sagði Jóna Valgerður. Texti og myndir: G.E. Ung stúlka úr Saurbæjarhreppnum Kristný María Hilmarsdóttir a&sto&a&i samgönguráðherra vi& að klippa á bor&ann. Mó&ir hennar Hrefna Sigur&- ardóttir var henni til halds og trausts. i „Mikið lifandis skelfingar ósköp er gaman að sleppa vi& helvítis Gilsfjörö- inn" sungu fjórir kórfélagar úr samkór Reykhólahrepps. Navisioi ancíals H/nktí&kmt'iik jwwwif '•■W* '~*J/ Aldamótín 2000 nálgast nu óð|fluga. Er þítt fyrírtækí í stakk búíð fyrír nýj^ öld? i 1 : ' Navisíon Fínancíals er VVindoWs viðskipta- hugbúnaður sem að sjáífsögðu er reiðubúinn til að takast á víð framtíðina með þér. '&mfö Ipi ra • a tífíitíly íiitt!fíí»« Navision solution center Vesttirgfitu48 - 300 Akranesi - 431-4311 BÁRAN BARUGOTU 15 - AKRANESI - SIMl 431 4400 Hótelið Tímmtucfagínn 5. návember Gúllas frá kl. 10 til kl. 01 Kemur á óvart? Töstucfagínn 6. návember „Diskó pÖbb“ frá kl. 23. til 03. Það er ekki slæmt! Laugarcfagínn 7. nóvember Paparnir frá kl. 23. til 03. Nú verða valdar 3 stúikur til keppninnar „Vetrarstúlka Bárunnar11 „Diskó pubb Hit“ 1 < Veitinga- og skemmtistaður BARAN Báran opnar sem hér segir:" Laugardaga/sunnudaga ki. 13. Mánudaga til föstudaga kl. 18. Spakmælið: Margur verður af aurum api en glaður af góðrí könnu á BÁRUNNl. Leikir framundan -sýndirá Bárunni 5.11 kl. 20 Mörk meistaradeiidarinnar 6.11 kl. 18.45 Heimsfótbotti 6.11 kl. 19 Fótbolti um víða veröld 6.11 kl. 20.30 Ailtaf í boltanum 7.11 kl. 14.45 Enski boltinn 8.11 kl. 13.25 ftalski boltinn 8.11 kl. 14.45 Manch. Utd./Newcastle 8.11 kl. 16 Grindavík/Tindastóll 8.11. kl. 16.55 FA Collection 8.11 kl. 19.25 AC Milan /Inter 8.11. kl. 21.15 Itölsku mörkin 9.11. kl. 20 Fótbolti um viða veröld 9.11. kl. 22.50 Ensku mörkin 10.11 kl. 19 Knattspyrna í Asíu 10.11. kl. 22.30 FA Collection/Arsenal Nýr staður á gömlum grunni. Munið lágmarksaldur til að sækja vínveitingastað er 18 ár. TILBOÐ Ffl 5. nóv. 09 meáan birgðsr endasf Mjaðmasneiðar Læri II 529,- kg. áður 648,- kg Kindabjúgu + kartöflumús 258,- pk. nýtt Blómkál 199,— kg. áður 379,-kg lceberg 6 99,- ÍCg. áður 279,-kg Vilko vöffludeig kynning I 89 pk. áður 229,-pk Þeytirjómi I 59,- pk. NÝTT Vöruhús KB er opið: Mánudaga til fimmtudaga kl. 9-18, Töstudaga kl. 9-T9 og laugardaga kl. 10-16 l

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.