Skessuhorn - 26.11.1998, Side 9
SiiásimóBRI
FIMMTUDAGUR 26. NÓVEMBER 1998
9
Hverju hafa göngin breytt?
Rætt vib kaupmenn á Akranesi
Nú eru liðnir rúmir fjórir mánuðir
frá því Hvalfjarðargöng voru opn-
uð fyrir almennri umferð. A meðan
framkvæmdir við Hvalfjarðargöng
stóðu yfir var mikið spáð og spek-
úlerað um áhrif mannvirkisins á
viðskiptalífið á Vesturlandi. Það
var fyrirfram ljóst að viðskiptaum-
hverfið myndi breytast þar sem
enn styttra yrði fyrir neytendur á
Vesturlandi að sækja hverskonar
þjónustu til Reykjavíkur. Rétt er
að taka fram að vegalengdin stytt-
ist að sjálfsögðu jafnmikið í hina
áttina.
Opnun Hvalfjarðarganganna kom
mönnum að sjálfsögðu ekki á óvart
og því hafa seljendur vöru og þjón-
ustu væntanlega verið búnir að
undirbúa sig fyrir aukna sam-
keppni að sunnan . Má í því sam-
bandi nefna að á Akranesi og í
Borgarbyggð var unnin sérstök
stefnumótun fyrir sveitarfélögin
með hliðsjón af tilkomu ganganna.
Eins og fram hefur komið hér í
blaðinu telja margir þjónustuaðil-
ar á Vesturlandi að ferðamanna-
straumurinn hafi aukist eftir opn-
un ganganna í sumar. Til að kanna
áhrif ganganna á verslun hérna
megin fjarðar ræddi blaðamaður
Skessuhorns við þrjá kaupmenn á
Akranesi.
Frá Bæjarskrifstofum Akraness
Endurgreíbsla
sérleyfísfargjalda
Bæjarstjóm Akraness hefur sam-
þykkt að frá næstu áramótum verði
greidd niður fargjöld nemenda sem
eiga lögheimili á Akranesi og stunda
framhaldsnám á stór- Reykjavíkur-
svæðinu.
Þessar reglur eiga við um þá nem-
endur sem stunda framhaldsnám í
Reykjavík, Hafnarfirði, Kópavogi
eða Garðabæ og eru í námi sem ekki
er til staðar á Akranesi, og nema
endurgreiðslur bæjarins 15% af far-
gjaldi með áætlunarbílum á milli
Akraness og Reykjavíkur sam-
kvæmt nánari reglum þar um.
Gert er ráð fyrir að sérleyfishafi
selji námsmönnum afsláttarkort
gegn framvísun skólaskírteinis og
getur viðkomandi námsmaður síðan
framvísað kvittun á skrifstofu Akra-
neskaupstaðar að Stillholti 16-18 og
fengið endurgreitt sem nemur 15%
af greiddu fargjaldi.
í reglum þessum er gert ráð fyrir
að sérleyfishafi veiti námsmönnum
einnig 15% afslátt af ferðum þannig
að heildarafsláttur verður 30%.
Það er von bæjarins að þessi fyrir-
greiðsla geti stuðlað að því að náms-
menn sem annars flyttu úr bæjarfé-
laginu geti búið þar áfram mannlíf-
inu og byggðarlaginu til framdráttar.
Bcejarritari.
Ekki merkjanleg
breyting
„Ég get ekki séð merkjanlega
breytingu í veltu hjá okkur,“ sagði
Nína Stefánsdóttir eigandi tísku-
verslunarinnar Nínu er blaðamaður
hitti hana og eiginmann hennar Dan-
íel Daníelsson sem er einn af eig-
endum Ótrúlegu búðanna. „Það hef-
ur alltaf verið stutt til Reykjavflmr
og verslun á Akranesi hefur í gegn-
um tíðina verið í harðri samkeppni
við höfuðborgarsvæðið. Eina breyt-
ingin sem ég varð vör við var fyrstu
dagana meðan það var frítt í göngin
þá kom tölvert af fólki hingað að
sunnan og það kom mörgum á óvart
hversu mikil fjölbreytni er í verslun
á Skaganum," sagði Nína.
Þau Nína og Daníel sögðu að fólk
af Skaganum færi vissulega til
Reykjavíkur að versla. „Bónus
verslanirnar draga fólk ótrúlega
mikið suður og því er ekki að neita
að þær hafa átt drjúgan þátt í að
lækka matvöruverð á sama hátt og
Ótrúlegu búðimar hafa gert í ýmsum
öðrum vöruflokkum. Við vitum það
hinsvegar að verslanir á Akranesi
eru fyllilega samkeppnisfærar í
verði miðað við verslanir á höfuð-
borgarsvæðinu og í mörgum tilfell-
um eru þær að selja vörur á mun
lægra verði,“ sagði Daníel. Þau
sögðust samt sem áður búast við
breytingum á næstu árum og að
verslunum myndi fækka á Skagan-
um.
„Þróunin verður sjálfsagt hér eins
og víðar að verslunum fækkar og
þær stækka. Að sjálfsögðu væri það
skemmtilegast ef verslanir gætu ver-
ið með fáa vöruflokka og boðið upp
á sérhæfðari þjónustu en það gengur
einfaldlega ekki á svona litlum
markaði," sögðu þau Nína og Daní-
el að lokum.
Nína og Daníel í versluninni Nínu.
Skagamenn og nágrannar halda tryggb vib verslun í heimabyggb þrátt fyrir göngin góbu
Einar Ólafsson kaupmabur í Einars-
búb.
Örlygur Stefánsson í Bjargi.
Ekkert
„I stuttu máli sagt finnst mér ná-
kvæmlega ekkert hafa breyst," sagði
Einar Ólafsson matvörukaupmaður
sem rekur Verslun Einars Ólafssonar,
eða Einarsbúð eins og hún er nefnd í
daglegu tali. Hann sagði að miðað
við veltutölur og fjölda afgreiðslna
„Það sem ég sé á mínum veltutöl-
um er að við erum að selja meira
þessa síðustu mánuði en á sama tíma
í fyrra,“ sagði Örlygur Stefánsson í
Bjargi.
Örlygur rekur tvær verslanir á
Akranesi undir því nafni, húsgagna-
verslun og fataverslun. Hann sagðist
ekki geta sagt um hvort göngin ættu
einhvem þátt í veltuaukningunni hjá
sér. „Mér virðist sem við séum frek-
ar að fá aukin viðskipti héðan í kring
fremur en að sunnann. Við höfúm
orðið vör við að fólk utan Akraness
kemur hér við og fær þá vöru sem
breyst
væri mynstrið mjög svipað og und-
anfarin ár. „Ég get því ekki sagt að
við merkjum nein áhrif frá göngun-
um og ég vil gjaman þakka Akumes-
ingum fyrir þá tryggð sem þeir hafa
sýnt verslun í heimabyggð,“ sagði
Einar.
það er að leita að og þarf ekki að fara
lengra. Mörgum, og þá ekki síst full-
orðnu fólki, þykir þægilegra að
versla á Skaganum heldur en í
Reykjavik. Hér er smtt á milli búða
og örtröðin og umferðin mun minni
en fyrir sunnan. Ég get því ekki ann-
að en verið bjartsýnn fyrir hönd Ák-
umesinga. Skagamenn hafa búið við
góðar samgöngur í fjölda ára og þar
með utanaðkomandi samkeppni. Ég
held að verslanir á Skaganum hafi
því verið vel í stakk búnar til að
takast á við breyttar aðstæður," sagði
Örlygur.
Bjartsýnn fyrir
hönd Akumesinga
HOLMARAR og NÆRSVEITARMENN!
Opnum tískuvöru- og skóverslun í Stykkiskaupum
föstudaginn 28. nóv.
Full búð af glæsilegum vörun.
dGóð opnunartilboð
IETRI BÚÐIN Æ=r,
TRI SKÓR - Á BETRA VERÐI 1°!‘T.T.1
Kirkjubraut 2 ♦ Akranesi S 431 3308