Skessuhorn - 26.11.1998, Page 11
SSESSUHöERi
FIMMTUDAGUR 26. NÓVEMBER 1998
11
Hæfileikakeppni grunn-
skólanna á Akranesi 1998
Fimmtudaginn 5. nóvember fór
fram í fyrsta skipti hæfileikakeppni
grunnskólanna á Akranesi sem er
samvinnuverkefni Grundaskóla og
Brekkubæjarskóla. Undanfarin 12 ár
hefur farið fram söngvarakeppni sem
gengið hefur undir nafninu „Hátóns-
barkinn“ þar sem margir hæfileika-
ríkir krakkar hafa stigið sín fyrstu
spor á tónlistarbrautinni. Að þessu
sinni var ákveðið að taka inn fleiri
þætti en sönginn eingöngu og skipu-
lögð var allsherjar hæfileikakeppni
þar sem keppt var í tveimur flokkum
þ.e. valinn var sem fyrr hátónsbarki
kvöldsins en einnig var skemmtiat-
riði kvöldsins verðlaunað. I flokki
skemmtiatriða komu fram danshópar,
rapparar, hljómsveitir og grínarar.
Alls voru um 30 nemendur í 8.-10
bekk í 17 atriðum sem komu fram
þetta kvöld. Mikill tími fór í undir-
búning þar sem þjálfaðir voru upp
tæknimenn úr hópi nemenda sem
stjómuðu hljóði og ljósum auk þess
sem keppendur fengu aðstöðu í skól-
anum til að undirbúa atriði sín. Sum-
ir hönnuðu sín eigin rappmix með
tölvuklippingum, danshópar fengu
aðstoð danskennara og söngvarar
æfðu með hjálp tónmenntarkennara
síns. Atvinnutónlistarmenn vom síð-
an fengnir til að leika undir í söngv-
arakeppninni.
Dómnefnd var skipuð fagfólki og
var mikill vandi á höndum að finna
sigurvegara kvöldsins. Hátónsbarki
grunnskólanna að þessu sinni var
Elsa Jóhannsdóttir sem er nemendi í
10. bekk og söng hún með miklum
tilþrifum lagið Nothing compares to
you sem Sinnead O'Connor hefur
áður sungið. Er ljóst að þama er mik-
ið söngkonuefni á ferðinni. Hlaut hún
í verðlaun tíma í hljóðupptökustúdíói
þar sem sigurlag hennar verður tekið
upp og sett á geisladisk. Hlutur
stúlkna úr 10. bekk var drjúgur þetta
kvöld því skemmtiatriði kvöldsins
var valið úr hópi rappara og vom þar
á ferðinni tvær stúlkur, þær Maren
Karlsdóttir og Belinda Engilberts-
dóttir. Skemmtunin þótti takast með
afbrigðum vel og um 200 unglingar
mættu auk fjölda annarra gesta sem
fylgdust með keppninni. Er ljóst að á
Akranesi er að finna marga hæfileik-
aríka krakka á listasviðinu og hæfi-
leikakeppni sem þessi er líklega
komin til að vera.
Frænkurnar Erla Císladóttir og Edda Ósk Einarsdóttir þenja raddböndin.
Fommatur til framtíbar
Við Háskóla íslands er nú í gangi
samnorrænt verkefni á vegum Nor-
ræna Atlantssamstarfsins (NORA),
„Nordisk tradisjonsfisk" sem hér á
íslandi hefur hlotið nafnið „Fommat-
ur til framtíðar." Auk íslendinga
standa Norðmenn, Færeyingar og
Grænlendingar að verkefninu.
Markmið verkefnisins er að taka
saman upplýsingar um fomar hefðir
við verkun, matreiðslu og neyslu
sjávarfangs og kanna hvort einhver
slík matvæli eiga erindi við nútíma-
markaði. Ef vel tekst til gæti verkefn-
ið nýst atvinnufyrirtækjum í nýsköp-
un, ekki síst á landsbyggðinni, auk
þess sem að það hefur menningar-
sögulegt gildi.
Nú þegar hafa þrír starfsmenn
verkefnisins, sem em nemendur við
Háskóla Islands, hafið leit í gögnum
Þjóðminjasafnsins og útgefnum rit-
um um sjávarútveg og öðmm heim-
ildum sem mögulega gætu veitt ein-
hverjar upplýsingar. Við vitum þó að
á meðal fólks vítt og breitt um landið
er að finna mikla staðbundna þekk-
ingu á auðlindum, svæðisbundnum
hefðum og verkmenningu.
Eftirfarandi erindi barst Atvinnu-
ráðgjöf Vesturlands með ósk um að
starfsfólk hennar kæmi skilaboðum
um verkefnið á framfæri við það fólk
á Vesturlandi sem hefur þekkingu á
hefðum og verkmenningu tengdum
sjávamytjum. Allar ábendingar em
vel þegnar þar sem undirbúningshóp-
urinn vill helst viða að sér sem marg-
víslegustum upplýsingum.
Þeim hluta verkefnisins sem nú er
hafinn á að vera lokið fyrir vorið, en
að því loknu verður þess freistað að
koma af stað framhaldsverkefni um
vömþróun og markaðssetningu.
Póstfang verkefnisins er:
Karl Benediktsson
Jarð- og landfrœðiskor Háskóla Is-
lands
Aðalbyggingu við Suðurgötu
101 Reykjavík, sími 525 4286 (v) og
551 8450 (h)
Netfang: kben@hi.is
Hafa má samband við verkefnis-
stjóra hvenær sem er eða Magnús hjá
Atvinnuráðgjöf Vesturlands í síma
437 1318.
(fréttatilkynning)
Handverksfélagið Ullarsel á Hvanneyri.
Opið eins og venjulega mánudaga og fimmtudaga.
Kl. 11.00 til 17.00
Laugardaginn 19. des verður opið 13.00 til 18.00
Við verðum í verslunarmiðstöðinni Kjama í Mosfellsbæ
laugardagana 5. og 12. desember.
Handverk í litlar og stórar gjafir
Gœða handspunnið band í sokka og peysur
Spennandi jurtalitað band
Hina þekktu fiðusokka
Vandaðar handprjónaðar peysur
Tölur úr horni, skeljum og steinum
i Verið innilega velkomin
I og þiggið kaffi
og piparkökur.
iöjsélif
Sínú .- 43? OOOO
babherbergisinnréttingar
Mældu...
reiknabu...
...og láttu vaba
Fyrir jólin!
Verbdæmi:
Þessi innréttinq kr. 64.529*
*án blöndunartækja og vasks
Furu
fulningahurbir
Vöndub smíbi
Gott verb
Góbur kostur
Fyrir jóiin!
60, 70, 80 sm.
meb karmi og
þröskuldi
kr.17.190
70 og 80 sm.
meb karmi,
þröskuldi og gleri
kr.36.751
GINGAVORUR
BORGARNESI
Sími 437 1200 - Fax 437 1032
Gœði og gottverð