Skessuhorn - 26.11.1998, Blaðsíða 18
18
FIMMTUDAGUR 26. NÓVEMBER 1998
Tölurnar
Snæfell Leikmaður Mín Frák. Stoðs. Stig Stjömur
4 Baldur Þorleifsson 16 2 0 2 *
5 Ólafur Guðmundsson 20 2 0 4 *
6 Hallfreður R. Björgv. 9 4 0 1 *
7 Athanasios Spyropoul 24 4 0 17 **
8 Jón Þ. Eyþórsson 21 1 0 15 ***
9 Bárður Eyþórsson 26 2 3 8 **
10 Gunnar M. Gestsson 11 0 1 2 *
11 Rob Wilson 30 15 1 29 ***
12 Birgir Mikaelsson 14 1 1 4 *
14 Mark Ramos 29 6 6 8 ***
ÍA Leikmaður Mín Frák. Stoðs. Stig Stjömur
4 Brynjar Sigurðsson 15 1 0 5 **
5 Jón Ó. Jónsson 12 4 0 3 *
6 Pálmi Þórisson 13 3 0 2 *
7 Guðjón Jónasson 24 3 1 4 *
8 Victor Pereira 31 0 1 0
9 Aleksandre Ermolinski 27 6 1 12 ***
10 Ólafur J. Ólafsson 8 2 1 5 *
11 Trausti F. Jónsson 27 1 0 4 **
12 Jón Þ. Þórðarson 16 1 0 5 **
14 Dagur Þórisson 27 4 2 18 ***
Enn tapa Skallar
KFÍ - Skallagrímur: 96 - 82
Skallagrímsmenn náðu ekki að
vinna sinn fyrsta sigur í Úrvalsdeild-
inni um helgina er þeir sóttu ísfirð-
inga heim. Heimamenn sigruðu með
96 stigum gegn 82 en staðan í leik-
hléi var 56 - 32. Isfirðingar höfðu
undirtökin allan leikinn og Skalla-
grímsmenn spiluðu ekki vel að und-
anteknum þeim Eric Franson sem átti
mjög góðan leik og Kristni Friðriks-
syni sem virðist loksins vera búinn
að finna „þriggja stiga forritið" að
nýju.
Tölurnar
Leikmaður Mín Frák. Stoðs. Stig Stjörnur
4 Finnur Jónsson 9 1 0 0 *
5 Henning F. Henningsson 26 5 1 5 **
7 Pálmi Þ. Sævarsson 14 3 0 0 *
8 Kristinn G. Friðriksson 33 5 2 27 ***
9 Hlynur Bæringsson 25 6 2 2 *
12 Haraldur M. Stefánsson 4 0 0 0
13 Tómas Holton 32 0 2 7 **
14 Eric Franson 40 17 3 39 ****
15 Sigmar P. Egilsson 17 4 3 2 **
Létt hjá Snæfellingum
Valur - Snæfell: 77-81
Snæfellingar eru í góðu formi
þessa dagana og þeir áttu ekki í nein-
um vandræðum með Valsliðið á
Hlíðarenda þegar liðin mættust
sunnudaginn 8. nóvember.
Spyropoulus átti frábæran leik að
vanda og aðrir voru einnig að leika
mjög vel.
Tölurnar
Leikmaður Mín Stig Stoðs. Frák. Stjörnur
4 Baldur Þorleifsson 3 0 0 0
7 Athanasios Spyropoulus 25 34 0 5 ****
8 Jón Þ. Eyþórsson 36 7 2 4 **
9 Bárður Eyþórsson 33 14 1 0 ***
11 Rob Wilson 37 20 5 11 *
12 Birgir Mikaelsson 29 6 6 4 **
14 Mark Ramos 37 0 4 3 ***
Aðgangur ókeypis.
CSjá nánar fréttatilkynningu.)
Snæfell óstöbvandi
Snæfell vann stóran sigur á væng-
brotnu liði í A í Hólminum síðastlið-
inn fimmtudag með 90 stigum gegn
58. Tveir sterkustu leikmenn Skaga-
manna voru fjarri góðu gamni, þeir
David Bevis sem tók út leikbann og
Bjami Magnússon sem er meiddur.
Snæfellingar sem hafa verið á
góðri siglingu afgreiddu gestina á-
reynslulítið. Snæfellingar tóku leik-
inn í sínar hendur strax frá fyrstu
mínútu og juku forskotið jafnt og
þétt. Staðan í leikhléi var 45 - 28 og
sigurinn var aldrei í hættu. Rob Wil-
son var í góðu stuði, skoraði 29 stig
og hirti 15 ffáköst. í Skagaliðinu var
Dagur Þórisson sá sem helst náði sér
á strik. Snæfell er nú komið í þriðja
sæti Úrvalsdeildarinnar með tíu stig
en Skagamenn eru í því sjöunda með
átta stig.
IA hornib
Karatefélag Akraness
Hvab er Karate?
Upphaf Karate má rekja til jap-
anskra munka, sem æfðu með leynd
innan klausturmúra sinna á 7. - 8.
öld. Á 16. öld var almenningur á
Okinawa (japönsk eyja, sem áður
var bitbein Japana og Kínverja) far-
inn að æfa Karate í leyni sem svar
við banni stríðsherra sinna við
vopnaeign. Bardagalistin varð svo
smátt og smátt almennari þegar líða
tók á síðustu öld.
I Karate eru notaðar hendur og
fætur við vamir og árásir, auk ýmiss
konar tækni og einbeitingar hugar og
orku gegn andstæðingnum. Karate
byggist á einingu hugar og líkama,
sem endurspeglast í Karate-do
(Karate-veginum). Sá sem æfir og
skilur þessa leið mun ekki auðveld-
lega verða dreginn í bardaga heldur
reyna eftir megni að yfirbuga and-
stæðing sinn án átaka. Karate (tóm
hönd) byrjar og endar með kurteisi.
Siðareglur Karate
í Karate má finna mörg einkenni
austurlenskrar menningar. Agi, virð-
ing og kurteisi eru siðareglur sem
þar gilda og margir Vesturlandabúar
sakna í fari menningarbræðra sinna.
Þessar reglur eru grundvöllur allra
samskipta í Karate og hollar öllum,
ekki síst bömum og unglingum. Þær
em einfaldar og birtast í ýmsu formi
eins og hneigingum fyrir þjálfara
eða andstæðingi, skjót viðbrögð við
fyrirmælum þjálfara og algjörri ein-
beitingu. Geispi, sem fæðist í ógáti
getur t.d. kostað 10 armbeygjur.
Viðurlög við því að nota Karate í
öðmm tilgangi en þeim að verjast
em yfirleitt óskráð en mjög skýr. Á-
minning, tímabundin frávísun eða
algjört bann við því að æfa Karate
eru refsingar sem notaðar em, allt
eftir því hve alvarlegt brotið er.
Karate á Akranesi
Haustið 1990 var Karatefélagið
Þórshamar á Akranesi stofnað. Það
var Karatefélagið Þórshamar í
Reykjavík, sem stóð að því ásamt
hópi áhugasamra Akumesinga. Þórs-
hamar sá um þjálfun og skipulag æf-
inganna, sem vom vel sóttar og
margir vom greinilega búnir að bíða
lengi eftir þessum möguleika.
Nokkmm ámm síðar vildu Akur-
nesingar standa á eigin fótum og
stofnuðu sjálfstætt félag með eigin
lögum og gengu í ÍA. Samvinnan
við Þórshamar var áfram góð og hef-
ur verið það síðan. Gekk félagið
meira að segja undir nafninu Þórs-
hamar á Akranesi lengi vel eftir að
það hafði tekið sér nafnið Karatefé-
lag Akraness (KAK). Félagatalan
hefur sveiflast frá ári til árs og hafa
lægðir og hæðir verið ríkjandi í
KAK eins og í öðmm íþróttafélög-
um. Á þessu hausti em félagar 30
talsins, þar af 28 iðkendur. Félag-
amir hafa alla tíð verið á öllum aldri
og af báðum kynjum, þó karlamir
hafi ávallt haft vinninginn.
Æfingarnar
Æft er þrisvar í viku og í klukku-
tíma í senn, nema hjá þeim sem
lengst em komnir. Þeir æfa í einn og
hálfan tíma hveiju sinni. Einu sinni í
viku em yngri iðkendur með þeim
eldri og fá þá sömu þjálfun og þeir.
Á séræfingum yngri hópsins er þörf-
um þeirra sinnt m.a. með því að auka
vægi leiks í þjálfuninni.
Auk hinna föstu æfinga em haldn-
ar æfingabúðir frá föstud. - sunnud.
með erlendum meistumm þrisvar til
fjómm sinnum á ári. Karatefélag
Akraness og Karatefélagið Þórsham-
ar hafa yfirleitt staðið saman að þeim
og em þær ómetanlegur þáttur í því
að æfa Karate.
I lok hvers tímabils fer fram
svokölluð gráðun, sem er eins konar
próf upp í næsta belti. Kröfur um
mætingar og mat þjálfara á stöðu
iðkendanna ræður því hverjir þreyta
gráðunina. Hér em það ekki beltin,
sem skipta máli, heldur þroski hvers
og eins og stjóm hans á líkama og
sál.
Þjáifunin
Félagið hefur ætíð lagt áherslu á
góða þjálfun. Fyrstu árin komu er-
lendir þjálfarar á vegum Þórshamars
í Reykjavík hingað upp á Skaga og
þjálfuðu þrisvar í viku. Síðan hefur
félagið sjálft alið upp eigin þjálfara,
sem þjálfað hafa á móti aðfengnum
þjálfumm. Er mikill fengur að því og
félagið er afar stolt af sínu fólki.
Á þessu hausti þjálfa Jón Ingi Þor-
valdsson, 2. Dan, (Skagamaður og
félagi í Karatefélaginu Þórshamri),
Sólveig Krista Einarsdóttir, 1. kyu,
(Karatefélaginu Þórshamri) og Helgi
Hafsteinsson, 2. kyu, (Karatefélagi
Akraness).
Aðstaðan
Karatefélagið hefur verið á
nokkmm hrakhólum með æfinga-
húsnæði. Reynt hefur verið að koma
til móts við félagið en með misjöfn-
um árangri. Salurinn í kjallara I-
þróttahússins við Vesturgötu var
m.a. ætlaður til iðkunar Karate, þar
eru speglar og aðstaðan að mörgu
leyti ákjósanleg. Gallar á gólfefni
hafa því miður hrakið félagið þaðan
og em æfingar nú að mestu leyti í
1/4 hluta stóra salarins að Vestur-
götu.
Félagslífið
Félagslíf hefur skipað ákveðinn
sess í Karatefélaginu og fengið á sig
hefðbundinn blæ með árunum. Árs-
hátíðir, jólasamkomur, félagsfundir
og myndbandakvöld em helstu við-
burðir félagsstarfsins auk foreldra-
funda og foreldrasýninga. Það sann-
ast einna helst, hvers virði slíkar
samvemstundir em, þegar mynda-
albúmið er tekið fram og fólk kætist
yfir minningunum, jafnvel þó geng-
ið hafi á ýmsu.
Hvers vegna ætti
fólk að æfa Karate?
Karate er fyrir alla, konur og karla
á öllum aldri, óháð líkamlegu formi.
Með iðkun Karate er leitast við að ná
jafnvægi á líkama og sál, sem bygg-
ir upp heilsteyptari einstakling. Ár-
angur kemur fljótt í ljós og jafnvel
eftir nokkra mánaða reglubundnar
æfingar er einstaklingurinn orðinn
stæltari og sterkari.
Böm og unglingar hafa sérstak-
lega gott af því að stunda Karate.
Regluleg iðkun Karate eykur þeim
sjálfstraust og býr þau þannig vel
undir lífið.
Frá stjóm Karatefé-
lags Akraness
Stjóm KAK vill koma á framfæri
þakklæti til Esso Olíufélagsins h/f
sem nýlega færði félaginu gangakort
auk bensínstyrks að upphæð 10.000.
Félagið þakkar einnig öllum þeim
sem stutt hafa starf þess á einn eða
annan hátt.
Stjórn KAK:
Gyða Bentsdóttir, formaður
Málfríður Þorkelsdóttir, gjaldkeri
Guðmundur Kristjánsson, ritari
Helgi Hafsteinsson, meðstjómandi
Baldur Olafsson, meðstjómandi
Ritnefnd KAK:
Halla Ingibjörg Guðmundsdóttir
Sólveig ÁsgeirsdóttirO