Skessuhorn - 05.06.2002, Blaðsíða 1
Andakílsskóli hlýtur Grænfánann
Við skólaslit Andakílsskóla á
Hvanneyri í gær (þriðjudag) var
skólanum afhentur Grænfáninn
sem er alþjóðleg viðurkenning fyrir
skóla sem skara fram úr í umhverf-
isvemd og fræðslu um umhverfi og
náttúru. í Andakílsskóla hefur um
árabil verið lögð mikil áhersla á
fræðslu um umhverfismál og er
skólinn einn af tólf skólum sem á-
samt landvernd era stofnendur
Grænfánans á Islandi.
Andakílsskóli er einn af þremur
fyrstu skólunum á Islandi sem hlýt-
ur þessa viðurkenningu en fyrr í vor
var Fossvogsskóla og Selásskóla af-
hentur Grænfáninn.
GE
Sigurbjöm Islands-
meistari í hreysti
Hreppti titilinn tveimur mánuðum eftir mót
Eins og fram hefur komið í firétt-
tim hafa þrír keppendur á Islands-
móti IFBB í fitness eða hreysti, sem
haldið var á Akureyri um páskana,
verið úrskurðaðir í keppnisbann eft-
ir að lyfjapróf sem gerð voru eftir
keppnina reyndust jákvæð. Þrír
efstu keppendurnir í karla- og
kvennafloldd gengust undir slíkt
próf og reyndist helmingur þeirra
hafa neytt ólöglegra lyfja. Var þar
um að ræða sigurvegara keppninnar
bæði í karla- og kvennaflokki og
keppandann sem hafnaði í öðru sæti
í karlaflokki. Auk þess að vera
dæmdir í langt keppnisbann missa
keppendumir sæti sín á Islandsmót-
inu og því er Borgnesingurinn Sig-
urbjöm Ingi Guðmundsson, sem
hafnaði í 3. sæti í karlaflokki á mót-
inu, raunverulegur sigurvegari og
því íslandsmeistari árið 2002 í
hreysti.
Sigurbjörn segir að þetta hafi
komið sér mjög á óvart. „Þetta er að
sjálfsögðu ekki eitthvað sem maður
bjóst við að gerðist enda er þetta í
fyrsta sinn sem keppandi í greininni
fellur á lyfjaprófi efdr mótið. Auð-
vitað er maður samt ánægður þótt
leiðinlegt sé að vinna titilinn á
þennan hátt. Það jákvæða við þetta
er að það kemst í umræðuna að ekki
er hægt að komast upp með að
svindla á svona mótum og þetta
verður vonandi til þess að einhver
sem íhugar að nota ólögleg lyf hugsi
sig tvisvar um.“ Sigurbjöm segist
aðspurður að sjálfsögðu ætla að
verja titilinn á næsta ári og ætti hann
þá að geta fagnað honum á hefð-
bundinn hátt. SÓK
Vilja
einangra
rækjumið í
Breiðafirði
Á fúndi bæjarráðs Gmndar-
fjarðar á dögunum var samþykkt
að fela bæjarstjóra, Eyþóri
Björnssyni, að skrifa sjávarút-
vegsráðherra bréf varðandi
möguleikann á því að loka rækju-
miðunum á Breiðafirði fyrir öðr-
um en Breiðafjarðarbátum.
Guðni E. Hallgrímsson, bæj-
arfúlltrúi, segir að hugmyndin
taki mið af fyrirkomulagi sem
tíðkast t.a.m. í Isafjarðardjúpi og
í Húnaflóa þar sem ákveðnum
veiðihólfum sé lokað fyrir „utan
að komandi“ bátum. Segir hann
að það sé hugmynd bæjarráðs að
kanna möguleikana á því að,
vernda hagsmtmi þeirra sem
stundi rækjuveiðar og vinnslu á
Breiðafjarðarsvæðinu á þennan
hátt. Hann tekur jafnframt ffam
að ennþá séu þessar hugmyndir á
byrjunarstigi. „Við ætlum að
kynna okkur málið betur áður en
við sendum ráðherra bréf en það
er margt sem þarf að skoða í
þessu máli. Hagsmunir útgerðar
og vinnslu fara t.d. ekki alltaf
saman,“ segir Guðni. smh
Skapast hefur heftíjynr því að brjóta upp hefSbundið skólastarf í Grundaskóla á vordögum og vera með sérstakt vorþema í um vikutíma.
Víkingarvoru þaðþema sem 7.-9. bekkurfe'kk til umfjöllunar og endaði það með sýningu áýmsum munum ogútileikjum sem tengdust víkingum. A sýningunni mátti m.a. finna hneftöfl,
víkingaskart, flókatöskur og spárúnir sem nemendur höflu biíið til í vikunni. 1.-4. bekk var m.a. boðið aðfara á hesthak, upp í Skógrœkt og keppa á HM leikum og nemendur í 5.-6. bekk
fóru ífuglaskoðun og unnu nAttúrujræðiverkefni. A myndinni má sjá nemendur í 1.-4. bekk en þeir og kennarar þeirra nuettu í grímubúningum síðasta daginn.