Skessuhorn


Skessuhorn - 13.11.2002, Blaðsíða 3

Skessuhorn - 13.11.2002, Blaðsíða 3
■uft^llr.... , MIÐVIKUDAGUR 13. NOVEMBER 2002 3 Sala Sparisjóðsins er ekki mál sem hafa á íflimtingum, “ segir Helga Halldórsdóttir for- seti bœjarstjómar Borgarbyggðar. I I I I I I I I I I I I I I I I Skoda Octavia 4 4 Kr. 1.950.000,- IEi HEKLA Sítengt aldrif • Vél 2.0116 hestöfl • Aflstýri ABS hemlalæsivörn • Fjarstýrðar samlæsingar 5 þriggja punkta bílbelti • 4 öryggispúðar Komdu við hjá HEKLU eða næsta söluumboði okkar og reynsluaktu Skoda Octavia 4x4. Nafn þitt fer í pott og þú getur unnið helgarferð fyrir tvo til Prag með Heimsferðum. Dregið verður 19. nóv. og flogið ertil Prag 21. nóv. Nafn vinningshafa verður birt á www.hekla.is Nafn_______________________________________ þlncránígjan Sími Sparisjóður Mýrasýslu er ekld til sölu segir Helga Halldórsdóttir forseti bæjarstjórnar Borgarbyggðar Töluverð umræða hefur spunnist um hugsanlega sölu stofnfjár Borg- arbyggðar í Sparisjóði Mýrasýslu eftir að Arni Tómasson bankastjóri Búnaðarbankans lýsti því yfir á kynningarfúndi í Búnaðarbankan- um í Borgarnesi að bankinn væri tilbúinn að kaupa Sparisjóðinn. Borgarbyggð á 97% stofnfjár í Sparisjóði Mýrasýslu en ekki liggur fýrir hvað fengist fýrir það ef tdl sölu kæmi en ýjað hefur verið að því að andvirði sölunnar gætd dug- að til að greiða upp allar skuldir sveitarfélagsins og vel það. Það er því vart að undra þótt nokkur um- ræða hafi farið af stað innan Borg- arbyggðar um hvort það væri væn- legur kostur að selja Búnaðarbank- anum Sparisjóðinn. Helga Halldórsdóttir forseti bæj- arstjórnar sagði, þegar Skessuhom innti hana eftir viðbrögðum bæjar- stjórnar, að bæjarstjórn tæki alvar- lega það hlutverk sitt að standa vörð um hagsmuni sjóðsins og að ekki kæmi til greina að gera neitt annað en það sem efldi starfsemi hans í heimabyggð. Ekki til að hafa í flimtingum „Það hafa engin tdlboð borist til bæjarstjórnar í stofnfé sveitarfé- lagsins í Sparisjóðnum. Hinsvegar var bæjarstjórn boðið í mótttöku á vegum Búnaðarbankans og í kjölfar þess fór af stað umræða í samfélag- inu vegna orða sem þar féllu af hálfu eins bankastjóra Búnaðar- bankans. Þessi umræða um sölu á Helga Halldórsdóttir. Sparisjóðnum er því eingöngu komin til vegna þeirra ummæla og ekki að frumkvæði bæjarstjórnar. Væntanlega hefur umræða um málefni Spron að undanförnu haft áhrif á þessa umræðu." Helga segir umræðuna um Sparisjóðinn hafa náð inn í meiri- hluta bæjarstjórnar þótt málið hafi ekki verið tekið fýrir á bæjarstjórn- arfúndi. „Meirihlutinn er einhuga um að efla Sparisjóðinn eins og frekast er unnt. Sala á stofnfénu sem slíku er ekki á dagskrá. Þetta er ekki málefúi sem hafa á í flimting- um. Eftir að þessi umræða kom upp í samfélaginu hefur meirihlut- inn rætt þetta sxn á milli og er á einu máli um að hreyfa þessu máli ekki enda ýmis lagaákvæði varðandi slíkt óljós eins og dæmin sanna. Sparisjóðurinn er hornsteinn í hér- aði og mun verða það áfram,“ segir Helga. GE Til sölu dýnuhlífar Leigjum út teppahreinsivélar Borgarbraut 55, Borgarnesi. S; 437 1930 Borgarfirbi Kynniu þzr mögúlzíkana í Bgrc í\ 'nzímcjnöunci o!:J:ci Upplýsingar hjá skrifstofu Borgarbyggöar ísíma 437 1224 - Páll eöa Eiríkur Upplvsingar um sumarhúsalóöir hjá Upplýsingamiöstööinni í Borgarnesi s. 437 2214 /j r*

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.