Skessuhorn - 13.11.2002, Blaðsíða 8
8
MIÐVIKUDAGUR 13. NÓVEMBER 2002
SHSSUHOBRI
Stillum upp sterkum lista
Ágæti lesandi.
Á kjördæmisþingi Framsóknar-
flokksins, sem haldið verður að
Laugum í Sælingsdal þann 16.
nóvember n.k.., verður valinn sá
hópur fólks sem mun leiða flokk-
inn í Norðvesturkjördæmi við Al-
þingiskosningarnar í vor. Það er
ákaflega mikilvægt að sá hópur
sem valinn verður til forystu hafi
yfir að búa fjölþættri reynslu og
þekkingu sem endurspegli hags-
muni og sjónarmið sem flestra
íbúa kjördæmisins.
Ég, undirrituð, hef ákveðið að
sækjast eftir að skipa 2.- 3. sæti
listans. Undangengin 12 ár hef ég
starfað að sveitarstjórnarmálum í
Skagafirði og á síðasta kjörtíma-
bili var ég oddviti flokksins í hinu
Við undirritaðir starfsmenn á
Dvalarheimilinu Höfða finnum
okkur knúna til að skrifa þér opið
bréf vegna okkar mála í þeirri
veiku von að það kunni að hreyfa
við réttlætiskennd þinni og ann-
arra sem sæti eiga í bæjarstjórn
Akraness.
Á undanförnum árum hefur far-
ið fram endurmat á störfum
starfsmanna Akranesbæjar sam-
kvæmt sérstökum samningi þar
um til að ákvarða kaup og kjör
þeirra. Að þessu mati hefur starfs-
matsnefnd unnið samkvæmt sér-
stöku starfsmatskerfi og hafa
starfsmenn bæjarins síðan fengið
leiðréttingu sinna kjara að lokinni
afgreiðslu starfskjaranefndar.
Á síðastliðnu ári var röðin kom-
in að þeim starfsmönnum Dvalar-
heimilisins Höfða, sem eru félags-
menn í Starfsmannafélagi Akra-
ness (St.Ak.), og með því skyldi
lokið endurmati á störfum starfs-
manna bæjarins. Því miður vildi
svo óheppilega til, að trúnaðar-
mönnum láðist að koma á fram-
færi við starfsmatsnefndina starfs-
lýsingum og öðrum plöggum frá
okkur undirrituðum, 17 starfs-
mönnum heimilisins, sem vinnum
í ræstingu, þvottahúsi, býtibúri,
húsvörslu, dagvistun og færni-
þjálfun. Við uggðum ekki að okk-
ur og biðum þolinmóð þess að við
okkur yrði rætt. Við töldum
nefnilega sjálfgefið að starfsmatið
myndi ná til allra starfsmanna
heimilisins og vorum grunlaus um
gang mála þar til í febrúar á þessu
ári. Þá bárust okkur til eyrna þau
tíðindi, að starfsmatsnefndin
hefði lagt til verulega hækkun á
launum allra St.Ak.-félaga á heim-
ilinu annarra en okkar, t.d. 9
launaflokka hækkun hjá ófaglærðu
starfsfólki á tveimur deildum.
Gildistími þessara launabreytinga
var miðaður við 1. maí 2001.
Nefndin var um þessar mundir
að ljúka störfum sínum og töldum
við því augljóst að ekki ætti að
taka störf okkar til endurmats. Við
brugðumst því skjótt við og kom-
um tilskildum upplýsingum til
starfskjaranefndar. Eftir allnokkra
umhugsun varð niðurstaða hennar
sameinaða sveitarfélagi Skaga-
firði. Ég hef jafnframt unnið að
ýmsum félags- og stjórnmálum í
gegn um tíðina. Ég tel mig því
búa yfir góðri reynslu og þekk-
ingu á kjörum fólksins í landinu.
Hagsmunir eru vissulega ólíkir
eftir aðstæðum og umhverfi
hverju sinni en stjórnmál snúast
einmitt um það að leita lausna
sem sameina ólíka hagsmuni eins
og hægt er.
Framsóknarflokkurinn er frjáls-
lyndur félagshyggjuflokkur sem
vinnur að stöðugum umbótum á
samfélaginu og lausn viðfangsefna
á grunni samvinnu og jafnaðar. I
umróti samtímans er mikil þörf
fyrir flokk eins og Framsóknar-
flokkinn, sem stendur vörð um
ýmsa grunnþjónustu í samfélag-
sú að vísa málinu til starfsmats-
nefndar, sem eftir að hafa endur-
metið störf okkar úrskurðaði hlið-
stæða launahækkun okkur til
handa og hún hafði metið öðrum.
Að því búnu sendi hún niðurstöð-
ur sínar starfskjaranefnd hinn 15.
maí sl. til endanlegrar afgreiðslu.
Rétt er að vekja athygli þína á
því, að þegar hér var komið sögu
voru aðeins 10 dagar til bæjar-
stjórnarkosninganna, enda skorti
hvorki loforð né blíðuhót sumra
frambjóðenda í okkar garð á þeirri
stundu. Ymsir töldu þó að vegna
annríkis yrði að gefa starfskjara-
nefnd og bæjarstjórn nokkurt ráð-
rúm til að afgreiða málið, en þessu
yrði vitaskuld öllu kippt í liðinn
sem fýrst. Ekki málið!
Leið nú og beið. Kosningar að
baki, nýkjörin bæjarstjórn tekin
við völdum og sumarið fór í hönd.
Okkur tók að lengja eftir svarinu
og ámálguðum við því erindið
margsinnis bæði við bæjarfulltrúa
og starfskjaranefnd. Afgreiðsla
málsins lét samt á sér standa. Aug-
ljóslega var hlaupin á þráðinn ein-
hver snurða sem ekki var látið
uppskátt um fyrir kosningar.
Loksins upplýstist þó málið hinn
22. ágúst sl., þar sem kunngert var
í bréfi, að bæjarráð hefði samdæg-
urs samþykkt afgreiðslu starfs-
kjaranefndar frá því nokkrum
dögum fyrr.
Starfskjaranefndin komst sem
sagt hinn 16. ágúst að þeirri nið-
urstöðu, að útilokað væri með öllu
að endurmat starfsmatsnefndar
gæti náð til okkar 17-menning-
anna, sem flest fáum greitt sam-
kvæmt lægsta launaflokki St.Ak.
Það hefði nefnilega skyndilega
komið á daginn, að verulegir á-
gallar hefðu „komið upp við vinnu
við núverandi starfsmatskerfi og
því væri ekki unnt að notast við
kerfið og niðurstöðu úr því við
endurmat starfa“. Þessi hrikalega
brotalöm á matskerfinu kæmi
m.ö.o. í veg fyrir að unnt væri að
lagfæra kjör þeirra starfsmanna
bæjarins sem hvað lökust kjörin
hefðu og síðastir komu til endur-
mats! Allt í einu reyndist handó-
nýtt það starfsmatskerfi sem fýlgt
inu, t.d. á sviði heilbrigðis-, fé-
lags- og menntamála og vill
tryggja íbúum landsins jafnan rétt
til þessarar þjónustu án tillits til
efnahags og búsetu.
Á undanförnum vikum hef ég
ferðast víða um kjördæmið og
kynnst fólki. Þessi viðkynni eru
mér mjög dýrmætt vegarnesti og
ég er ákaflega þakklát fyrir þær
viðtökur og vináttu sem mér var
sýnd í þessum heimsóknum. Fái
ég til þess brautargengi mun ég
leggja mig alla fram og vinna af
krafti að hagsmunamálum allra
íbúa kjördæmisins.
Góðir framsóknarmenn. Við
skulum sameinast um að velja
sterkan lista framsóknarmanna á
kjördæmisþinginu, lista sem getur
hafði verið um langa hríð! Þess
vegna samþykkti starfskjaranefnd-
in að við 17-menningarnir yrðum
að bíða þess að fá leiðréttingu
okkar kjara þar til nýtt starfsmats-
kerfi yrði tilbúið undir árslok,
jafhvel síðar! Sem ratmabót þótti
nefndinni við hæfi að bjóða
nokkrum okkar tveggja til fjög-
urra launaflokka hækkun, en öðr-
um ekkert. Og eins og fyrr segir
stóð ekki í bæjarstjórninni að
samþykkja þennan ölmusugjöm-
ing.
Það er vægt til orða tekið, að
okkur brá illilega í brún við þessi
tíðindi og þótti ómaklega að okk-
ur vegið. Við áttum svo sannar-
lega ekki von á því, að störf okkar
yrðu svo léttvæg fundin í saman-
burði við störf starfsfélaga okkar.
Við sjáum t.d. ekki réttmæti þess,
að störf almenns starfsfólks í dag-
vist og færniþjálfun séu metin tólf
launaflokkum lægra en þeirra sem
vinna á öðram stað í húsinu, en
fyrir starfsmatið var aðeins þriggja
launaflokka munur á þessum
starfshópum. Við komum þaðan
af síður auga á rökin fyrir því að
unglingur, sem er nýbyrjaður í
eldhúsi, hafi hærri laun en starfs-
maður í býtibúri með 20 ára
starfsreynslu. Starfsmatsnefnd
þótti slíkt launamisræmi ekki
heldur réttlætanlegt og undir það
sjónarmið hafa formaður St.Ak.,
stjórn og framkvæmdastjóri
Höfða tekið.
Meðal annars af þessum ástæð-
um sættum við okkur hvorki við
þessa meðhöndlun né ölmusu
starfskjaranefndar. Á fundi sem
haldinn var 23. ágúst sl. mótmælt-
um við harðlega afgreiðslu nefnd-
arinnar og óskuðum eftir því, að
úrskurður starfsmatsnefndar yrði
látinn standa. Þessum tilmælum
höfnuðu hins vegar bæði starfs-
kjaranefnd og bæjarstjórnin ný-
lega með vísun til fyrri ákvörðun-
ar. Af þeirra hálfu virðist málið
endanlega afgreitt.
Margt fleira mætti segja afþessu
tilefni um framkomu starfskjara-
nefndar og bæjaryfirvalda í okkar
garð. Það verður látið kyrrt liggja
að sinni. Hins vegar viljum við
leitt flokkinn til forystu og góðra
verka í þágu kjördæmisins og
landsins alls.
Herdís A. Sæmundardóttir,
framhaldsskólakennari
á Sauðárkrókt
með þessu bréfi óska skilmerki-
legra svara frá þér sem forseta
bæjarstjórnar Akraness um eftir-
talin atriði:
1) Telur þú þessa málsmeðferð
gagnvart fáeinum starfs-
mönnum Höfða réttláta í
ljósi þess að starfsfélagar
þeirra og aðrir starfsmenn
bæjarins hafa nú um margra
mánaða skeið fengið laun sín
greidd á grandvelli nýs
starfsmats?
2) Hvaða rök era fyrir því að ekki
er hægt að nota núverandi
starfsmatskerfi við endurmat
á okkar störfum, þótt það hafi
nýst við mat á störfum allra
annarra?
3) Era ekki enn í gildi þau ákvæði
kjarasamnings St.Ak. og
Akranesbæjar að nota skuli
núverandi endurmatskerfi á
meðan nýtt matskerfi hefur
ekki verið samþykkt af máls-
aðilum?
4) Hversu hárri upphæð nemur á
ársgrandvelli sú launahækk-
un sem starfsmatsnefnd taldi
okkur verðskulda eftir endur-
mat á störfum okkar?
5) Má vænta þess að þú og aðrir
bæjarfulltrúar breytið afstöðu
ykkar til afgreiðslu starfs-
kjaranefndar ffá 16. ágúst og
20. september sl.?
Með von um skjót og skýr svör.
Akranesi, 11. nóvember 2002,
Jóna Björk Guðmundsdóttir
Vilborg Guðjónsdóttir
Guðbjórg Halldórsdóttir
Baldur Magnússon
Sigurbjórg Jónsdóttir
Friðmey Barkardóttir
Sigrún Traustadóttir
Emilía Amadóttir
Ambjörg Kristvinsdóttir
Guðný Guðjónsdóttir
Elsa H. Hjörleifsdóttir
Lára V. Jóhannesdóttir
Svanhildur Skarphéðinsdóttir
Margrét G. Rögnvaldsdóttir
Vigdís Jóhannsdóttir
Gerður Guðjónsdóttir
Asthildur Theodórsdóttir
Jónas var einn góðan
veðurdag staddur í Landa-
kotskirkju og þá sá hann hvar
maður á hækjum skjögraði inn í
kirkjuna með miklum erfiðis-
munum og hökti yfir að
skálinni með vígða vatninu. Þar
sá Jónas að maðurinn setti aðra
höndina í skálina og setti dálítið
af vígða vatninu á báðar fætur
sínar. Þvínæst kastaði hann
báðum hækjunum í burtu.
Jónas hljóp til katólska
prestsins og sagði honum það
sem hann hafði séð.
„Vinur minn, þú hefur orðið
vitni að kraftaverki," sagði
presturinn. „Hvar er maðurinn
núna?“
„Hann liggur á bakinu við
hliðina á skálinni með vígða
vatninu," sagðijónas.
Magga fór á fjölskyldu-
fjallabiffeiðinni á næstu bensín-
stöð og fyllti hann af bensíni.
Til að spara nokkrar krónur,
ákvað hún að fylla sjálf. Að því
loknu ók hún í burtu, en efrir
smá stund rifjaðist það upp fyrir
henni að hún hafði gleymt að
setja lokið á bensíntankinn.
Hún stoppaði og gáði, og mikið
rétt, lokið vantaði.
Nú vora góð ráð dýr, en
henni datt í hug að annað fólk
hefði líklega gert þessi sömu
mistök, svo að það væri líklega
þess virði að fara að fýrstu
beygjunni ffá bensínstöðinni og
athuga hvort þar væru ekki
bensínlok sem hún gæti notað.
Þó hun finndi ekki sitt eigið, þá
gæti hún líkast til fundið annað
sem passaði.
Hún gerði einmitt þetta og
eftir smá leit fann hún
bensínlok sem passaði og hún
skrúfaði það á þangað til hún
heyrði smá smell.
Þegar hún kom heim, sagði
hún Jónasi frá þessu og bætti
við hreykin, „Og svo er þetta
bensínlok miklu betra en það
sem við höfðum áður. Það er
með lás!“
Einar bóndi er nýbúinn að
kaupa sjálfvirka mjaltavél sem
kýmar ganga sjálfar í og láta
vélina mjólka sig. Fyrir
nokkram dögum komu menn
til Einars og settu nýju
mjaltavélina saman, tengdu
hana og kenndu honum að nota
tækið. Þegar þeir vora famir
ákvað Einar að ffamkvæma smá
gæðapróf áður en kúnum yrði
hleypt í nýju vélina. Hann setti
tólið sitt í einn stútinn og
kveikti á vélinni. Viti menn,
sjálfvirka mjaltavélin reyndist
hreinn unaður og hún er mun
betri en eiginkonan. Þegar
Einar var búinn að fa nóg og
ætlaði að hætta uppgötvaði
hann sér til mikils hrylhngs að
hann var fastur við mjaltavélina
og það var alveg sama hvað
hann reyndi, vélin vildi ekki
sleppa. Að lokum hugkvæmdist
honum að taka fram gemsann
og hringja í þjónustufulltrúann
hjá seljanda mjaltavélarinnar.
Þar fékk hann þær upplýsingar
að mjaltavélin sleppi spenanum
um leið og sex lítrar mjólkur
hafi runnið úr kúnni.
l^mninn
Opið bréf til forseta bæjarstjórnar Akraness,
Sveins Kristinssonar