Skessuhorn - 12.02.2003, Blaðsíða 11
MIÐVTKUDAGUR 12. FEBRUAR 2003
11
jtttssunu...
Silfriö í annað sinn
Þrátt fyrir að hafa byrjað leik-
inn af miklum krafti urðu Snæ-
fellingar að beygja sig fyrir of-
ureflinu í bikarúrslitaleiknum
Hlynur Bæringsson
gegn Keflvíkingum I Laugar-
dalshöllinni síðastliðinn laugar-
dag. Snæfellingarnir komu vel
stemmdir til leiks, dyggilega
studdir af sínum áhangendum
sem fjölmenntu í höllina. Þó er
ekki ólíklegt að Hólmararnir hafi
gert sér grein fyrir því fyrirfram
að þarna væru þeir í hlutverki
Davíðs gegn Golíat og kann
það að hafa skipt máli þegar
leið á leikinn og Keflvíkingar
náðu yfirhöndinni.
Leikurinn var ekki mikið fyrir
augað og eftirminnilegasta at-
vikið er án efa slagsmál tveggja
öflugustu leikmanna leiksins,
þeirra Damon Johnson úr Kefla-
vík og Hlyns Bæringssonar úr
Snæfelli. [ viðureign þeirra sló
sá fyrrnefndi til hins, sem hlýtur
að teljast brottrekstrarsök.
Dómararnir tóku hinsvegar þá
ákvörðun að deila refsingunni
milli slagsmálahundanna og
létu þá hafa sitt hvort tæknivítið.
Jafnræði var með liðunum
fyrsta leikhlutann og að honum
loknum var staðan 19-16. Um
miðjan annan leikhluta var hins-
vegar farið að
dofna yfir Snæ-
fellingum og þá
kom munurinn á
liðunum í Ijós
sem felst
annarsvegar í
breidd leik-
mannahópsins
og hinsvegar I
leikreynslunni.
Staðan í hálfleik
var 46 - 33 og
eftir það var
aldrei spurning um hvoru megin
sigurinn lenti. Mest komust
Keflvíkingar í 30 stiga forystu,
en á tímabili datt allt ofan í hjá
þeim á meðan Snæfellingar
gátu illa fótað sig gegn pressu-
vörn Suðurnesjamannanna og
voru að missa boltann klaufa-
lega á stundum. í lok þriðja leik-
hluta var staðan 73 - 44 en í
þeim síðasta tók við hálfgerð
flugeldasýning þar sem liðin
skiptust á að skjóta og skoruðu
um þrjátíu stig hvort. Lokatölur
leiksins urðu 95 -71.
Bestu menn Snæfells í leikn-
um voru þeir Clifton Bus, Helgi
Guðmundsson og Hlynur Bær-
ingsson.
Tölurnar - Snæfell
Nr Nafn Mín HF STO STIG
4 Baldur Þorleifsson 2 0 1 0
5 Andrés M. Heiðarsson 1 1 0 0
6 Atli R. Sigurþórsson 15 1 1 0
7 Jón Ó. Ólafsson 23 8 1 6 1
8 Helgi R. Guðmundss. 35 4 7 7
10 Sigurbjörn Þórðarson 17 1 1 0 1
11 Clifton Bush 40 14 4 30
12 Lýður Vignisson 34 4 0 10
13 Guðlaugur 1. Gunnarss. 3 1 0 0
14 Hlynur E. Bæringsson 30 6 2 17
Sigur-
karl í
fjórða
Frjálsíþróttamaðurinn
Sigurkarl Gústafsson úr
UMSB náði góðum árangri á
Meistaramóti íslands í frjáls-
um íþróttum innanhúss um
síðustu helgi en hann hafnaði
í fjórða sæti í 60 m. hlaupi á
tímanum 7,16.
FIMA í þremur
efstu sætunum
Alls 24 stúlkur, á aldrinu 8-
12 ára, frá Fimleikafélagi
Akraness tóku þátt í Pæju-
móti Hamars sem fram fór í
Hveragerði um síðustu helgi.
Mótið var það fyrsta sem
stúlkurnar taka þátt í og var
árangurinn framar öllum von-
um.
Keppt var í 1. þrepi og 1,-
þrepi B í almennum fimleik-
um og tóku Skagastelpurnar
þátt í síðarnefnda þrepinu.
Fyrirkomulag mótsins var
með þeim hætti að sex stúlk-
ur voru saman í liði og töldu
fimm bestu einkunnirnar
samanlagt hjá hverju liði.
Eins og áður segir stóðu
stúlkurnar sig framar vonum.
FIMA varð í 1., 2., 3. og 5.
sæti af 9 liðum.
Aukaaðal-
fundur KÍA
Aukaaðalfundur Knattspyrnu-
félags ÍA var haldinn sl. þriðju-
dag í íþróttamiðstöðinni á Jað-
arsbökkum. Aðalfundur félags-
ins hafði farið fram fyrir tölu-
verðu síðan, en vegna nýrra
reglna frá KSÍ þurfa ársreikn-
ingar knattspyrnufélaga á ís-
landi í dag að fyigja almanaks-
árinu en hingað til hefur upp-
gjörið hjá ÍA miðast við októ-
ber til október. Aðalefni fund-
arins var því að leggja fram
reikninga fyrir október, nóvem-
ber og desember 2002 en að
auki tóku Ólafur Þórðarson,
þjálfari mfl., Ingibjörg H. Ólafs-
dóttir, þjálfari 2.fl. kvenna, og
Þór Hinriksson, yfirþjálfari
yngri flokkanna, til máls þar
sem þau stikluðu á því helsta
sem viökemur flokkunum
þeirra í dag sem og þeim verk-
efnum sem framundan eru.
HJH
Körfuknattleikur, 2. deild
Góður árangur
Vesturlandsliða
Skagamenn hafa tekið for-
ystu í A riðli 2. deildar í
körfuknattleik. Liðið er með
16 stig eftir 11 leiki en í öðru
sæti er Keflavík B sem á
reyndar tvo leiki til góða.
Skagamenn léku síðast þann
1. febrúar og sigruðu þá Val C
á útivelli 111-90 og viku áður
sigruðu þeir Deigluna á Akra-
nesi 83 -73. Næsti leikur liðs-
ins er við Keflavík B á Skag-
anum næstkomandi föstu-
dag.
í D riðli leika tvö önnur Vest-
urlandslið, Grundarfjörður og
Reynir Hellissandi. Grundfirð-
ingar eru í öðru sæti riðilsins
með 16 stig, aðeins tveimur
stigum á eftir Selfossi/Laug-
dælum C. Reynir Hellissandi
er hinsvegar í neðsta sæti
með tvö stig. Síðasti leikur lið-
anna var innbyrðis viðuregn
þeirra þann 1. febrúar
síðastliðinn og sigruðu
Grundfirðingar 82 -76. Viku
fyrr töpuðu Grundfirðingar
hinsvegar fyrir Þór Þorláks-
höfn B 61 - 83. GE
Molar
Eins og sagt hefur verið
frá hér á síðunni hefur
landsliðsmaðurinn fyrrver-
andi, Ólafur Adólfsson tekið
við þjálfun meistaraflokks
Skallagrfms í knattpspyrnu.
Liðið lék sinn fyrsta leik
undir hans stjórn um síð-
ustu helgi. Skallagrímur
mætti þá ÍH úr Hafnarfirði í
æfingaleik á Ásvöllum.
Skallagrímur sigraði 5 - 4
en sigur hefur verið sjald-
gæfur síðustu misseri og
vonandi að það færist í
aukana.
Bruni hefur ekki tilkynnt lið
á íslandsmótið í 3. deild að
þessu sinni en samkvæmt
upplýsingum af heimasíðu
liðsins hafa Brunamenn á-
kveðið að taka sér ársfrí.
Vesturlandsliðunum á ís-
landsmótinu fækkar þar
með um eitt og verða því
aðeins þrjú að þessu sinni,
þ.e. ÍA í úrvalsdeild og
Skallagrímur og Víkingur
Ólafsvík f þeirri þriðju. Vík-
ingarnir koma því aftur inn
undir sínu nafni en síðustu
tvö ár hefur HSH sent lið til
keppni sem reyndar hefur
að stærstum hluta verið
skipað Víkingum.
Nokkrir leikmenn úr Bruna
hafa mætt á æfingar hjá
Skallagrími að undanförnu
og sex Brunamenn léku
með liðinu gegn ÍH á föstu-
dag.
Raðað hefur verið í riðla
fyrir íslandsmótið í þriðju
deild. Vesturlandsliðin,
Skallagrfmur og Víkingur
Ólafsvík munu leika í riðli
með Boltafélagi ísafjarðar,
Bolvíkingum, Drangi frá Vík
í Mýrdal, Gróttu frá Sel-
tjarnarnesi og Reykjavíkur-
liðunum Deiglunni og
Núma.
IÞKOI IAMíMMLAG
AKRANESS
Guðjón Guðmundsson, markaðsstjóri Vífifells, afhenti fyrir hönd fyrir-
tækisins rekstrarfélagi mfl. ÍA i knattspyrnu styrk uppá ríflega 800 þús-
und krónur sem var hlutur ÍA í söluátaki Vífilfells á Akranesi. Vífilfell
styrkir ÍA með því að láta 5 krónur af hverjum seldum lítra af kóki á
Akranesi renna til félagsins á meðan íslandsmótið í knattspyrnu stend-
ur yfir eða frá byrjun maí fram til loka september.
Á myndinni má sjá Guöjón (t.h.) afhenda formanninum, Gunnari Sig-
urðssyni ávísunina.
IÞROTTAMIÐSTOÐIN BORGARNESI
KR-ingarnir koma!
Nú er það baráttuleikur fyrir
veru okkar í deildinni.
Tökum þátt í leiknum og
hvetjum okkar menn!
Klappstýrur dansa!
Mætum öll á baráttuleik!
SKALLAGRIMUR - KR
Föstudaginn 14. febrúar
kl. 19:15