Skessuhorn - 30.07.2003, Blaðsíða 4
4
MIÐVIKUDAGUR 30. JULI 2003
jntaautnj...
WWW.SKESSUHORN.IS
Borgarnesi: Bjarnarbraut 8 Sími: 437 1677
Fax: 437 1678
Akranesi: Kirkjubraut 3 Sími: 431 3677
SkRIFSTOFUR BLAÐSINS ERU OPNAR KL. 9-16 ALLA VIRKA DAGA
Útgefandi: Skessuhorn ebf 4371677 skessuhorn@skessuhorn.is
Ritstjóri og ábm: Gisli Einarsson 899 4098 ritstjori@skessuhorn.is
Blaðamaður: Hjörtur J. Hjortarson 864 3228 hjortur@skessuhorn.is
Auglýsingar: Hjörtur J. Hjartarson 864 3228 hjortur@skessuhorn.is
Umbrot: Guðrún Björk Friöriksdóttir gudrun@skessuhorn.is
Prentun: Prentmet ehf.
Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14:00 á
þriðjudögum. Auglýsendum er bent a að panta auglýsingaplass tímanlega.
Skilafrestur smáauglýsinga er til 12:00 á priðjudögum.
Blaðið er gefið út í 4.000 eintökum og selt til áskrifenda oa í lausasölu.
Askriftarverð er 850 krónur með vsk. á mánuði en krónur/50 sé greitt með
greiðslukorti. Verð í lausasölu er 250 kr.
437 1677
Samráð
skal haft í
nærveru
kúnnans!
Þar sem ég er alinn upp í guðhræðslu og góðum siðum og
þeirri trú að allir menn séu í eðli sínu góðir (jafhvel að KR-ingum
meðtöldum) þá er ekki laust við að mér gremjist sú neikvæða, öld-
ungis óréttmæta og aldeilis ósanngjarna umræða sem átt hefúr sér
stað að undanförnu um nokkur lítil og saklaus olíufélög sem geta
ekki borið hönd yfir höfuð sér.
Þessum litlu, sætu og saklausu olíufélögum er núið því uin nas-
ir að hafa dundað sér við ólöglegt samráð í samráði hvert við ann-
að. Hefðu þeir oh'ufélagamir haft ólöglegt samræði gætí ég svos-
em skilið þessa múgæsingu en ég fæ ekki skilið allt þetta nöldur
og tuð út af nokkrum vesælum verðtílboðum sem þeir félagarnir
í olíunni sendu hvor öðrum í prófarkalestur. Ef menn mega ekki
lengur gera hvor öðrum vinargreiða án þess að það sé hirt af þeim
bókhaldið eins og það leggur sig þá er orðið vandlifað í þessu
þjóðfélagi.
Það er ljóst að samkeppnisráði er ekki ljóst að hér á ekki að
vera nein samkeppni að ráði. Heiðarleg samkeppni á að sjálfsögðu
ekki að felast í því að fyrirtæki séu að berjast hvort við annað,
blóðug upp að öxlum, um viðskiptavini. Slíkt getur ekki talist
heiðarlegt. Samkeppni á að sjálfsögðu að felast í því að fyrirtækin
keppi saman að því markmiði að ná krónum upp úr vasa neytenda.
Menn verða náttúrulega að átta sig á því að siðferði er eitthvað
sem passar ágætlega að nota í kirkjum á sunnudögum. Það á að
sjálfsögðu engan veginn við í íslensku viðskiptalífi þar sem fyrir-
tækin standa í stöðugri varnarbaráttu við íslenska neytendastofn-
inn sem herjar á þau eins og hver önnur plága og heimtar allt fyr-
ir ekki neitt. Fyrirtækin þurfa meira svigrúm en rammi laganna
veitír þeim og því verða þau að hafa samráð undir rifi hverju ef
vægðarlausir viðskiptavinir eiga ekki að rýja þau inn að skyrtunni.
Enn syrtír í álinn fyrir aumingjans litlu, og bjargarlausu olíufé-
lögunum. Oprúttnir aðilar ætla að ryðjast inn á markaðinn á
skímgum skónum án nokkurs samráðs við þá sem honum ráða og
bjóða eldsneyti á einhverjum útsöluprís. Eins og gömlu góðu ol-
íufélögin eigi ekki nógu bágt nú þegar.
Nú eru góð samráð dýr og ef ekki á illa að fara þurfa nú þegar
að fara í gang samræður urn samráð því ekki er hægt að leyfa ein-
hverju utanaðkomandi olíufélagi að valsa hér um eins og ekkert sé
og dreifa ódýru bensíni tíl hægri og vinstri. Þar að auki olíufélagi
sem er enn það ungt að það er ekki einu sinni orðið samráða.
Leyfið olíufélögunum að koma tíl mín og bannið þeim það
ekki.
Gísli Einarsson, samráðhen'a.
Gísli Einarsson,
ritstjóri.
Hvallj arðargangaverkefrrið
vel á veg komið
Vinna stendur nú sem hæst
við rannsóknarverkefni um áhrif
Hvalfjarðarganganna á samfé-
lagið á Vesturlandi sem unnið er
af atvinnuráðgjöf Vesturlands í
samvinnu við fleiri aðila. Verk-
efninu er ætlað að finna út hvaða
áhrif tilkoma ganganna hefur
haft á búsetuþróun og búsetu-
skilyrði á Vesturlandi síðastliðin
fimm árin.
„Vinna við verkefnið hefur
gengið mjög vel en það hefur
tafið verklok að farið var í skrif-
lega spurningakönnun meðal
íbúa á Vesturlandi í stað síma-
könnunar en það var gert vegna
þess að skrifleg könnun á að gefa
nákvæmari svörun. Eins hefur
önnur gagnaöflun verið tíma-
ffekari en ráð var fyrir gert,“
segir Olafur Sveinsson, for-
stöðumaður atvinnuráðgjafar
Vesturlands. Hann segir að
stefnt sé að verklokum um næstu
áramót en einhverra niðurstöðna
sé að vænta á haustdögum.
Mikilvægt að svara
„Rannsóknarstofhun Háskól-
ans á Akureyri er um þessar
mundir að vinna fyrir okkur
skriflega spurningakönnun þar
sem meðal annars er leitast svara
við því hverju göngin hafa breytt
um ferðavenjur fólks á Vestur-
landi og hugsanleg áhrif á
vinnumarkaðinn. Einnig er
spurt um hvort göngin hafi
breytt viðhorfum fólks til búsetu
á svæðinu og um almennings-
samgöngur ofl. Spurningalist-
arnir voru sendir út til 1500 ein-
staklinga samkvæmt slembiúr-
taki og við höfum vísbendingar
um það nú þegar að svörunin sé
nokkuð góð. Gæði og áræðan-
leiki könnunarinnar eykst efrir
því sem hlutfallið er hærra og
því er mikilvægt að þeir sem
fengið hafa könnunina í hendur
taki þátt í henni til að niðurstöð-
urnar séu sem marktækastar,"
segir Olafur.
Annar þáttur í rannsókninni
er að Ólafur og Vífill Karlsson,
hagffæðingur hjá Atvinnuráð-
gjöfinni munu heimsækja öll
stærri sveitarfélög á Vesturlandi
og fyrirtæki og ræða við heima-
menn á hverjum stað. „Þessi
rannsókn er mjög umfangsmikil
og óvenjuleg að því leyti að við
erum bæði að nota unnin gögn
og frumunnin gögn og einnig að
því leyti að við re)tnum að nálg-
ast málið ffá þremur sjónar-
homum og stillum saman að-
ferðafræði félagsfræðinnar, hag-
fræðinnar og verkfræðinnar,“
segir Vífill.
Vísbendingar
Ólafur segir að nú þegar séu
komnar vísbendingar um að nið-
urstöður rannsóknarinnar geti
orðið mjög athyglisverðar en
hann var ófáanlegur til að segja í
hverju það fælist. „Við skynjum
allavega og sjáum að það hafi
verið full ástæða til að gera þessa
könnun,“ segir Ölafur. GE
Umferðareftirlit um helgina
Ef effirvagn hindrar baksýn úr ekki vera þyngri en helmingur
dráttarbílnum þarf að fram- af eiginþyngd dráttarbílsins.
lengja hliðarspegla bílsins báðu Almenna reglan er sú að
Frá Eldborg, verslunarmannahelgina 2001.
Framundan er ein mesta
umferðarhelgi ársins, verslun-
armannahelgin. Lögregluliðin
á Vesturlandi í samvinnu við
lögregluna í Reykjavík og Rík-
islögreglustjórann standa í
sameiningu að löggæslu á
Vesturlandi um verslunar-
mannahelgina. Að undan-
förnu hefur verið talsverð um-
ræða um tengivagna í umferð-
inni og þá sérstaklega um felli-
hýsi og tjaldvagna.
Alltaf er eitthvað um að
ökumenn fari ekki að þeim
reglum sem í gildi eru og oft
hreinlega vegna vanþekkingar.
Að þessu sinni verður hugað
sérstaklega að eftir og tengi-
vögnum í umferðinni og er
gert ráð fyrir að lögreglumenn
fylgist með ferðalöngum með
þessi tæki í upphafi ferðar þ.e.
þegar ekið er frá þéttbýlis-
kjörnum. Ökumenn mega því
gera ráð fyrir að verða stöðv-
aðir af lögreglu sem kannar
hvort öryggisatriði eru í lagi.
Lögreglumenn sem að þessari
könnun standa hafa fýrirmæli
um að banna frekari akstur
með vagnana ef öryggisatrið-
um er ábótavant.
A heimasíðu Umferðarstofu
(umferdarstofa.is/default.asp )
er að finna hagnýtar upplýs-
ingar varðandi eftirvagna og
eru eftirfarandi leiðbeiningar
hluti af því sem þar kemur
fram. Allir eftirvagnar skulu
búnir ljósum, sem eru hliðstæð
aftur- og hliðarljósum bifreiða.
megin. Speglarnir skulu gera
ökumanni kleift að sjá beggja
vegna aftur með tækinu.
Eftirvagn má ekki vera
breiðari en 2,5 metrar og ekki
ná meira en 30 cm út fyrir
hvora hlið dráttarbílsins, þ.e.
ekki vera meira en 60 cm
breiðari en dráttarbíllinn.
Eftirvagn má aldrei vera
þyngri en skráð er í skráningar-
skírteini dráttarbílsins, annars
vegar fyrir vagn án hemla og
hins vegar fyrir vagn með
hemlum.
I eldri bílum eru þessar
þyngdir ekki skráðar í skrán-
ingarskírteini og gildir þá regl-
an að eftirvagn án hemla má
fólksbifreið og sendibifreið
með eftirvagn má ekki aka
hraðar en 80 km/klst. Bílar
með óskráð tengitæki mega
ekki fara hraðar en 60 km/klst.
Enn munu vera í umferðinni
nokkrir gamlir eftirvagnar,
sem eru með leyfða heildar-
þyngd meiri en 750 kg og án
hemla. Eru þeir frá þeim tíma
áður en reglur voru settar um
að allir eftirvagnar með leyfða
heildarþyngd yfir 750 kg skuli
búnir hemlum. Hámarkshraði
með þessa eftirvagna er 60
km/klst en rétt er að benda á
að ekki eru nema fáir bílar sem
mega draga þessa vagna.
Lögreglan í Borgarnesi