Skessuhorn - 30.07.2003, Síða 8
MIÐVTKUDAGUR 3Q.JULI 2003
^ik£9SltlUu.
Vel heppnað átak t
fækkun umferðaslysa
Undanfarin ár hafa Vega-
gerðin í Borgarnesi, lög-
reglan, bændur og aðrir
landeigendur ásamt íjölda
vegfarenda tekið höndum
saman um að draga úr og
helst koma með öllu í veg
fyrir umferðarslys vegna
búfjár á vegsvæðum helstu
umferðarvega svæðisins.
Vegagerðin hefur tekið
I að sér viðhald girðinga
meðfram þeim vegum þar
sem umferðarþunginn er
mestur. Hún hefur einnig
látið smala sömu vegi einu
sinni í viku, venjulega á að-
| faranótt föstudags.
Lögreglan hefur safnað
I upplýsingum um óhöpp og
lausagöngu og séð til að
hestar og sauðkindur væru
fjarlægðar af vegunum.
Bændur hafa sífellt orðið
I virkari í að gæta þess að fé
komist ekki inn á vegsvæðin
meðal annars með því að sjá
til þess að hlið standi ekki
opin og með því að smala
búpeningi af vegsvæðunum
þegar þeir hafa orðið varir
við eða verið tilkynnt um
lausagöngu.
Vegfarendur hafa einnig
sífellt orðið virkari í að til-
kynna lögreglu um búfé á
vegsvæðum þar sent þeir
aka um.
Allir þessir eiga sérstakar
þakkir skildar enda er nú
svo komið að fjöldi óhappa
og slysa vegna búfjár á
helstu vegum á Vesturlandi
er aðeins orðinn lítið brot
af því sem hann var ár
hvert.
Samstaða allra aðila hefur
nánast öll verið á einn veg.
Meðal annars í Ijósi þess
og svo hins að síðustu vikur
hafa orðið þrjú banaslys í
umferðinni auk fjölmargra
minni slysa og eignatjóns
hrökkva menn ónotalega
við þegar hlutir gerast eins
og nýverið við hringveginn
gegnt veitingaskálanum
Baulunni í Borgarfirði.
Einhverjum varð þar á að
taka ófrjálsri hendi spenni-
stöð, rafgeymi og sólarraf-
hlöðu við rafgirðingu sem
þarna er.
Sjálfsagt hefur viðkom-
andi ekki komið í hug að
hann gæti með þessu orðið
valdur að slysi - jafnvel líf-
tjóni.
Því er hér með komið á
framfæri við hann og aðra
sem hugsanlega vita af
þessu að sjá til þess að hlut-
unum verði komið til skila
að veitingaskálanum Baul-
unni.
Það má vel gerast í skjóli
nætur því eigendur útbún-
aðarins hafa engan áhuga á
að koma fram refsingu.
A hinn bóginn væri mjög
ánægjulegt ef tækist að
vekja þó ekki væri nema
einn mann til vitundar um
það gildi sem átakið sem
hér hefur verið lýst hefur
fyrir fjölda fólks.
Með bestu kveðjum.
Jenni R. Olason.
7^e/uiinn~f
Margrét Jánsdóttir
Orfá orð til Dagbjarts
Dagbjartssonar
Heill og sæll Dagbjartur!
Þakka þér bréfið þann 19.
I júní, sem ég ætla ekki að
svara, þar sem ég hef komið
öllum mínum skoðunum á
framfæri í fyrri skrifum, og
ef ég reyndi eitthvað að
svara því, þá yrði það bara
enn ein endurtekningin á
þeim. Oþarfa pappírseyðsla.
En..........þó þetta!
Fátt þykir fólki skemmti-
I legra en þegar einhverjum
1 verður á í messunni og það
tókst mér í svari mínu til þín
á dögunum, er ég óskaði þér
góðs gengis í ræktun í Hvít-
ársíðu, sem er jú hið besta
mál í sjálfu sér.
Veit ég vel, Dagbjartur, að
Refsstaðir eru í Hálsasveit.
Eg veit Iíka hvar Hvítársíða
er. En þarna urðu mér á
I mistök, því í stað „í Hvítár-
síðu“ átti að standa „á Hvít-
árbökkum“ (bökkum Hvít-
ár).
Bið ég þig innilega afsök-
unar á þessari yfirsjón minni
og þakka þér jafnframt á-
bendinguna, því annars
hefði ég ekki fengið tækifæri
til að leiðrétta mig.
Reyndar voru tvær aðrar
prentvillur í sömu grein en
þar er ég saklaus. I stað
orðsins „dreifbýlisfólk“ á
tveimur stöðum, átti að
standa „sveitamenn“. Leið-
réttist það hér með.
Eg skal svo fuslega viður-
kenna að það er svoleiðis
langt í frá að ég geti „feðr-
að“ alla sveitabæi á Islandi
rétt. Og þó að þú sért bóndi
þá er ég viss um að það er
þér líka um megn.
Sveitamenn eru reyndar
heppnir að ég skuli ekki
kenna landafræði, því sú
landafræðikennsla yrði ekki
með hefðbundnum hætti.
Svo mikið er víst.
Gangi þér svo vel með
uppgræðsluna á Hvítár-
bökkum (bökkum Hvítár).
Mér finnst það FRÁ-
BÆRT framtak og göfugt
að stunda landgræðslu og
mesti misskilningur hjá þér
að það sé viðtekin regla á
landi voru að menn standi í
því að bæta upp tapaðan
gróður. Ef þeir hefðu gert
það væri ástandið á gróður-
hulu landsins ekki eins
slæmt í dag og raun ber
vitni.
Margrét Jónsdóttir,
Melteigi 4, Akranesi
melteigur@simnet. is
80 ára aftnæli
Vatnaskógar
Sæludagar í Vatnaskógi verða
nú haldnir í tólfta sinn um
Verslunarmannahelgina, en
þeir eru að þessu sinni tileink-
aðir 80 ára afmæli sumarbúð-
anna. Margt verður við að vera
á Sæludögum um verslunar-
mannahelgi. Bátar, kvöldvökur,
fjölskyldustundir, varðeldur og
margt fleira. Þá munu KK,
Magnús Eiríksson og Ellen
Kristjánsdóttir koma fram á
tónleikum á laugardagskvöld-
inu.
Vatnaskógur er einstakur
staður fyrir íjölskylduhátíð á
borð við Sæludaga. Oll aðstaða
er til mikillar fyrirmyndar, góð
aðstaða á sléttum flötum fyrir
tjaldsvæði og góð hreinlætisað-
staða í húsunum á svæðinu.
Sæludagar í Vatnaskógi eru
að sjálfsögðu vímulaus íjöl-
skylduhátíð og öll neysla áfeng-
is er stranglega bönnuð á svæð-
inu. Hátíðin er styrkt af For-
varnarsjóði. Dagskrá Sæludaga
og nánari upplýsingar eru á
www.kfum.is.
Verði á hátíðina er stillt í hóf.
Það kostar 3.000 krónur fyrir
einstakling, en þó aldrei meira
en 7.000 krónur fyrir fjöl-
skyldu. Einnig er hægt að koma
í dagsheimsókn og kostar þá
2.000 krónur inn á svæðið. Ef
einhver hyggst aðeins fara á
tónleikana kostar það jafnframt
2.000 krónur, en er að sjálf-
sögðu ókeypis fyrir Sæludaga-
gesti.
('fréttatilkynning)
Söguferðir Sæmundar
um verslunarmanna-
helgina
Laugardaginn 2. ágúst verð-
ur ganga um slóðir Víglundar-
sögu með Sæinundi Kristjáns-
syni sagnamanni frá Rifi. Lagt
verður upp frá Ingjaldshóli kl.
13. Gengið verður upp á Viður-
hlíð (Bleikshamar). Á leiðinni
sér til fjölmargra staða sem get-
ið er um í Víglundarsögu og
Bárðarsögu. Áætlaður göngu-
tími er fjórar klukkustundir.
Gangan er að mestu á jöfnu og
þurru Iandi. Sunnudaginn 3. á-
gúst verður svipast um í Fróð-
árhverfi. Lagt verður upp kl. 13
frá golfskálanum við Fróðárvöll
innan Olafsvíkur. Farið verður
um svæðið þar sem Fróðár-
undrin áttu sér stað. Gengin
verður hluti þjóðleiðarinnar
um Kambsskarð, en þá leið
gekk Björn Ásbrandsson meint-
ur ástmaður Þuríðar húsfreyju
á Fróðá. Aætlaður göngutími er
tvær til þrjár klukkustundir.
Þátttaka er gestum að kosmað-
arlausu, allir velkomnir.
(Fréttatilkynning)