Skessuhorn


Skessuhorn - 15.12.2004, Qupperneq 1

Skessuhorn - 15.12.2004, Qupperneq 1
VIKUBLAÐ A VESTURLANDI - 49. tbl. 7. árg. 15. desember 2004 OPIÐ: Virka daga 10-19 Laugard. 10-18 Sunnud. 12-18 netté alltaf gott - alltaf ódýrt Kr. 300 í lausasölu Gott hljóð í kaupmönnum Nú er jólaverslunin að ná hámarki sínu. Skessuhorn heyrði hljóðið í nokkrum kaupmönnum á Vesturlandi og lém menn almennt mjög vel af verslun það sem af er aðventu, ýmist væri aukning eða svipað og í fyrra. Gunnar Kristjánsson í Hrannarbúð- inni í Grundarfirði og Guðni Tryggvason í Módel á Akra- nesi sögðu báðir að verslun væri mjög svipuð og síðasta ár í verslunum þeirra sem væri ágætt í ljósi þess að þá hafi hún verið góð. Gunnar í Hrannarbúðinni sagði sam- drátt í bóksölu þar sem ekki væri hægt að keppa við verð stórmarkaða en aukning væri í annarri vöru á móti. Guðni í Módel sagði fólk hafa byrj- að jólainnkaupin snemma og hafi nóvember þannig verið mun betri en í fyrra og spáði hann góðu með dagana ffam til jóla. I Samkaupum, Hyrnutorgi í Borgarnesi fengust þær upplýsingar að talsverð aukning væri í sölu milli ára. Asta Gísladóttir verslunarstjóri í Bjargi á Akranesi lét vel af sölunni hjá sér og sagði hana töluvert meiri en í fyrra. MM Auglýsinga- frestur Skessuhorn minnir á að síðasti fresmr til að panta og skila inn efni í auglýsingar í jólablað Skessuhorns er á morgun, fimmtudaginn 16. desember klukkan 16:00. Síminn er 433-5500. Það var kátt yfir börnunum í Brekkubæjarskóla sl. fimmtudag en þá var nýjasti sparkvöllurinn í sparkvallaátaki KSI og sveitarfélaga vígður við hátíðlega athöfn. Völlurinn stendur við Brekkubæjarskóla og er fullnýttur öllum stundum frá morgni og fram á rauða kvöld. Sjá bls. 22 Ljósm. MM Metár í bameignum Samkvæmt upplýsingum frá bæjarskrifstofúm Borgar- byggðar eru barnsfæðingar í sveitarfélaginu í ár orðnar 3 8 eða fleiri en verið hafa all- mörg síðustu ár. Meðalfjöldi í árgangi hefur verið á bilinu 25 - 30 nokkur síðusm ár og því ljóst að Borgfirðingar hafa sinnt þessunt mála- flokki af mikilli alvöru á ár- inu. A fæðingardeild SHA höfðu rnenn sömu sögu að segja. I gær höfðu fæðst 211 börn það sem af er árinu og stefnir í metfjölda, eða yfir 220 börn fyrir árantót. Slík- ur fjöldi barna hefur ekki fæðst þar á einu ári í mörg ár eða áratugi. GE/MM Vegurinn yfir Kolgrafarfjörð opnaður Fjöldi fólks safnaðist saman við Berserkseyri áður en nýi vegurinn var opnaður fyrir umferð. Síðastliðinn mánudag var umferð hleypt á nýjan veg og brú yfir Kolgrafarfjörð, tæpu ári fyrr en upphaflega var gert ráð fyrir að framkvæmdum yrði lokið. Að vísu er lokafrágangur eftir og því verður formleg vígsla þessa samgöngumann- virkis ekki fyrr en næsta vor. Fjölmenni var viðstatt þegar vegatálmar voru teknir í burm og Smrla Böðvarsson, sam- gönguráðherra ók í broddi fylk- ingar yfir brúna. Það er óhætt að segja að langþráð stund hafi runnið upp fyrir Snæfellinga því nú er allt norðanvert Snæ- fellsnes tengt saman með bundnu slitlagi. ,Já, þetta er stór smnd fyrir okkur Snæfellinga þar sem þessi nýi vegur tengir saman byggð- ina hér á norðanverðu Nesinu og eykur til muna umferðarör- yggið en vegurinn fyrir Kolgrafarfjörð hefúr oft verið illur yfirferðar," segir Björg Á- gústsdóttir, bæjarstjóri í Grund- arfirði. Hún segir einnig að hinn nýi vegur snúist ekki að- eins um þægilegri ökuferðir heldur hafi hann meðal annars verið gnmdvöllurinn fyrir Fjöl- brautaskóla Snæfellinga sem tók til starfa í Grundarfirði í haust. Þá segir Björg að þverun Kolgrafarfjarðar skipti sköpum fyrir væntanlega hitaveim frá Berserkseyri í Grundarfjörð. Vegurinn yfir Kolgrafarfjörð er tæpir tíu kílómetrar en þar af er sjálf brúin ekki nema 230 metrar. Með tilkomu vegarins hefúr leiðin milli Stykkishólms og Grundarfjarðar stytst um rúma sex kílómetra auk þess sem hún hefúr orðið mun greiðfærari sem fyrr segir. Það voru verktakafyrirtækin Háfell og Eykt sem önnuðust ffamkvæmdir í Kolgrafarfirði en þessi fyrirtæki höfðu frumkvæði að því að framkvæmdatíminn var styttur til muna. GE IIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIU Bráðum koma blessuð iólin... Frábær jólatilbod í sérvörudeild okkar - gefðu spennandi jólagjafir ítábær si0l(. ^ ötl leikföng _ Allt jólaskraut Allir geisladiskar 20% 4Ö%. 30% 20% Afnemum ',s*‘ «»iTum Allt á jólabordid í matvörudeild girnileg tilbod... - W Stórmarkaður Hyrnutorgi Borgarnesi Opið: 18. des. laug. 10-22,19. des. sun. kl. 12-19, 20. des. mán. 9-21, 21. des. þrið. 9-21, 22. des. mið. 9-22, 23. des. fim. 9-23, 24. des. aðfangad. 9-13

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.