Skessuhorn - 15.12.2004, Side 4
4
MIÐVIKUDAGUR 15. DESEMBER 2004
anlUíSlinu^
WWW.SKESSUHORN.IS
Bjarnarbraut 8 - Borgarnesi
Kirkjubraut 54-56 - Akranesi
Sími: 433 5500
Fax: 433 5501
SkRIFSTOFUR BLAÐSINS ERU OPNAR KL. 9-14 ALLA VIRKA DAGA
Útgefandi: Skessuhorn ehf 433 5500
Framkv.stj. og blm. Magnús Magnússon 894 8998
Ritstjóri og óbm: Gísli Einarsson 899 4098
Augl. og dreifing: íris Arthúrsdóttir 696 7139
Umbrot: Guðrún Björk Friðriksdóttir 437 1677
Prentun: Prentmet ehf.
skessuhorn@skessuhorn.is
magnus@skessuhorn.is
ritstjorí@skessuhorn.is
iris@skessuhorn.is
gudrun@skessuhorn.is
Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14:00 á
briojudögum. Auglýsendum er bent a að panta auglýsingaplass timanlega.
Skilafrestur smáauglýsinga er til 12:00 á priðjudögum.
Blaðið er gefið út í 4.000 eintökum og selt til áskrifenda oa í lausasölu.
Askriftarverð er 850 krónur með vsk. á mánuði en krónur/50 sé greitt með
greiðslukorti. Verð í lausasölu er 300 kr.
433 5500
D»g
eftir dag
Gísli Einarsson,
ritstjóri.
Um langa hríð hefur mér liðið eins og ég hafi dagað uppi
í frumskógi hinna f]ölbreyttustu daga. Sá siður hefur nefni-
lega verið tekinn upp á Islandi að leyfa hverjum degi að hafa
sína þjáningu og ekki rennur upp sá dagur hér á landi, mis-
fagur, að honum sé ekki ætlað eitthvað hlutverk. Eg treysti
mér ekki einu sinni til að muna hvaða málstað hver dagur
stendur fyrir, það er alveg dagsatt. I fljótu bragði rifjast þó
upp dagur kvenna, frídagur kvenna, dagur barna, dagur
barnabarna, dagur hestsins, dagur frímerkisins, Dagur Sig-
urðsson og svo framvegis, og svo framvegis.
Sá merki fræðimaður, Arni Björnsson, hefur oftar en ekki
rifjað upp hina fjölmörgu og aldeilis ágætu merkisdaga Is-
lendinga í gegnum tíðina. A meðan höfum við hin hamast
við að gleyma þeiin og finna upp nýja í staðinn eða öllu
heldur að flytja þá inn frá útlöndum.
Við höfum lengi átt dag eftir dag og marga góða daga
jafhvel og því hef ég ekki séð sérstaka ástæðu til að fjölga
þeim, nema þá helst á hlaupári. Sem dæmi um óþarfan auka-
dag má nefna mæðradag og feðradag en hjá flestum foreldr-
urn sem eiga því láni að fagna að hafa börnin sín hjá sér ættu
flestir ef ekki allir dagar að vera annað hvort mæðra- eða
feðradagar. Eins hef ég ekki almennilega botnað í degi
elskenda sem nafnið bendir til að sé einhverskonar fengi-
tími. Nýjustu ósköpin eru svo Þakkargjörðardagurinn sem
margir Islendingar hafa tekið með þökkum. Eg hef reyndar
grun um að það hafi verið íslenskur veitingamaður, þ.e. vert,
sem laumaði þessum degi hingað til lands til þess að geta
selt út á hann kalkúna. Þessi veitingamaður hefur þá verið
nokkurskonar þakkarvert.
Eg held ég geti næstum því fullyrt að ekkert fyrirbæri í
heiminum sé svo fullkomið að það eigi ekki sinn eigin dag,
nema þá kannski ég sjálfur og má í því sambandi nefna að
það er furðulegt að í dagsins amstri skuli engum hafa dottið
í hug að halda upp á gullfallega Gísladaginn.
Það breytir því samt ekki að ég sakna þess þegar gömlu
góðu dagarnir voru enn gömlu góðu dagarnir. Manni líður
hálfpartinn eins og maður sé fastur í fótboltafrasanum „að
taka einn dag fýrir í einu“ og oftsinnis óskar maður sér þess
að geta fengið frídag frá öllum þessum dögum.
Gísli Einarsson, daginn eftir.
Eins og sést er lögreglubifreiðin í Búðardai gjörónýt.
Lögreglubíll eyðilagður
Maður gekk berserksgang á
heimili sínu í Saurbæjarhreppi í
Dölum uin tvöleytið á fimmtu-
dag. Maðurinn réðst að bifreið
lögreglunnar í Búðardal á stór-
virkri vinnuvél og eyðilagði bif-
reiðina. Þá er hann grunaður
um að hafa skömmu síðar
kveikt í íbúðarhúsi sínu. Eng-
Snæfellsbær hefur tekið við
höfðinglegri gjöf, tæpum sex
milljónum króna, sem Svandís
Elínmundardóttir, húsmóðir á
Hellissandi, ánafnaði sveitarfé-
laginu en hún lést síðastliðið
vor. Á gjafabréfi sem sveitarfé-
laginu var afhent í síðustu viku,
af ættingjum Svandísar, kemur
fram að ætlast sé til að pening-
Nýr bátur kom til Ólafsvíkur
fyrir skömmu en það er Geisli
SH 155. Báturinnvar smíðaður
í bátsmiðjunni Knörr á Akra-
nesi og er hinn glæsilegast í alla
staði en fjallað var um sjósetn-
ingu hans í næstsíðasta tölu-
blaði Skessuhorns. Fjöldi
manns kom niður að höfn til að
taka á móti bátnum og var farið
með áhugasama í prufuferð út á
Ólafsvíkina. Eigendur Geisla
SH er Smyrill sem er í eigu
Hjörleifs Guðmundssonar og
inn slasaðist í brunanum og
brunatjón varð ekki mikið en
talsverðar reykskemmdir urðu
inni í húsinu.
Lögreglan í Búðardal hefur
fengið aðra lögreglubifreið lög-
reglunnar í Borgarnesi að láni á
meðan beðið er eftir nýjuin bíl.
GE
unum verði varið til öldrunar-
mála.
„Þetta er höfðingleg gjöf og
góður hugur sem fylgir. Pen-
ingunum hefur ekki verið ráð-
stafað en þeir verða notaðir til
góðra mála í þágu aldraðra,"
segir Kristinn Jónasson bæjar-
stjóri Snæfellsbæjar.
Fríðu Sveinsdóttur og er hún
útgerðarmaðurinn. Mikið er
um að eiginkonur útgerðar-
mannana sjái um útgerðar-
reksturinn í landi en mikil
vinna fer í þann þátt rekstrarins
og margs að gæta.
Þess má geta að annar bátur
kom til Ólafsvíkur þennan
sama dag en það er Konráð SH
og er hann í eigu Bóndabúðar
ehf. Konráð er 18 lestir og er
skipstjóri Sölvi Konráðsson.
PSJ
Sólfell byggir
blokk
,Já það hefur lengi staðið til
og það má segja að það sé nú eða
aldrei,“ segir Sigurður Guð-
mundsson framkvæmdastjóri
byggingafyrirtæksins Sólfells í
Borgarnesi aðspurður um hvort
fyrirtækið sé að fara í byggingu
stórhýsa í Borgamesi eins og
sögusagnir hafa verið uppi um.
„Við erum með lóðir í Arnar-
kletti undir íbúðablokkir. Við
eram með teikningu af níu í-
búða húsi sem ég hef hug á að
láta breyta þannig að í húsinu
verði 16 íbúðir. Það gæti farið
svo að að við byggjum tvö slík
hús ef eitthvað er að marka
fféttafluming af aukinni eftir-
spurn eftir húsnæði hér í bæn-
um,“ segir Sigurður. A öðram
stað er sagt ffá sambærilegum
ffamkvæmdum á vegum Hlíðar-
enda ehf í bænum en það fyrir-
tæki ætlar að byggja 10 íbúða
blokk næstu mánuði. Snöggur
vöxtur er því að færast í bygg-
ingastarfsemi í bænum eftir
nokkurt hlé. GE
Leikskóliim
oflítill
Vegna þeirrar gríðarlegu upp-
byggingar sem á sér stað á
Hvanneyri liggur fyrir að leik-
skólinn Andabær er að verða of
lítill. Umræður eru hafnar í
sveitarstjórn Borgarfjarðarsveit-
ar um stækkun leikskólans og
segir Linda B Pálsdóttir sveitar-
stjóri að þótt engar ákvarðanir
hafi verið teknar séu miklar lík-
ur á að stefnt verði að nýbygg-
ingu sem hægt verði að samnýta
af grunnskólanum og leikskól-
anum á staðnum en stutt er á
milli þeirra. Ekki er þó reiknað
með að ráðast í framkvæmdir á
næsta ári en í vinnu við fjárhags-
áætlun sveitarfélagsins er miðað
við að veita þremur milljónum
til undirbúningsvinnu á árinu
2005. GE
Tvöföldun
Umtalsverðar byggingafram-
kvæmdir standa nú yíir í Borgar-
nesi á atvinnuhúsnæði og til
samanburðar má nefna að
gatnagerðargjöld sem Borgar-
byggð innheimtir í ár eru um
tvöfalt hærri en í fyrra sam-
kvæmt upplýsingum frá bæjar-
skrifstofiinum. GE
Klumba fær lóð
Bæjarstjórn Snæfellsbæjar
hefur ákveðið að úthluta fisk-
vinnslufyrirtækinu Klumbu í Ó-
lafsvík lóð undir starfsemi sína
við Fossá þar sem athafnasvæði
Rarik og Vegagerðarinnar er
fýrir. Sem kunnugt er brann
fiskverkunarhús Klumbu til
kaldra kola í haust en stjórnend-
ur fyrirtækisins hafa síðan stefnt
að því að byggja nýtt húsnæði
undir starfsemina. GE
Höfðingleg gjöf til
Snæfellsbæjar
GE
Eigendur Geisia, þau Fríða Sveinsdóttir og Hjörleifur Guðmundsson
ásamt tvíburunum sínum þeim Arnleifi og Hjörvari um borð í bátnum.
Ekki var annað að sjá en að þeir væru ánægðir með hinn nýja og
glæsilega bát foreldra sinna.
Nýir bátar til Ólafsvíkur