Skessuhorn


Skessuhorn - 15.12.2004, Qupperneq 6

Skessuhorn - 15.12.2004, Qupperneq 6
6 MIÐVIKUDAGUR 15. DESEMBER 2004 jntaaiinu... Nýr nemendagarður á Hvanneyri Síðastliðinn fimmtudag var gengið frá samkomu- lagi um byggingu nýrra nemendagarða fyrir Land- búnaðarháskólann á Hvanneyri. Það eru PJ byggingar ehf á Hvann- eyri sem sjá um fram- kvæmdimar. Um er að ræða fjölbýlis- hús og á það að rísa við Skólaflöt 14 við hlið nem- endagarða sem teknir vom í notkun á síðasta ári. Húsið verður á tveimur hæðum með fjómm tveggja herbergja íbúð- um, ijóram þriggja herbergja í- búðum og sex fjögurra her- bergja íbúðum. Kostnaður við byggingu hússins er um 160 milljónir króna. Samkvæmt samningnum sem undirritaður var af Magnúsi B Jónssyni rekt- or Landbúnaðarháskólans á Hvanneyri og Pétri Jónssyni frá PJ byggingum, á húsið að verða fullbúið 19. ágúst árið 2005. Pétur Jónsson og Magnús B. Jónsson Með þessari viðbót munu nemendagarðarnir á Hvanneyri hafa yfir að ráða 10 einstak- lingsherbergjum með aðgengi að sameign, 20 einstaklingsí- búðum, 20 tveggja herbergja í- búðum, 20 þriggja herbergja í- búðum og 16 fjögurra herbergja íbúðum eða samtals 86 leigu- rýmum í 9 húsum (þar af fjögur fjölbýlishús). Aætluð velta nem- endagarðanna á Hvanneyri eftir að nýr nemendagarður verður tekinn í notkun er um 40 milljónir króna á ári. Inga Osk í Nettó Verslunarstjóraskipti eru nú orðin í Nettó á Akranesi. Arnar Erlingsson, verslunarstjóri hef- ur ákveðið að hverfa á heima- slóðir sínar á Akureyri og mun þar starfa hjá Nettó í Glerár- torgi frá áramótum, en við starfi hans á Akranesi hefur tek- ið Inga Osk Jónsdóttir, við- skiptafræðingur. Hún er borin og barnfæddur Skagamaður en hefur síðustu árin unnið við bókhald og fjármálastjórnun á Isafirði og nú síðast á Akranesi. I samtali við Skessuhorn segist hún hlakka til að takast á við nýja starfið enda um ögrandi verkefni að ræða. Hún er ekki óvön verslunar- stjórnun, starfaði m e ð a 1 annars í stórmark- a ð i n u m Miklagarði í Holtagörðum meðan sú stórverslun var og hét en einnig var hún verslunar- stjóri í Miklagarðsversluninni Miðvangi í Hafnarfirði. MM Inga Ósk Jónsdóttir. v-ei.áttnq ni/mjuwr Anna pæja Þessi brauðréttur er nokkuð klassískur og sáraeinfaldur í ffamkvæmd. Gott að grípa til þegar maður hefur ekki mikinn tíma en langar að bera firam eitthvað gott. 1/2 til 1 fransbrauð 1 dós grænn aspas 2 bréf skinka ( skorin í bita ) 1 dós campells sveppasúpa 2 msk majones 2 dl rjómi wá ■ v * Lóðir uppseldar á Hvanneyri hefóum nóg næstu árin - segir Pálsdóttir sveitarstjóri Töldum að við Linda I síðustu viku var síðustu lóð- unum úthlutað í nýju hverfi á Hvanneyri, Sóltúni, en fram- kvæmdir hófust í því hverfi fyrr á árinu. Alls voru skipulagðar 24 lóðir í Sóltúnshverfinu, þar af 23 undir parhús en ein undir íbúð- arhús. Þessum lóðum hefur nú öllum verið úthlutað og reiknað er með að byggingaffamkvæmd- um ljúki á næsta ári við þær 47 í- búðir sem þarna eiga að rísa. Að sögn Lindu Pálsdóttur sveitar- stjóra er aðeins ein lóð laus á Hvanneyri í dag en hún er á Skólaflöt þar sem reistir hafa ver- ið nemendagarðar. „Við töldum að þetta myndi duga næstu árin og ég held að það hafi enginn átt von á þessari gífurlegu eftirspurn þannig að við stöndum frammi fyrir mjög ánægjulegu vandamáli, ef svo má að orði komast. Núna þurfum við að fara að hugsa um hvar verður byggt næst og að sjálfsögðu verð- ur bragðist við þessu til að mæta áffamhaldandi eftirspurn." Samfundur sveitar- stjóma Sveitarstjórnir Akraness, Borgarbyggðar og Borgar- fjarðarsveitar hittust á sam- eiginlegum fundi síðastlið- inn föstudag í Borgarnesi þar sem farið var yfir sam- starfsverkefni þessara sveit- arfélaga og skrifað undir endurnýjaðan samstarfs- samning. GE Umsjón: Iris Arthúrsdóttir. 1 dós sveppir - eða steiktir nýir sveppir efþið viljiðfi'ekar Ostur að eigin vali ofan á rétt- Brauðið rifið niður og sett í eldfast form. Skinkan, súpan, aspasinn, majonesið, rjóminn og sveppirnir sett í pott og hit- að aðeins. Blöndunni hellt yfir brauðið og osmr rifinn yfir . Hitað í ofhi á ca. 180° þar til osturinn er farinn að taka lit. k. L v--"r HÚSRAD Til að losna við óæskilega lykt m , r •- . , úr teppum, stráið matarsóda yfir og látið liggja á í klukkustund, ryksugið síðan yfir. Þcir sem hafa áhuga á að láta birta uppáhalds uppskriftina sína geta scnt hana inn ásamt Ijósmynd af sjálfum sér eða réttinum (500 kb eða stærri), fullu nafni, heimilisfangi og síma á netfangið iris@skessuhom.is Linda Pálsdóttir sveitarstjóri Borgarfjarðarsveitar. Aðspurð segir Linda að hin mikla eftirspurn eftir íbúðalóð- um tengist væntanlega að miklu leyti breytingum á Landbúnaðar- háskólanum á Hvanneyri sem um áramót verður Landbúnaðar- háskóli Islands. „Þrátt fyrir að ekki hafi verið gefið út hvernig búist er við að skólinn þróist á næstu áram þá er greinilegt að rnenn hafa almennt trú á þessu svæði og það eykur svo sannar- lega bjartsýni okkar sem búum í þessu sveitarfélagi," segir Linda. GE Handverkskonur í Borgarfirði standa fyrir jóiamarkaði i tuttugasta sinn og að þessu sinni er hann staðsettur í Hyrnutorgi. Þar getur að líta fjölbreytt handverk, jóiaskraut ofl. Mynd: GE Hótel Stykkishólmur. Félagsheimilið selt Stykkishólmsbær hefur gengið frá samningum um sölu félagsheimilis Stykkishólms til Péturs Geirssonar og Jóns Pét- urssonar, eigenda Hótels Stykkishólms en félagsheimilið er hluti af hótelbyggingunni. „Eigendur Hótels Stykkis- hólms era að hefja framkvæmd- ir við stækkun þess og þeir ætla að byggja 45 herbergja álmu við endann á félagsheimilinu. Þessvegna þótti okkur eðlilegt að þetta væri allt á sömu hendi,“ segir Óli Jón Gunnars- son bæjarstjóri Stykkishólms. Óli Jón segir að samhliða söl- unni hafi verið gerður samn- ingur við Hótel Stykkishólm um ákveðna þjónustu og segir að þótt bærinn eigi ekki lengur félagsheimilið þá muni það þjóna íbúunum eftir sem áður. GE Umferðaróhöpp Tvö umferðaróhöpp urðu í Borgarfirði á föstudag. Bifreið fór útaf veginum á Borgarfjarð- arbraut við Árdal um klukkan sjö á föstudagsmorgun og var ökumaður fluttur á slysadeild til skoðunar. Meiðsli hans reyndust hinsvegar ekki alvar- leg. Annar útafakstur varð síðan á Snæfellsnesvegi við Urriðaár- borgir um hádegisbil en enginn slasaðist. Þá fór bíll útaf veginum við Tungulæk á Mýrum um kl. 10 á sunnudag en engan sakaði. GE

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.