Skessuhorn - 15.12.2004, Side 18
18
MIÐVIKUDAGUR 15. DESEMBER 2004
^&iiSaunuiw
Skógarhögg í Daníelslundi
Mynd: Rakel Bryndís.
Björgunarsveitin Brák í
Borgarnesi stóð fyrir skógar-
ferð um síðustu helgi þar sem
fyrirtækjum var boðið að koma
með starfsmenn og þölskyldur
þeirra í Daníelslund til að velja
jólatré og höggva þau. Að sjálf-
sögðu voru vanir skógarhöggs-
menn úr Björgunarsveitinni til
halds og trausts og aðstoðar við
skógarhöggið. Þá sá björgunar-
sveitin um að koma trjánum
heim til sinna eigenda.
Að sögn Guðrúnar Krist-
Samstarf
VLFA og
Vinnumiðl-
unarinnar
Verkalýðsfélag Akraness
og svæðisvinnumiðlun
Vesturlands hafa hug á að
hefja samstarf er lýtur að
námskeiðshaldi fýrir at-
vinnulausa og félagsmenn
VLFA. Félagið stendur fyr-
ir fiskvinnslunámskeiði í
janúar og hefur nú þegar
boðið Svæðisvinnumiðlun
Vesturlands að kanna hvort
einhverjir sem nú eru at-
vinnulausir hafi áhuga að
fara á slíkt námskeð. Fyrir
liggur að um 25 starfsmenn
HB-Granda og um 17
starfsmenn hjá Laugafiski
ætla að fara á fiskvinnslu-
námskeiðið í janúar. MM
jánsdóttur, ritara
Björgunarsveitar-
innar Brákar, hafa
Borgnesingar tekið
þessari nýbreytni
vel en tæplega 90
manns frá nokkrum
fyrirtækjum í Borg-
arnesi tók þátt í
skógarferðinni að
þessu sinni.
Þegar menn
sneru aftur heim úr
skóginum, með
jólatréð á bakinu,
var boðið upp á
heitt kakó og smur-
brauð. Þá má ekki
gleyma að geta þess
að björgunarsveitarmenn
fundu nokkra jólasveina í skóg-
inum en þeir höfðu villst á leið-
inni til byggða. Þeir sem ekki
höfðu tækifæri til að höggva sín
tré í Daníelslundi þurfa ekki að
örvænta því um helgina hefst
jólatrjáasala Brákar í björgun-
arsveitarhúsinu í Brákarey.
Milli jóla og nýárs tekur síðan
flugeldasalan við á sama stað.
GE
Troðfullt hús á jólaskemmtun á Akranesi
Fullt var út úr dyrum á
barnaskemmtun sem Mark-
aðsráð Akraness stóð fyrir sl.
laugardag í Bíóhöllinni.
Margt góðra skemmtiatriða
var á dagskrá, en að öðrum ó-
löstuðum þótti Bjössi bolla slá
rækilega í gegn hjá ungu kyn-
slóðinni. Bjössi bolla hefur
reyndar grennst svo mikið að
ekki var nema ca helmingur
hans mættur, enda hefur hann
að undanförnu tekið þátt í
upptökum á Latabæ þar sem
hann leikur sjálfan bæjarstjór-
ann. A myndinni hefur Bjössi
kallað á svið 9 ára þríburana
þau Jósef Halldór, Svönu og
Þóru Björk Þorgeirsbörn, sem
áttu 9 ára afmæli sania dag og
fengu því 400 manna afmælis-
söng í tilefni dagsins.
MM
Það sem fer hér á eftir er spurn-
ing sem sett var fram á miðsvetrar-
prófum í efnafræði við University
of Washington háskólann. Svar
eins nemandans var svo stórkost-
legt að prófessorinn ákvað að leyfa
öðrum að njóta þess.
Aukaspuming: Gefur helvíti ffá
sér hita eða tekur helvíti til sín
hita?
Flestir nemendur settu niður
staðhæfingar og reyndu að sanna
niðurstöður sínar með tilvísun í
lög Boyles sem segja að gas kólni
undir minnkandi þrýstingi en hitni
undir auknum þrýstingi. En einn
nemandi skrifaði eftirfarandi:
I fyrsta lagi þá þurfuin við vita
hvernig massi helvítis breytist í
tíma. Þess vegna þurfum við að
vita tíðni þess að sálir fari inn í hel-
víti og tíðni þess að sálir fari úr hel-
víti. Eg tel þó að við getum gengið
út ffá því að ef sál fer einu sinni inn
í helvíti þá kemur hún ekki út aftur
og þar með sleppi engar sálir úr
helvíti.
Hinsvegar til að áætla hversu
margar sálir fara inn í helvíti er rétt
að skoða mismunandi trúarbrögð í
heiminum í dag. Flest þessarar trú-
arbragða halda því fram að ef þú
ert ekki hluti af þeirra trú, þá farir
þú til helvítis. Þar sem það eru
fleiri en ein trúarbrögð í heiminum
og þar sem fólk tílheyrir ekki fleiri
en einum trúarbrögðum í einu, má
ganga útfrá að allar sálir fari til hel-
vítis.
Miðað við tíðni fæðinga og
dauða eins og það er í dag má
reikna með að sálum í helvíti fjölgi
með ógnarhraða. Nú skulum við
líta á breytinguna á stærð helvítis,
því lög Boyles segja að til þess að
hiti og þrýstingur í helvíti haldist
sá sami, verður stærð helvítis að
stækka í samræmi við fjölda sálna
sem bætast við.
Þetta gefur okkur tvo mögu-
leika:
1. Ef helvíti er að stækka með
minni hraða en tíðni sálna sem
bætast við þá hlýtur hiti og þrýs-
ingur að hækka þar allt fer til hel-
vítis.
2. Ef helvíti er að stækka hraðar
en aukning sálna sem inn í það fer,
þá hlýtur hiti og þrýstingur í helvíti
að minnka þar til helvíti ffýs.
Þannig, hvort er það?
Ef við skoðum staðhæfingu sem
Guðrún bekkjasystir mín setti fram
við mig þegar ég var í fyrsta bekk:
„Það verður kaldur dagur í helvíti
áður en ég sef hjá þér“, og ef tekið
er tillit til þeirrar staðreyndar að
hún svaf hjá mér í gær þá hlýtur
númer 2 að vera svarið. Þannig að
ég held því fram að helvíti gefi ffá
sér hita og sé í reynd þegar ffosið.
Hin hliðin á þessari kenningu er
að þar sem helvíti er þegar ffosið
og taki ekki við fleiri sálum, þá er
eini valkosturinn sá að allar sálir
fari til himna og sanni tilvist eilíff-
ar sæluvistar, og það útskýrir að í
gærkvöldi kallaði Guðrún hvað
efrir annað „Ó guð, Ó guð“.
Þessi nemandi var sá eini sem
fékk A.