Skessuhorn


Skessuhorn - 13.04.2005, Blaðsíða 1

Skessuhorn - 13.04.2005, Blaðsíða 1
VIKUBLAÐ A VESTURLANDI Virka daga 10-19 Laugard. 10-18 Sunnud. 12-18 nettð alltaf gott - alltaf ódýrt 14. tbi. 8. árg. 13. apríl 2005 - Kr. 300 í lausasölu Akveðið að byggja fjölnota íþróttahús Bæjarráð Akraness samþykkti á fundi sínum sl. fimmtudag að ganga til samninga við verktakafyrir- tækið Sveinbjöm Sigurðsson ehf. um byggingu fjöl- nota íþróttahúss á Jaðarsbökkum. Gert er ráð fyrir að taka tilboði fyrirtækisins í óeinangrað og óuþphit- að hús en þó með þeirri breytingu að burðarvirki verði öflugra sbr. ffávikstilboð fyrirtækisins, enda má þannig einangra húsið og hita það síðar. Bæjarráð samþykkti einnig að gert verði ráð fyrir Ligoturf gervigrasi ffá Polytan og fól bæjarstjóra að ganga til samninga við Sveinbjöm Sigurðsson ehf. á ofan- greindum forsendum og undirbúa stofhun fram- kvæmdasjóðs íþróttamannvirkja og félags sem myndi eiga og reka húsið. MM Fiskistofa í Stykkishólm Umtalsverðar breytingar verða gerðar á starfsemi Fisldstofú á næstu árum með stofhun fjögurra nýrra útibúa á landsbyggðinni og eflingu útibúsins á Akur- eyri. Fiskistofa er nú með aðstöðu á tveimur stöðum utan Reykjavíkur, þ.e. á Akureyri og Isafirði. Sjávar- útvegsráðherra hefur viljað færa fleiri störf út á land þar sem stærstur hluti starfsemi Fisldstofu fer fram utan höfuðborgarsvæðisins. Því vom útfærðar tillög- ur um hvemig fiera mæti veiðieffirlitið út á land. Til- lögurnar koma til ffamkvæmda á næstu fjórum ámm. I tillögu ráðherra er m.a. gert ráð fyrir að árið 2007 verði opnað útibú Fiskistofu í Stykkishólmi með alls 7 starfsmönnum en auk þess verða útibú í Vestmannaeyjum, Höfh, Grindavík og fjölgað mannskap í útibúinu á Akureyri. Þegar þessar breyt- ingar verða allar um garð gengnar árið 2009 verða átta starfsmenn eftir í Reykjavík en meginþungi starfseminnar fer þá ffam á landsbyggðinni. A fundi bæjarráðs Stykkishólms í síðustu viku var fagnað ákvörðun sjávarútvegsráðherra að flytja hluta af starfsemi veiðieftirlits Fisldstofu í Stykkishólm. Undrast staðsetninguna Bæjarstjóm Snæfellsbæjar fagnaði einnig á sínum fundi í liðinni viku ákvörðun ráðherra um flutning veiðieftirlits Fisldstofu á Snæfellsnes, en vakti athygli á að: „..allsstaðar annarsstaðar en á Snæfellsnesi er þessi starfsemi höfð þar sem mikill afli berst á land og starfsemi Hafró er þar einnig [í Snæfellsbæ]. I ljósi þess vekur það fúrðu að þessi starfsemi Fiski- stofu skuli eklá hafa verið staðsett í Snæfellsbæ. A Snæfellsnesi, á árinu 2004, kom efdrfarandi afli á land, flokkaður eftir bæjarfélögum: Snæfellsbær 27.899 tonn, Grundarfjörður 11.356 tonn og Stykk- ishólmur 5.019 tonn. A undanfömum árum hefúr því þannig háttað tíl að þegar opinber störf hafa komið á Snæfellsnes þá hafa þau flest öll verið sett á einn stað og spuming hvort það sé opinber stefiia ríkisstjómarinnar að öll störf á vegum hins opinbera á þessu svæði skuli fara þangað," segir í bókun bæj- arstjómar Snæfellsbæjar. MM Sauðburður er hafinn hjá Hálfdáni bánda Helgasyni á Háhóli í Borgarbyggð. Hálfdán segist hafa hleypt til nokkurra kinda með fyrra fallinu; „áður gerði ég það til að gleðja bömin á bœnum, en síðan þau stækkuðu, til að gleðja hrútana. “ A Háhóli er stundaður blandaður búskapur en þar má m.a. finna geit, endur, hesta, kindur, hund og ketti. Auk þess taka bændur á Háhóli þátt í skógrækt Vesturlandsskóga og stunda jarðvinnslu og vegagerð á sumrin. Ljósm. í Strákamir á stöðinni skerða dómgreind bama Á sjónvarpsstöðinni Stöð 2 er náð að gabba Strákana upp úr eftírhermu gjörða Strákanna að samtali við Skessuhom. um þessar mundir sýndur þátt- urinn Strákarnir klukkan 8 á kvöldin fjóra daga vikunnar, þar sem hinir bráðhressu félagar Sveppi, Auddi og Pétur em þáttastjómendur. Eins og þeir sem horft hafa á þessa þætti em meðvitaðir um, em ffamin hin ýmsu heimskupör í þáttunum þar sem m.a. er skorað á þátta- gerðarmenn að framkvæma ýmis áhættuatriði sem almennt flokk- ast ekki undir háttvísa ffamkomu eða gjörðir, nema síður sé. Nefiia má nýlegt dæmi þegar einn félaganna hleypur á G- streng einum klæða í gaddffosti og rold umhverfis lóð fangelsis- ins á Litla Hrauni. Þetta mun átt að hafa verið áskorun ffá föng- unum á Hrauninu, sem vafalaust em enn hlæjandi yfir því að hafa skónum í orðsins fyllstu merk- ingu. Fjölmörg önnur dæmi um vafasamar gjörðir mætti nefna, svo sem þegar þeir átu sand, böðuðu sig í tómatsósu, fífluðu gamalt fólk í Kringlunni með falinni myndavél eða bemðu sig í sundlaugunum, enda er athygl- issýki Strákanna engin takmörk sett. Að sjálfsögðu er þáttunum ætlað að ná til unga fólksins og einkum barna, enda sýning þeirra á þeim tíma sem helst mætti ætla að böm horfi á sjón- varp. Þar með er bömunum ætl- að að greina á milli hvað sé rangt eða rétt að gera og hvar mörk hins siðprúða einstaklings liggja. Börnin hafa hinsvegar ekki þroska til að greina þama á milli og svo rammt hefur kveðið að foreldrafélag Grandaskóla á Akranesi ályktaði tmi efni og á- hrif þáttanna fyrir skömmu. „Þegar böm í skólanum em t.d. farin að bera á sér bossana þegar þau em mönuð til þess, eða farin að borða ánamaðka er einfald- lega of langt gengið. Þessu hafa böm hér verið uppvís að og þetta era bein áhrif áhorfs þeirra á þættina um Strákana. Við sjá- um ástæðu til að hvetja foreldra og uppalendur til að ræða við böm sín um efni þessara þátta, vekja þau til umhugsunar og hjálpa þeim að greina á milli hvað sé rétt og hvað rangt í gjörðum fólks alveg á sama hátt og t.d. eftirlitslaus notkun þeirra á Intemetinu getur verið skað- leg,“ segir Magnús Guðmunds- son, formaður foreldrafélagsins í Magnús segir að til standi að skrifa Stöð 2 og greina forsvars- mönnum stöðvarinnar fá áhyggjum foreldra. „Við höfúm engin ráð önnur en benda á greinileg áhrif þáttanna og hvetja sjónvarpsstöðina til að gæta ákveðins velsæmis í hvað fyrir bömunum er haft. Okkur finnst einfaldlega of langt geng- ið og því full ástæða til að benda Stöð 2 á að Strákamir em gríð- arlega sterkar fyrirmyndir bam- anna okkar og það sem þeir gera og sýna er ekki til þess fallið að vera jákvæð fyrirmynd. Þeir geta ömgglega verið bæði fyndnir og skemmtilegir með öðrum hætti, þetta era góðir strákar allir sam- an.“ MM IIIII II! III Grisahnakki atsLWúf á kassa Verfl áðw S79 ísfugl kjúklingaleggir magnpakkning atóiKtiiríkJssa Vwð áður 579 1>tA ísfugl kjúklingalæri maynpakkning Tilboö 1 4. - 1 7. apríl ^ ^ Samkaup íúrvai 25% aísláttnr á kassa Verd áður 1298 kr/k Ekta ofnsteik í álbakka 36% Verd áflur 1398 kf/kg 25% afslattor á kassa Verð áðiit 1598 kr/kg^ Gourmet lambaframpartssneiðar Grindavík • Hafnarfjöróur • Njarövik • ísafjörður • Akureyri • Dalvik • Siglufjörður • Ólafsfjörður • Húsavik • Egilsstaðir • Selfoss • Borgarnes • Blönduós • Skagaströnd • Bolungarvík

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.