Skessuhorn


Skessuhorn - 13.04.2005, Blaðsíða 10

Skessuhorn - 13.04.2005, Blaðsíða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 13. APRIL 2005 Alhliða þjónusta fyrir fyrirtæki og einstaklinga O SkattskiI einstaklinga O Skrifstofuþjónusta ogfyrirtækja OEndurskoðun I Bókhald og uppgjör OStofnun O Launaútreikningar einkahlutafélaga Hafðu samband og kannaðu málið VIÐSKI AKRANESS ehf Stillholt 23, 2 hæð - 300 Akranesi Sími 431 3099 Fax 431 2282 - www.vtha - vtha@vtha.is KJOLUR Stéttarfélag starfsmanna í almannaþjónustu Aðalfundur Aðalfundur félagsins verður haldinn ísal Fiðlarans, 4. hœð, Skipagötu 14,Akureyri laugardaginn 16. apríl2005 kl. 15:00 Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf Lagabreytingar Kjaramál Önnur mál Menningardagskrá verður frá kl. 17:00 til 18:00 Stjórn KJALAR www.KJOLUR Strípihneigð íslenskra karl- manna úr dróma dregin á ný Listaklúbbur NFFA: Stæltu Stóðhestamir. Höfundar: Anthony McCarten og Stephen Sinclair. Þýðing: Omar Olafsson og Júlí- us Guðmundsson. Leikstjóri: Ingrid Jónsdóttir. Leikarar: Jón Ingi Þrastarson, Guðmundur. O. Kristjánsson, Viðar Freyr Viðarsson, Jón Gunnar Garðarsson, Jón Gústi Jónsson, Elvar Ami Þrastarson, Bjöm Dan Karlsson og Þóra Geirlaug Bjartmarsdóttir. Danshöfundur: Sigrún Yr Magnúsdóttir. Hljóð: Marinó Amason. Ljós: Sölvi Páll Ásgerisson, Friðrik Rúnar Haraldsson, Magnús Geir Guðmundsson og Salvar Georgsson. I blálokin á 20. öldinni tóku þér Omar Olafsson og Júlíus Guð- mundsson hjá Leikfélagi Keflavík- ur upp á því að snara leikriti Ant- honys McCarten og Stephens Sinclair yfir á íslensku, en kvik- myndin The Full Mounty sem byggð er á verkinu hafði áður not- ið mikilla vinsælda hér sem annars- staðar. I íslenskum búningi fékk verkið yfirskriftina Stæltu stóð- hestarnir og var frumsýnt í Frum- leikhúsinu í Keflavík árið 1999 í leikstjórn Andrésar Sigurvinssonar. Þessi sýning markaði upphafið að undarlegum tímum í árshátíðarlífi Islendinga því lengi á eftir þótti enginn maður með mönnum án þess að rífa sig úr að minnsta kosti næstum því hverri spjör við slík tækifæri. Hvort sýning Leiklistar- klúbbs NFFA verður til þess að drepa stírpihneigð íslenskra karl- manna úr dróma skal ósagt látið en hitt er víst að uppfærslan er sprenghlægileg og greinilegt að leikarar skemmta sér ekki síður en áhorfendur. I leikskrá segir að verkið „...fjalh um sex atvinnulausa þumba sem hafa ekkert betra að gera en að hanga á börum og pikka fæt,“ fyrr en einn þeirra fær þá snilldarhugmynd að stofna stripp- hóp og græða á því að dilla bossan- um fýrir kvenfólk. Þegar þeir hafa fengið vilyrði fyrir því að koma fram á skemmtistað einum hefjast strangar æfingar með tilheyrandi skemmtilegheitum. Sýningin er ekki mannmörg, aðeins átta per- sónur koma við sögu og eðli máls- ins samkvæmt mæðir mest á stóð- hestunum sjálfum. A þeirri sýningu sem hér er til umfjöllunar tók það reyndar smá stund að komast í gír- inn, held það skrifist á þá staðreynd að um sýningu númer tvö var að ræða og frumsýningarhrollurinn rétt að rjátla af fólki, en þegar sýn- ingin fór almennilega af stað gekk hún vel og snuðrulaust fyrir sig. Leikarnir uxu í hlutverkum sínum eftir því sem leið á sýninguna og í rauninni hefði maður verið til í miklu meira þegar tjaldið féll. Verkið gengur auðvitað út á að vera hlægilegt og leikstjórinn, Ingrid Jónsdóttir, finnur hárrétta tóninn til að koma þeim skemmti- legheitum til skila. Vitleysisgang- urinn fer aldrei út í öfgar og til- burðir stóðhestanna við að vera sexí er trúverðugur og um leið ó- borganlega fyndinn á köflum. Leikarar standa sig flestir með mikilli prýði, þó má ég til að geta sérstaklega Þóru Geirlaugar Bjart- marsdóttur í hlutverki Heiðu sem tekur að sér að veita stóðhestunum tilsögn. Leikur hennar var algjör- lega tilgerðarlaus og flutningur textans eins og hann væri spunninn á staðnum en ekki lærður úr hand- riti. Vel gert Þóra! Þá fór Viðar Freyr Viðarsson einnig á kostum sem hinn uppburðarlitli Hermann og hann skilaði því vel hvernig honum óx ásmegin eftir því sem á leið. Sýningar eru á sal Fjölbrauta- skólans og leikstjóri nýtir mjög skemmtilega það rými sem er til staðar. Þannig er leikið til hliðar við sviðið, á tengigangi og ffammi í sal þar sem ljósamenn og tækni- fólk hefur aðsetur. Leikmynd er í lágmarki en það kemur ótrúlega vel út að nota videóupptökur sem varpað er upp á tjald á miðju svið- inu til að brjóta látleysið upp. Á heildina litið er þetta stór- skemmtileg sýning sem ég mæli hiklaust með að allir drífi sig á. Það eru þó fáein atriði sem betur mættu fara. I fyrsta lagi er framsögn á köflum með þeim hætti að áhorf- andinn skilur ekki orð af því sem sagt er - taki þeir til sín sem eiga. I öðru lagi hafa sífelldir hurðaskellir og hávaðasamur umgangur um sviðið og leiksvæðið áður en sýning hefst truflandi áhrif og skemmir dálítið fýrir þeirri eftirvæntingu sem skapast hjá áhorfendanum eft- ir að ljósin dofna og allir bíða í of- væni eftir því að sýningin hefjist. Einnig fannst mér tónlist (sem var skemmtilega valin) allt of hátt stdllt. Þegar hún þagnar skyndilega dettur allt í svo mikið dúnalogn að það truflar einbeitingu áhorfand- ans. En þar fýrir utan: Frábær skemmtun fýrir þá sem ekki eru viðkvæmir fýrir berum karlmanns- bossum! Anna Lára Steindal Að vera sendur á fieðingarhreppinn og leitaö brauös fyrir börn og víf. Þaö á ekki skylt viö ættjaröarleysi til annara landa þó hann „reisi." Aö Axlarhaga eitt sinn bar utan af snaga veraldar. Alla daga drakk hann þar, djöfuls lag á honum var. Svona œviárin runnu, um hann sögur margir kunnu, svallaöi meö Siggu og Cunnu, setti þó aö mönnum ugg. l/íinfihe’tíúr} I síðasta þætti birti ég vísuna „Með hálfu glotti er hugsun mín“ án höfundar, en nú hefur mér borist sú vit- neskja að hér sé á ferð- inni þýðing á ljóði eftir Piet Hein eftir Bárð Stein Róbertsson og upplýsist það hér með. Nokkuð hefur kólnað að tmdanförnu ffá því sem var og náttúrulega þarf mannskepn- an alltaf að vera að kvarta undan veðurfar- inu. Þó má telja líklegt að sumarið komi nú einhverntíman, hvað sem öðru líður. Kol- beinn Högnason orti um sumarmál: Vetur hrumur víkur stillt, valdarumur strangi. Býöur gumum brosiö milt bjartur sumarvangi. Vonandi hefur þetta hret ekki haft nein á- hrif á þá farfugla sem komnir voru en að minnsta kosti hefur spóinn vit á því að vera ekkert að þvælast hingað norðureftir fýrr en öllu er óhætt. Halldór Helgason á Asbjarnarstöðum setti saman eftirfarandi hugleiðingu um spóann og nefndi „Ættjarðarleysi" (stytt): Af spóanum hefur þú spurnir þœr aö sportfugl sé hann á íslands ströndum, en eigi víst heima í öörum löndum. - Og sagan er líklega sönnu nær - sé upprunann sleppt aö yfirvega og allt er tekiö bókstaflega. Og hér á hann allt sitt heimilislíf og hér er búiö viö ástargengi, um flóa og móa, um fjöll og engi, En hitt er svo auövitaö annaö mál um íslendinginn - þó þaö sé spói, aö hentugast er aö ekkert snjói og vel sé bruggaö í vorsins skál. Aö vetrarlagi hann væri ekki heppinn aö vera sendur á fœöingarhreppinn. Sjaldnast fækkar fýrirliggjandi verkefnum þó vorhret gangi yfir. Eg held endilega að það hafi verið Jón Jónsson póstur í Galtar- holti í Borgarhreppi sem falaði vinnumann á köldu vori með þessum orðum: Þaö er svalt, ég býst viö byl, bana er allt í skolti. Er þaö falt þú fáist til aö fara aö Galtarholti? Þó verður að segjast að ég er ekki alveg fullkomlega viss og finn ekki þá heimild sem ég hélt að ég ætti um málið. Vildi ég því biðja þá sem geta annað hvort staðfest þetta eða leiðrétt að hafa samband við mig. Ekki er ég viss um að það hafi alltaf verið sældarlíf að vera vinnumaður í sveit meðan sú stétt manna var ennþá nokkuð fjölmenn. I rímu af Stefáni Péturssyni eftir Stefán Stef- ánssson ffá Móskógum lýsir höfundurinn vinnumennsku hetjunnar meðal annars á þessa lund. Var í Sléttu æskuár, öslaöi léttur stararflár. Bændastéttar klakaklár kunni rétt aö afla fjár. í Hálsasveit á Hofstööum hélt til beitar gemlingum, aldrei neitaöi ölföngum, át og skeit meö fádœmum. Margt hafa íslenskir bændur baslað um aldirnar og átt í stríði við óbh'ð stjórnvöld, bæði veðurfarsleg og pólitfsk. Oskar Sigur- finnsson í Meðalheimi nefnir eftirfarandi kvæði „Ófullgert lofkvæði um íslenska bónd- ann.“ (Tileinkað Húnvetningum og Skag- firðingum.) Strax viö fæöing hann var hylltur, hugumstór en ekki villtur, virkilega var hann stilltur, víst af öörum sveinum bar. Þar var mesti þrifapiltur (þó hann skiti í brœkurnar). Elti hross og ær í haga, auö hann vildi í búiö draga, síþreyttur meö svangan maga sjaldan kom í bæinn þurr. Fullur var hann flesta daga fyrirmyndar unglingur. Dvaldi oft meö drós í fangi á dimmum staö í fóöurgangi, getnaöarins gróöurangi gjarnan tók aö lifna viö. Og stráksi, þessi Ijóti langi, lagöist oná kvenfólkiö. Þegar hann fann tóma tunnu og tók aö stunda landabrugg. Öörum margan geröi greiöann, góndi út í daginn heiöan, yfir dalsins botninn breiöan bykkju þandi er tuggöi mél. Flestu lífs og liönu reiö hann og líkaöi bara nokkuö vel. Guðmundur „dýri“ Andrésson hét maður og fékkst nokkuð við dýralækningar. Var stundum settur dýralæknir um stundarsakir. Hafði unnið töluvert með dýralæknum sem þá voru fáir í landinu og aflað sér töluverðr- ar þekkingar þó formlega menntun skorti. Á tímabili vann hann hjá apótekara og bland- aði þar hundaskammta og afgreiddi lyf. Ævi sinni lýst hann á þennan hátt: Skrykkjótt œviiöjan gekk, eins til munns og handa. Loks viö hæfi hlutverk fékk hundaskammta aö blanda. Engan heiöurs á ég krans, illa úr trompum spilaö. En skítverkum hvers meöalmanns mun ég hafa skilaö. Og munu margir geta tekið undir að minnsta kost seinni vísuna með honum. Með þökkfyrir lesturinn, Dagbjartur Dagbjartsson Refsstöðum 320 Reykholt S 435 1361 og 849 2715 dd@hvippinn. is

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.