Skessuhorn


Skessuhorn - 27.09.2006, Síða 24

Skessuhorn - 27.09.2006, Síða 24
*- * Láttu ekki vandræðin verða til vandræða íbúðalánasjóður www.ils.is FJÁRHAGSLEG GLITNIR^ VELGENGNI ÞÍN ER OKKAR VERKEFNI Daglegar ferðir Opnunartímarvirka daga 8-12 og 13-17. Engjaás 2 • 310 Borgarnes • Sími: 458 8880 landflutningar@landflutningar.is • www.landflutningar.is Landflutningar 'SÁMSKIP A myndinni má ýá viðurkenningarhafana Christel Elvtru Einvarísson, RagnheiSi Gísladóttur, Katrínu Snjólaugsdóttur ogjón Guðmmidsson ásamt Rannveigu og Gunn- ari Sigurðssyni forseta bœjarstjómar Akraness. Umhverfisverðlaun Akraness aflient Eigendur þriggja garða á Akra- nesi fengu í sfðustu viku afhentar viðurkenningar frá Umhverfis- nefnd Akraness við hátíðlega at- höfn í Kirkjuhvoli. Það voru garð- arnir við Krókatún 9, Vesturgötu 64 og Vesturgötu 73. Garðarnir eru allir taldir sönnun þess að með bjartsýni og elju sé hægt að rækta nánast hvað sem er á Akranesi. I ávarpi sem Rannveig Bjarna- dóttir, formaður umhverfisnefndar flutti við afhendinguna segir að garðurinn við Krókatún 9 sé ein- staklega fallegur og að sumu leyti ævintýralegur garður sem sé eig- anda sínum til mikils sóma og öðr- um til áminningar um hve mikið er hægt að gera með bjartsýnina og þrautseigjuna að vopni. Þá segir að í garðinum sé mikill fjöldi trjá- og blómategunda. Hengiplöntur hengdar upp á óvenjulegan og skemmtilegan hátt og garðálfar brosi við þeim sem um garðinn ganga. Garðurinn var jafnframt valinn fallegasti garður Akraness. Um garðinn við Vesturgötu 64 sagði Rannveig að hann væri stíl- hreinn og minnti lítið eitt á evr- ópskan hallargarð með slétta og fallega grasflöt og skipulagða röð- un plantna. Burknar og orkideur séu áberandi í garðinum og fari svo vel saman að unun sé á að líta. Um garðinn við Vesturgötu 73 segir hann sé stór og glæsilegur ævin- týragarður sem gæti allt eins verið á suðlægum slóðum. Eigendur hans hafa komið fýrir nálægt 300 trjá- kenndum tegundum, 4-500 blóma- tegendum, rósum, nokkrum teg- undum ávaxtatrjáa t.d. 30-40 teg- undum eplatrjáa svo og margar tegundir grænmetis. Þar sé að finna plöntur sem fáum dettur í hug að rækta á Islandi, hvað þá á sjávarlóð á Neðri-Skaga þar sem enginn gróður var talinn þrífast. Hjf Nauthóll í Borgames Þann 21. september sl. var hús fyrrum veitingastaðarins Nauthóls við Nauthólsvík tekið upp og flutt á geymslulóð í Borgarnesi. „Kaffi- húsamenningin er sem sagt á leið í Borgarnes,“ segir Páll Björgvins- son hjá Sólorku ehf, sem keypt hefur húsið. „Byggðaráð Borgar- byggðar, ásamt skipulags- og byggingarnefnd, hafa fýrir sitt leyti samþykkt að Sólorka ehf. fengi út- hlutað lóð undir nýjan veitingastað við Hrafnaklett í Borgarnesi með fyrirvara um niðurstöðu úr grenndarkynningu og samþykki fýrir breytingu á deiliskipulagi,“ sagði Páll í samtali við Skessuhorn. Þar til það liggur fýrir hefur hús- inu verið komið fýrir til geymslu við Sólbakka í Borgamesi. MM Annar bekkur Grunnskóla Snæfeflsbæjar í hjólaferð í lögreglufylgd frá skólanum á Hellissandi að Gufuskálum. Þar var farið í leiki og hjólað þar um göturnar og snætt nesti í laut í hrauninu. Að sögn þátttakenda var þetta mjög skemmtilegur dagur. Anægjulegt var að sjá að flest barn- anna nýttu hjálmana sem Kiwanis- klúbburinn í Snæfellsbæ gaf þeim sl. vor. Næstu daga munu verða unnin verkefni hjá bekknum, tengd hjólaferðinni. Umsjónarkennari bekkjarins er Guðrún Anna Oddsdóttir. Hún og nemendurnir vilja þakka lögregl- unni á Snæfellsnesi, Sæmundi hjá áhaldahúsinu og skólabílstjórun- um fýrir alla hjálpina við þetta skemmtilega ferðalag. MM Krakkamir meS umsjónarkennara viS heimkeyrsluna aö Gufuskálum. Síðastliðinn miðvikudag fór fellsbæjar í hjólaferð. Hjólað var annar bekkur Grunnskóla Snæ- ásamt umsjónarkennara bekkjarins Nauthóll á leiS á geymslustaö. LiCT 4 ■ „ „ 7%. BORGARNESI E H F Reikningagerð og innheimta * orge skrifstofu tií að sinna ýmsum verkefnum tengdum reikningagerð og innheimtu. Hel^tu þættir starfsins eru: • Utgáfa og útsending reikninga. • Umsjón með innheimtu í samstarfi við þjónustuaðila á því sviði. • Samskipti við viðskiptamenn. • Afstemming bankareikninga. • Ymis tilfallandi verkefni á skrifstofu. Menntunar- og hæfniskröfur: • Góð undirstöðumenntun, heist viðskiptatengt nám. • Góð almenn tölvukunnátta, þekking á Navision Financiais er kostur. • Góð samskiptafærni, kurteisleg ákveðni. • Reynsla af sambæriiegum störfum er kostur. Loftorka Borgarnesi ehf. er alhliða verktakafyrirtæki á sviði mannvirkjagerðar og sérhæfir sig í framleiðslu á forsteyptum hlutum úr steinsteypu, mestmegnis húseiningum, ásamt steinrörum í holræsi. Fvrirtækið rekur starfsstöðvar í Borgarnesi, á Akureyri, í Reykjavík og í Kópavogi. Starfsmannafjöídi er á bilinu 250-300 manns. Umsóknir sendist fyrir 5. október nk. á neðangreint heimilisfang merkt "reikningagerð og innheimta" eða á netfangið bergthor@ioftorka.is Nánari upplýsingar veitir Bergþór Guðmundsson fjármálastjóri á skrifstofunni eða í síma 860 9006. Loftorka Borgarnesi ehf. Engjaás 1, 310 Borgarnes Sími 433-9000 fax 433-9013 www.loftorka.is Akraneskaupstaður Auglýsing um deiliskipulag á Akranesi Tillaga að breytingu á deiliskipulagi Skógarhverfis á Akranesi Með vísan til 1. mgr. 26. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 er hér með auglýst eftir athugasemdum við tillögu að breytingu á deiliskipulagi Skógarhverfis 1. áfanga á Akranesi. Skipulagssvæðið eru lóðirnar nr. 7, 9, 11 og 13 við Seljuskóga og nr. 1, 3, 5, 7 og 9 við Viojuskóga á Akranesi. Breytingin felst m.a. í að breyta 4 lóðum við Seljuskóga og 5 lóðum við Viðjuskóga sem ætlaðar voru undir tveggja hæða einbýlishús í ao veroa eftir breytingu 3 lóðir við Seljuskóga og 4 lóðir við Viðjuskóga sem ætlaðar verða undir einbylishús á einni hæð. Tillagan, ásamtfrekari upplýsingum, liggurframmi á skrifstofu tækni- og umhverfissviðs að Dalbraut 8, Akranesi, fra 2. október 2006 til og með 30. október 2006. Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera skriflegar athugasemcíir. Frestur til að skila inn athugasemdum er til og með 13. nóvember 2006 og skulu þær berast á bæjarskrifstofur Akraneskaupstaðar, Stillholti 16-18, 3. hæð. \ Þeir sem ekki gera athugasemdir við tillöguna innan tilskilins frests teljast samþykkir j henni. Akranesi 25. september 2006 Sviðsstjóri tækni- og umhverfissviðs AkraneskaupstaÖar

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.