Skessuhorn


Skessuhorn - 31.01.2007, Side 24

Skessuhorn - 31.01.2007, Side 24
Láttu ekki vandræðin verða til vandræða rrf* íbúðalánasjóður www.ils.is FJÁRHAGSLEG GLITNIR, VELGENGNI ÞÍN ER 0KKAR VERKEFNI Daglegar ferðir Opnunartímar virka daga 8-12 og 13-16. # Engjaás 2 • 310 Borgarnes • Sími: 458 8880 ..... Iandflutningar@landflutningar.is • www.landflutningar.is Tveir menn viðurkenndu fyrir lögreglu að hafa brotið 7 rúður í skólanum. Tjánið er um- talsvert en hluti þeirra rúða sem eyðilagðar voru eru vírofnar öryggisrúður í hurðum og gluggum skólans. Þrír ungir menn gistu fanga- geymslur lögreglunnar á Akranesi aðfaramótt laugardags efdr róstur- saman dansleik í Fjölbrautaskólan- um sl. föstudagskvöld. Mennimir, sem em 18 ára að aldri, vom gest- komandi á staðnum og era ekki nemendur skólans. Unnu þeir tals- vert eignatjón á skólanum, bratu 7 rúður og skemmdu auk þess bíl í ná- grenninu. Tveir mannanna viður- kenndu við yfirheyrslur um morg- tminn aðild að málinu og telst það upplýst, að sögn Jóhönnu Heiðar Gestsdóttur, varðstjóra hjá lögregl- unni. Þriðji pilturinn sem gisti fangageymslur um nóttina viður- kenndi óspektir við skólann en hann var ofurölvi. Almennt var nóttin er- ilsöm hjá lögreglu að sögn Jóhönnu Heiðar. „Skólayfirvöld, lögregla, fulltrúar nemenda, gæsluaðilar og forvama- fulltrúinn á Akranesi funduðu strax á laugardag í kjölfar þessara óláta í tengslum við skólaballið. Það lá í lofdnu að skerpa þurftí á reglum varðandi skóladansleiki og áfengis- notkun unglinga almennt. Það er ljóst að allir aðilar verða að stilla saman strengi sína til að áffamhald geti orðið á skóladansleikjahaldi. Allir sem funduðu í dag [á laugar- dag] vom sammála um að hugarfars- breyting þurfi nú að eiga sér stað til að ástandið eigi að batna,“ sagði Jó- hanna Heiður Gestsdóttir í samtali við Skessuhom. „Unga fólkið hér í bænum og nemendur fjölbrautaskólans sérstak- lega era að vonum slegnir yfir þess- tun atburðum og finnst að nokkrir svartir sauðir sem standi fyrir upp- þotum af þessu tagi eigi ekki að komast upp með að sýna nemendum skólans og samfélaginu öllu full- komið virðingarleysi af þessu tagi. Við ætlum að setja okkur markmið um hvemig bæta megi ástandið en það er ljóst að dansleikir í skólanum verða ekki ffamvegis nema að tryggt sé að gestir séu edrú. 99% nemenda vilja geta skemmt sér á eðlilegum forsendum á skólaböllum án þess að eiga það á hættu að nokkrir óffiðar- seggir komist upp með að eyðileggja fýrir heildinni með ölvun og óspekt- um,“ sagði Jóhanna Heiður að lok- um. MM Grunnskólanám aðlagað nýjum menntaskóla „Mikill metnaður verður lagð- ur í góða samvinnu grunnskóla Borgarbyggðar og Menntaskóla Borgarfjarðar af hálfu sveitarfé- lagsins og menntamálaráðuneyt- isins,“ segir Asthildur Magnús- dóttir fræðslustjóri Borgar- byggðar. Komið hefur verið á fót starfshópi þar sem bæði sveitar- félagið og ráðimeytið koma að, um þróun nýrrar námsskrár í grunnskólum Borgarbyggðar sem tengist starfsemi væntanlegs Menntaskóla Borgarfjarðar. Af hálfu ráðtmeytisins sitja helstu námsskrárráðgjafar þess í nefitd- inni ásamt fulltrúum ffá grunn- skólunum og menntaskólanum. Asthildur segir að fýrir liggi að gmnnskólinn þurfi að svara þessu styttra námi. Það nám sem boðið er upp á í grunnskólum í dag sé miðað við fjögurra ára bóknám þegar unga fólkið kemst í ffamhaldsskóla. „Eftir því sem ég veit best er þetta fyrsti menntaskólinn sem fer inn í þetta þriggja ára kerfi og því brýnt að vel takist til. Þeir sem á eftír koma munu að líkindum skoða það sem gert verður hér,“ sagði Asthildur. Fyrsti fundur starfshópsins verður 1. febrúar nk. BGK Nýskráningum einkahlutafélaga fækkar milli ára Á síðasta ári vora skráð 94 ný einkahlutafélög á Vesturlandi og hafði því nýskráningum fækkað um fjórar ffá árinu á tmdan þeg- ar 98 ný einkahlutafélög vom skráð. Hefur nýskráningum heldtu: farið fækkandi á liðnum ámm því flestar vora nýskráning- amar 179 árið 2002. Flestar ný- krárúngamar á síðasta ári vom á Akranesi eða 28 talsins. I Borgar- byggð vom ný félög 23 talsins, í Snæfellsbæ 14 og í Stykkishólmi vom félögin 11 að tölu. Flest hinna nýju einkahlutafé- laga á Vesturlandi vom í smá- bátaútgerð eða 19 talsins. I hús- byggingum vom félögin 11, til leigu atvinnuhúsnæðis voru stofnuð 9 félög, til reksturs eign- arhaldsfélaga vom stofnuð 5 fé- lög og eirtnig vom stofnuð 5 fé- lög til leigu vinnuvéla með stjórnanda. HJ Nú aukum við þjónustuna á Vesturlandi og opnum skrifstofu í Borgarnesi að domus Borgarbraut 61. Þarmunu Intrum, fasteignasalan Domus, leigumiðlunin Rentus, lögmannsstofan Pacta og Lögheimtan, bjóða viðskiptavinum á Vesturlandi Reníus alhliða þjónustu á sviði innheimtu og markvissrar fjárstýringar, auk þess að bjóða upp á alla almenna lögmanns-, leigu- og fasteignaþjónustu intrum \ \ justitia Lövheimtan Borgarbraut 61 j Borgarnesi | Sími 440 7320 j Fax 440 7001 j www.intrum.is

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.