Skessuhorn - 13.06.2007, Side 32
r
tm
Láttu ekki vandræðin
verða tii vandræða
íbúðalánasjóður
www.ils.is
FJÁRHAGSLEG GLITNIR^
VELGENGNI ÞÍN
ER OKKAR VERKEFNI
Daglegar ferðir
Opnunartímarvirka daga 8-12 og 13-16.
Engjaás 2 • 310 Borgarnes • Sfmi: 458 8880
landflutningar@landflutningar.is • www.landflutningar.is
Landflutningar
SAMSKIP
Framlenging á Þverársamningi
eklá í hendi
Jón Baldur Lorange á iryggðaþingi á Hvanneyri sl. laugardag.
Landsbyggðin útundan í
upplýsingasamfélaginu
Jón Baldur Lorange forstöðu-
maður tölvudeildar Bændasamtaka
Islands segir landsbyggðina hafa
verið útundan í þekkingar- og upp-
lýsingasamfélaginu því stór hluti
landsbyggðarinnar fái ekki aðgang
vegna lélegra og dýrra netteng-
inga. Bændasamtökin hafa verið að
þróa forrit fyrir bændur þar sem
unnið er í miðlægum gagnagrunn-
um. Fjöldi bænda hefur ekki að-
gang að því kerfi vegna þess sem
áður er getið. Jón Baldur segir að
þessi barátta hafi ekki gengið nógu
vel, þ.e. að koma landsbyggðinni í
almennilegt fjarskiptasamband.
„Það var mikill áfangi þegar
ISDN fékkst en það er allt of langt
síðan og síðustu tvö ár hefur lítið
gerst. Síðasta ríkisstjórn hefur því
miður ekkert staðið við það sem
lofað var. Það sem er í gangi núna
víðast hvar á landsbyggðinni er
bara ekki nægjanlegt og gengur alls
ekki. Það ætti bara að tryggja jafn-
an aðgang fyrir alla, punktur! Og
þessar uppsetningar eru svo kostn-
aðarsamar að ríkið verður að koma
að málinu. A landsbyggðinni er
100% munur á gæðum tenginga og
60% munur á verði og því er ekki
hægt að una. Við verðum bara að
treysta á að yfirlýsing nýrrar ríkis-
stjómar standi og því er nýr sam-
gönguráðherra lykillinn að öllu
saman,“ sagði Jón Baldur Lorange
forstöðumaður tölvudeildar BÍ í
samtali við Skessuhom.
bgk/ Ljósm. Askell Þórisson.
Boðað var til fundar í Veiðifélagi
Þverár í síðustu viku þar sem til
umræðu var uppgjör skuldar félags-
ins við Sporð, leigutaka árinnar til
áratuga, vegna lagfæringa á veiði-
húsi en auk þess átti að ræða ffam-
lengingu á samningi við Sporð.
Með framlengningu samningsins
fólst einnig að uppgreiðsla skuldar-
innar myndi dreifast á fleiri ár. Nú-
verandi leigusamningur við Sporð
rennur út árið 2010. Fljótlega eftir
að fundurinn hófst kvað sér hljóðs
nýr eigandi jarðanna Guðnabakka
og Selhaga í Þverárhlíð, Jóhannes
Kristinsson. I máli hans kom ffam
að hann teldi að núverandi leigu-
tekjur veiðifélagsins væra lægri en
veiðiréttarhafar gætu átt von á, færi
áin í útboð. Sló hann ffam óform-
legu tilboði fyrir sína hönd þar sem
hann taldi sig geta greitt um 40%
hærra verð fyrir ána en það sem
greitt er í dag, eða 85 milljónir á
ári. Jafnframt gatjóhannes þess að
miðað við ársreikning veiðifélags-
ins væri hvergi getið um skuld þess
við Sporð vegna lagfæringar á
veiðihúsi og því mætti segja að sú
skuld væri ekki tdl. Jóhannes sagðist
í samtali við Skessuhorn ekkert vilja
tjá sig um málefni fundarins í fjöl-
miðlum, en gat þó þess að hann
teldi málinu á engan hátt lokið.
Vilhjálmur Diðriksson á Helga-
vatni, stjómarmaður í Vf. Þverár
sagði í samtali við Skessuhorn að
landeigendur yrðu að passa sig á því
að sofna ekki á verðinum. „Þessi
hlunnindi em orðin mun verðmeiri
en áður og engin ástæða til að leigja
ána út undir markaðsverði,“ sagði
Vilhjálmur.
Skessuhorn hafði einnig sam-
band við Kristján F. Axelsson, for-
mann Vf. Þverár sem sagðist ekki
vilja gefa upp í fjölmiðlum innihald
þeirrar tillögu sem lögð var fyrir
fundinn. „Stjórnir veiðifélagsins og
Sporðs, sem er leigutakinn, voru
búnar að setja stafina sína undir
ákveðna tillögu með fyrirvara um
samþykki fundarins. Afgreiðslu
málsins var hinsvegar ffestað og
stjórninni falið að afla nýrra gagna
fyrir næsta fund sem ekki hefur ver-
ið dagsettur. Eg hef ekkert meira
um málið að segja að svo stöddu,“
sagði Kristján. Hann svaraði því
aðspurður hvort hærra verð mætti
fá fyrir ána að eflaust væri það
hægt, ef hún færi í útboð núna, en
það væri hinsvegar ekkert á dag-
skrá, samningurinn við Sporð væri í
gildi til ársins 2010.
Af ff amansögðu má ljóst vera að
þessi fundur í Vf. Þverár endur-
speglar það mat margra sem hrær-
ast í laxveiðiheiminum að veiðirétt-
areigendur að fengsælum lax-
veiðiám hér á landi geti nú vænst
mun hærra verðs fyrir laxveiði-
hlunnindi sín en þeir fá í dag, séu
árnar settar reglulega í útboð. Þetta
helgast af því að undanfarin sumur
hafa veiðileyfi í góðum laxveiðiám
verið nærri ófáanleg á frjálsum
markaði sökum þess að eftirspum
er meiri en ffamboð á þeim.
bgk
'■V
Búmenn hsf
Húsnæðisfélag
Suðurlandsbraut 54
108 Reykjavík
Sími 552 5644
Fax 552 5944
bumenn@bumenn.is
www.bumenn.is
Búmenn auglýsa íbúðir
Þjóðbraut I á Akranesi
Til sölu er búseturéttur í 38 íbúðum í átta hæða fjölbýlishúsi við Þjóðbraut 1 á Akranesi. Um er að ræða hús með bílakjallara undir
húsinu og þjónustufyrirtækjum á jarðhæð og að hluta fyrstu hæðar. Tvær íbúðir eru á annarri hæð en sex íbúðir á þriðju til áttundu
hæð. í húsinu eru þrjár tegundir íbúða sem eru um 95 fm, 102 fm og 105 fm. Tvær lyftur og stigagangur ganga upp úr bílageymsl-
unni. íbúðirnar verða afhentar fullbúnar með frágenginni lóð. Húsið verður einangrað og klætt að utan. Húsið er vel staðsett nálægt
verslun og þjónustu. Stefnt er að því að íbúðirnar verði afhentar um miðjan september 2008
Umsóknafrestur er til 25. júní n.k. - Réttur til kaupa miðast við 50 ára og eldri.
Nánari upplýsingar eru veittar á skrífstofu félagsins að Suðurlandsbraut 54 eða í síma 552 5644 milli kl. 9-15.