Morgunblaðið - 16.05.2019, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. MAÍ 2019 3
FJARÐABYGGÐ
fjardabyggd.is
Forstöðumaður
Menningarstofu
Fjarðabyggðar
Fjarðabyggð auglýsir starf forstöðumanns Menningarstofu
Fjarðabyggðar laust til umsóknar
Leitað er að einstaklingi með brennandi áhuga á menningarmálum sem
mun hafa yfirsýn og drifkraft til að tengja saman allt það ólíka sem fer fram í
fjölkjarna sveitarfélagi. Forstöðumaður ber ábyrgð á starfsemi
Menningarstofu Fjarðabyggðar, verkefnastjórn og fjármögnun verkefna
stofunnar. Viðkomandi er einnig forstöðumaður Tónlistarmiðstöðvar
Austurlands.
Helstu verkefni eru m.a.:
· Ábyrgð á framgangi menningarstefnu.
· Ábyrgð og umsjón með verkefnastjórnun í menningarmálum.
· Þróunarstarf, samstarf og fagleg ráðgjöf á sviði menningarmála.
· Efling samstarfs í menningarstarfsemi.
Hæfniskröfur:
· Menntun á sviðum tónlistar, menningar eða lista er áskilin.
· Þekking og reynsla af menningarstarfi og listum er áskilin.
· Reynsla af verkefnastjórnun er æskileg.
· Reynsla af markaðs- og kynningarmálum æskileg.
· Góð tungumálakunnátta, íslenska og enska, færni og hæfni til að miðla
upplýsingum í töluðu og rituðu máli.
· Góð tölvukunnátta og þekking á samfélagsmiðlum
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum sveitarfélagsins við viðkomandi
stéttarfélag. Konur jafnt sem karlar eru hvattar til að sækja um stöðuna.
Allar frekari upplýsingar veitir Karna forstöðumaður Menningarstofu
Fjarðabyggðar, í síma 866 6977 eða á netfanginu karna@fjardabyggd.is.
Umsóknarfrestur er til og með 17. maí 2019 og æskilegt að
viðkomandi geti hafið störf eigi síðar en 1. ágúst 2019. Sótt er um
starfið í gegnum ráðningarvef Fjarðabyggðar starf.fjardabyggd.is.FJARÐABYGGÐ
fjardabyggd.is
Mannauðsstjóri
Fjarðabyggðar
Fjarðabyggð auglýsir starf mannauðsstjóra
laust til umsóknar
Starf mannauðsstjóra er nýtt starf í stjórnkerfi
Fjarðabyggðar sem heyrir undir bæjarstjóra samkvæmt
skipuriti. Mannauðsstjóri starfar þvert á svið
sveitarfélagsins. Leitað er að einstaklingi með mikinn
áhuga og reynslu af mannauðsmálum.
Helstu verkefni:
· Ábyrgð mannauðs- og vinnuverndarmála.
· Ábyrgð persónuverndarmála.
· Yfirumsjón með jafnlaunavottun og
jafnlaunagreiningum.
· Yfirumsjón með skipulagi fræðslu og
starfsþróunarsamtala.
· Yfirumsjón með launaákvörðunum og stuðningur við
launafulltrúa vegna launasetningar.
· Stuðningur og fræðsla stjórnenda á sviðum
mannauðs- og persónuverndarmála.
· Eftirlit með mannuðsupplýsingum og skráningu
upplýsinga í mannauðskerfi.
· Umsjón með þjónustu á sviði mannauðsmála til
stjórnenda og starfsmanna.
· Umsjón með árangursmælingum og könnunum m.a.
um starfslíðan starfsmanna.
Hæfniskröfur:
· Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
· Viðbótarmenntun í stjórnsýslu eða lögfræði sem nýtist
í starfi er æskileg.
· Víðtæk reynsla og þekking af mannauðsmálum er
skilyrði.
· Reynsla og þekking af persónuvernd eða opinberri
stjórnsýslu er æskileg.
· Stjórnunarreynsla eða reynsla af verkefnastjórnun er
æskileg.
· Reynsla af stefnumótun og teymisstarfi er æskileg.
· Góð málakunnátta og færni til að setja fram mál í ræðu
og riti
Starfið gegnir veigamiklu hlutverki í stjórnkerfi sveitar-
félagsins. Rík áhersla er lögð á teymisvinnu og þver-
faglega vinnu.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum sveitar-
félagsins við viðkomandi stéttarfélag. Konur jafnt sem
karlar eru hvattar til að sækja um stöðuna.
Allar frekari upplýsingar veitir Karl Óttar Pétursson
bæjarstjóri Fjarðabyggðar, í síma 470 9000 eða á
netfanginu karl.petursson@fjardabyggd.is.
Umsóknarfrestur er til og með 25. maí 2019 og
æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf eigi síðar
en 1. ágúst 2019. Sótt er um starfið í gegnum ráðn-
ingarvef Fjarðabyggðar starf.fjardabyggd.is.
F
Mj
Við leitum að starfsfólki til að vinna með okkur að
spennandi og fjölbreyttum þróunarverkefnum:
Umsjónarkennara fyrir eldra stig skólans (6.–10. bekk)
og íþróttakennara fyrir leik- og grunnskóladeildir.
Um er að ræða hvort heldur sem er heila stöðu
eða tvær hlutastöður.
Umsækjendur þurfa að hafa leyfisbréf til þess að kenna
í grunnskóla. Fáist ekki grunnskólakennari til starfsins
er heimilt að ráða leiðbeinanda í stöðuna / stöðurnar að
fenginni undanþágu.
Deildarstjóra leikskóladeildar í 100% starf
Leikskólakennara í allt að 100% starf 10 mánuði á ári.
Fáist ekki leikskólakennari til starfsins er heimilt að ráða
annan í stöðuna. Starfið hentar jafnt körlum sem konum.
Umsjónarkennari óskast í
Laugargerðisskóla á Snæfellsnesi
Einkunnarorð skólans eru traust, virðing og vinátta.
Við hvetjum alla þá sem hafa áhuga á því að búa
og starfa á landsbyggðinni að hafa samband og
kynna sér þann góða valkost að ganga til liðs
við okkur í Laugargerðisskóla. Við aðstoðum við
að finna húsnæði á staðnum. Óvíða er fallegra
en einmitt hér og á staðnum er íþróttahús og
sundlaug. Laugargerði er vel í sveit sett en 50
km eru í hvora átt í Stykkishólm eða Borgarnes.
Umsóknarfrestur er til 31. maí 2019.
Áhugasamir hafi samband við skólastjóra,
Ingveldi Eiríksdóttur, og sendi umsóknir
í tölvupósti ásamt ferilskrá og ábendingum
um meðmælendur.
skolastjori@laugargerdisskoli.is
768 6600 / 435 6600
Við gætum verið
með næsta starfsmann
mánaðarins á skrá
www.capacent.is
Ráðgjafar okkar búa
yfir víðtækri þekkingu
á atvinnulífinu
og veita trausta og
persónu lega ráðgjöf.