Morgunblaðið - 18.05.2019, Page 5

Morgunblaðið - 18.05.2019, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. MAÍ 2019 5 Við leitum að starfsfólki til að vinna með okkur að spennandi og fjölbreyttum þróunarverkefnum: Umsjónarkennara fyrir eldra stig skólans (6.–10. bekk) og íþróttakennara fyrir leik- og grunnskóladeildir. Um er að ræða hvort heldur sem er heila stöðu eða tvær hlutastöður. Umsækjendur þurfa að hafa leyfisbréf til þess að kenna í grunnskóla. Fáist ekki grunnskólakennari til starfsins er heimilt að ráða leiðbeinanda í stöðuna / stöðurnar að fenginni undanþágu. Deildarstjóra leikskóladeildar í 100% starf Leikskólakennara í allt að 100% starf 10 mánuði á ári. Fáist ekki leikskólakennari til starfsins er heimilt að ráða annan í stöðuna. Starfið hentar jafnt körlum sem konum. Umsjónarkennari óskast í Laugargerðisskóla á Snæfellsnesi Einkunnarorð skólans eru traust, virðing og vinátta. Við hvetjum alla þá sem hafa áhuga á því að búa og starfa á landsbyggðinni að hafa samband og kynna sér þann góða valkost að ganga til liðs við okkur í Laugargerðisskóla. Við aðstoðum við að finna húsnæði á staðnum. Óvíða er fallegra en einmitt hér og á staðnum er íþróttahús og sundlaug. Laugargerði er vel í sveit sett en 50 km eru í hvora átt í Stykkishólm eða Borgarnes. Umsóknarfrestur er til 31. maí 2019. Áhugasamir hafi samband við skólastjóra, Ingveldi Eiríksdóttur, og sendi umsóknir í tölvupósti ásamt ferilskrá og ábendingum um meðmælendur. skolastjori@laugargerdisskoli.is 768 6600 / 435 6600 Viltu öruggt umhverfi og frelsi fyrir börnin? Norðurland vestra nær frá Hrútafirði í vestri yfir í Skaga- fjörð í austri. Þar er að finna fjölskylduvæn samfélög í nálægð við stórbrotna náttúru. Tómstundastarf er fjölbreytt og menningarlífið gróskumikið. Hér eiga allir að finna eitthvað við sitt hæfi. Starfsfólk óskast í fjölbreytt störf á Norðurlandi vestra Á vef Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra er að finna upplýsingar um áhugaverð störf í boði í landshlutanum: www.ssnv.is Skólaþjónusta Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu, Hvolsvelli, auglýsir eftirfarandi störf laus til umsóknar: Stöðu forstöðumanns skólaþjónustunnar sem auk stjórnunar stofnunarinnar, sinnir einnig að hluta sérkennsluráðgjöf í grunnskólum á svæðinu. Krafist er menntunar í sérkennslufræðum auk almennra kennsluréttinda og farsællar reynslu á sviði kennslu/sérkennslu í grunnskóla. Menntun og reynsla á sviði stjórnunar og kennsluráðgjafar í grunnskólum er æskileg, auk réttinda á helstu greiningartæki sem notuð eru til að greina námserfiðleika nemenda á því skólastigi. Um er að ræða 100% starf. Stöðu kennsluráðgjafa í grunnskólum. Leitað er að ráðgjafa í sérkennslu og almennri kennslu. Krafist er menntunar á sviði sérkennslu auk almennra kennsluréttinda og farsællar reynslu af kennslu/sérkennslu í grunnskóla. Reynsla af kennslu ráðgjöf er æskileg, auk réttinda á helstu greiningar tæki sem notuð eru til að greina náms- erfiðleika nemenda í grunnskólum. Um er að ræða 70 - 100% starf. Skólaþjónustan veitir tíu leik- og grunnskólum á svæðinu lögbundna sérfræðiþjónustu. Við stofnunina starfar öflug liðsheild sérfræðinga sem samanstendur af forstöðumanni, kennsluráðgjafa, leikskólaráðgjafa, náms- og starfsráðgjafa og sálfræðingi. Sérfræðingar skólaþjónustunnar eiga í nánu og góðu samstarfi við starfsfólk félagsþjónustunnar með heildarhagsmuni barna og unglinga að leiðarljósi. Leitað er að áhugasömum og jákvæðum einstaklingum sem búa yfir afbragðsgóðri samskiptahæfni, sjálfstæði í vinnubrögðum og sveigjanleika og frumkvæði í starfi. Laun og starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Skólastjórafélags Íslands vegna starfsmanna á skólaskrifstofum. Umsóknarfrestur er til 15. júní nk., en gert er ráð fyrir að ráða í störfin frá og með 1. ágúst. Umsóknir ásamt náms- og starfsferilsskrám berist á netfangið skolamal@skolamal.is, eða í pósti á Skólaþjónusta Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu, b.t. Eddu G. Antonsdóttur forstöðumanns, Austurvegi 4, 860 Hvolsvelli. Nánari upplýsingar veitir Edda í netfanginu edda@skolamal.is eða í síma 862 7522. Vefforritari óskast mbl.is leitar að öflugum vefforritara Laus er staða vefforritara hjá mbl.is, mest sótta vef landsins. Við leitum að einstaklingi sem... • hefur þekkingu á Python og reynslu af einhverju MVC-miðuðu vefkerfi, t.d. Django • hefur reynslu af framendaforritun (HTML, CSS og Javascript) • er framsækinn, tileinkar sér bestu mögulegu tækni hverju sinni og finnur nýjar og betri leiðir til að leysa verkefnin • hefur gagnrýnið hugarfar, er sjálfstæður og sýnir frumkvæði í vinnubrögðum • hefur mikinn metnað fyrir smáatriðum í viðmóti, virkni og hönnun vefja • er góður í samskiptum og á auðvelt með að vinna í hópum Það er mikill kostur ef viðkomandi er hagvanur Linux og öðrum open- source hugbúnaði, s.s. Apache, PostgreSQL og Git. Þekking á Perl er einnig vel þegin. Hvernig á að sækja um Umsóknir með ferilskrám sendist á starf@mbl.is. Frekari upplýsingar veitir Árni Matthíasson í síma 569 1245.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.