Morgunblaðið - 23.05.2019, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. MAÍ 2019
Skólaþjónusta Rangárvalla- og
Vestur-Skaftafellssýslu, Hvolsvelli,
auglýsir eftirfarandi störf laus til umsóknar:
Stöðu forstöðumanns skólaþjónustunnar
sem auk stjórnunar stofnunarinnar, sinnir einnig að
hluta sérkennsluráðgjöf í grunnskólum á svæðinu.
Krafist er menntunar í sérkennslufræðum auk
almennra kennsluréttinda og farsællar reynslu á sviði
kennslu/sérkennslu í grunnskóla. Menntun og reynsla
á sviði stjórnunar og kennsluráðgjafar í grunnskólum
er æskileg, auk réttinda á helstu greiningartæki sem
notuð eru til að greina námserfiðleika nemenda á því
skólastigi. Um er að ræða 100% starf.
Stöðu kennsluráðgjafa í grunnskólum.
Leitað er að ráðgjafa í sérkennslu og almennri
kennslu. Krafist er menntunar á sviði sérkennslu
auk almennra kennsluréttinda og farsællar reynslu
af kennslu/sérkennslu í grunnskóla. Reynsla af
kennslu ráðgjöf er æskileg, auk réttinda á helstu
greiningar tæki sem notuð eru til að greina náms-
erfiðleika nemenda í grunnskólum.
Um er að ræða 70 - 100% starf.
Skólaþjónustan veitir tíu leik- og grunnskólum á svæðinu lögbundna sérfræðiþjónustu. Við stofnunina starfar
öflug liðsheild sérfræðinga sem samanstendur af forstöðumanni, kennsluráðgjafa, leikskólaráðgjafa, náms- og
starfsráðgjafa og sálfræðingi. Sérfræðingar skólaþjónustunnar eiga í nánu og góðu samstarfi við starfsfólk
félagsþjónustunnar með heildarhagsmuni barna og unglinga að leiðarljósi.
Leitað er að áhugasömum og jákvæðum einstaklingum sem búa yfir afbragðsgóðri samskiptahæfni, sjálfstæði
í vinnubrögðum og sveigjanleika og frumkvæði í starfi.
Laun og starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Skólastjórafélags Íslands
vegna starfsmanna á skólaskrifstofum.
Umsóknarfrestur er til 15. júní nk., en gert er ráð fyrir að ráða í störfin frá og með 1. ágúst. Umsóknir ásamt
náms- og starfsferilsskrám berist á netfangið skolamal@skolamal.is, eða í pósti á Skólaþjónusta Rangárvalla-
og Vestur-Skaftafellssýslu, b.t. Eddu G. Antonsdóttur forstöðumanns, Austurvegi 4, 860 Hvolsvelli.
Nánari upplýsingar veitir Edda í netfanginu edda@skolamal.is eða í síma 862 7522.
Skólinn er samrekinn leik-, grunn- og tónlistarskóli undir einu þaki. Í skólanum eru um 50 nemendur.
Tálknafjörður er afar fallegur fjörður sem þekktur er fyrir einstaka veðurblíðu. Íbúarnir eru miklir
íþrótta álfar og státar þorpið af glæsilegri íþróttamiðstöð með tækjasal, 25m sundlaug og fjöldann
allan af skipu lögðum íþróttatímum. Atvinnulíf er með miklum blóma og uppbygging fiskeldis og
ferða þjónustu á svæðinu býður upp á mikil tækifæri.
Tálknafjarðarskóli auglýsir lausar stöður
umsjónarkennara og stundakennara
Í Tálknafjarðarskóla eru lausar til umsóknar eftirfarandi stöður:
Tvær stöður umsjónarkennara á grunnskólastigi
(100% starf). Fjölbreytt og skemmtileg störf sem fela
m.a. mögulega í sér list- og verkgreinakennslu.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Kennaramenntun og réttindi til kennslu í grunnskóla
• Metnaður til að vinna eftir fjölbreyttum og
árangursríkum kennsluaðferðum
• Lipurð og hæfni í mannlegum samskiptum
• Frumkvæði, sjálfstæði og sveigjanleiki í
vinnubrögðum
• Reglusemi og samviskusemi
• Hefur hreint sakarvottorð
Stöður stundakennara (10% - 40% starfshlutfall).
List- og verkgreinakennsla, mögulega tilfallandi
kennsla í samþættum verkefnum þvert á námsgreinar.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Kennaramenntun og réttindi til kennslu í grunnskóla
• Metnaður til að vinna eftir fjölbreyttum og
árangursríkum kennsluaðferðum
• Lipurð og hæfni í mannlegum samskiptum
• Frumkvæði, sjálfstæði og sveigjanleiki í
vinnubrögðum
• Reglusemi og samviskusemi
• Hefur hreint sakarvottorð
Karlar jafnt sem konur eru hvött til að sækja um störfin.
Ráðið verður í stöðurnar frá 1. ágúst 2019.
Upplýsingar gefur Birna Hannesdóttir skólastjóri í síma 456 2537, 868 3915.
Senda skal umsókn og ferilskrá á netfangið skolastjori@talknafjordur.is og verður móttaka umsókna staðfest.
Umsóknarfrestur er til og með 31. maí 2019
Heildsala
í Reykjavík óskar eftir duglegum
skólakrökkum í sumarvinnu.
Umsóknir sendist á box@mbl.is, merktar:
,,R - 26527”.
Vélavörður
Dögun ehf. leitar að vélaverði á Dag SK 17.
Leitað er að aðila með réttindi (750 kw). Reynsla af
togveiðum æskileg. Afleysingar í nokkra túra eða
fast fram á haustið. Þarf að geta byrjað strax.
Áhugasamir vinsamlegast sendið umsókn,
með upplýsingum um menntun og fyrri störf,
með tölvupósti til: oskar@dogun.is og/eða
olafur@reyktal.is. Nánari upplýsingar veitir
Óskar Garðarsson í síma 892-1586.
Dögun ehf. var stofnað árið 1983. Fyrirtækið stundar
rækjuvinnslu og útgerð, og er með aðsetur á Sauðárkróki.
Starfsfólk vantar til starfa í Heilsu-
leikskólann Kærabæ á Kirkjubæjar-
klaustri fyrir skólaárið 2019-2020
Leitað er eftir drífandi og metnaðarfullum einstak-
lingum til starfa á Heilsuleikskólann Kærabæ sem
er staðsettur á Kirkjubæjarklaustri.
Kæribær er tveggja deilda leikskóli með heilsdags-
rými fyrir börn á aldrinum eins til sex ára.
Umsóknarfrestur er til 10. júní 2019
Störfin sem um ræðir eru:
• Deildarstjóri á Undraland sem er deild með börn
á aldrinum eins árs til þriggja ára. 100% starf.
Starfið er laust 6. ágúst 2019.
• Leikskólakennari 100% starf. Starfið sem um
ræðir er tímabundin afleysing vegna fæðingar-
orlofs frá 6. ágúst 2019 til 1. júlí 2020.
Menntun og hæfniskröfur:
• Leyfisbréf til að nota starfsheitið leikskólakennari.
• Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með
ungum börnum æskileg.
• Hæfni í mannlegum samskiptum og stundvísi
• Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
• Sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð.
• Hreint sakavottorð
Vakin er athygli á því að ef ekki fæst leikskóla-
kennari kemur til greina að ráða annað háskóla-
menntað fólk eða leiðbeinendur.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi FL. og
Sambands íslenskra Sveitarfélaga eða viðkomandi
stéttarfélags.
Umsóknum skal skilað til skólastjóra Heilsuleik-
skólans Kærabæjar á þar til gerðum umsóknar-
eyðublöðum sem finna má á heimasíðu leikskólans
http://kaeribaer.leikskolinn.is/Upplysingar/Starf-
sumsokn
Með umsókn skal fylgja ferilskrá og afrit af
leyfis bréfi, auk sakavottorðs.
Umsóknir má einnig senda á netfang skólans
leikskoli@klaustur.is eða í pósti merktar, Heilsuleik-
skólinn Kæribær, Skaftárvellir, 880 Kirkjubæjar-
klaustur.
Nánari upplýsingar um leikskólann má finna á
heimsíðu leikskólans http://kaeribaer.leikskolinn.is
og hjá skólastjóra í síma 487 4803 eða 863 7546.
Ráðgjafar okkar búa
capacent.is
Við gætum
verið með næsta
starfsmann
mánaðarins á skrá