Morgunblaðið - 02.05.2019, Page 3

Morgunblaðið - 02.05.2019, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. MAÍ 2019 3 Komdu að vinna með okkur! Vallaskóli – Sveitarfélaginu Árborg, lausar stöður fyrir skólaárið 2019-2020 • Umsjónarkennarar á yngsta stigi (1.-4. bekkur), miðstigi (5.-7. bekkur) og efsta stigi (8.-10. bekkur), 100% stöður. • Forfallakennari, 100% staða. • Kennari í leiklist, 60% staða. • Tónmenntakennari á yngsta stigi, 46% staða. • Umsjónarmaður fasteigna, 100% staða. Helstu verkefni: Almenn umsjón með húseignum skólans og innanstokksmunum skv. nánari starfslýsingu. Starfsreynsla og þekking á viðhaldsvinnu eða iðnmenntun er æskileg. • Deildarstjóri yngsta stigs, 100% staða. Helstu verkefni: Dagleg stjórnun og forysta á yngsta stigi (1.-4. bekkur), ásamt öðrum fjölbreyttum verkefnum í samstarfi við stjórnunarteymi skólans skv. nánari starfslýsingu. Grunnskólakennararéttindi eru áskilin. Menntun og reynsla í stjórnun er æskileg, ásamt skipulagshæfileikum og frumkvæði í starfi. Við leitum að metnaðarfullum einstaklingum með mikla hæfni í mannlegum samskiptum, góða íslenskukunnáttu og brennandi áhuga á grunnskólastarfi. Reynsla af teymisvinnu er mikilvægur eiginleiki. Í Vallaskóla eru yfir 630 nemendur í 1.-10. bekk og yfir 100 starfsmenn, sjá www.vallaskoli.is. Umsókn með upplýsingum um menntun, starfsreynslu og umsagnaraðilum sendist Guðbjarti Ólasyni skólastjóra á netfangið gudbjartur@vallaskoli.is. Umsóknarfrestur er til og með 12. maí 2019 og ráðið er í störfin frá og með 1. ágúst 2019. Störfin henta jafnt körlum sem konum. Launakjör fara eftir kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðeigandi stéttarfélags. Í Sveitarfélaginu Árborg búa rúmlega 9 þúsund íbúar, þar af um 2000 börn í fimm leikskólum og þremur grunnskólum. Í sveitar félaginu er unnið að styrkingu heildstæðrar nærþjónustu við börn, foreldra og skóla. Lögð er áhersla á faglega forystu í anda lærdómssamfélagsins, snemmtæka íhlutun, samstarf skóla og stofnana um umbótastarf og þróun úrræða fyrir börn. Nánari upplýsingar um sveitarfélagið, fjölskyldusvið og Skólaþjónustu Árborgar má finna á www.arborg.is. Laus störf í Ásbyrgi, Stykkishólmi! Félags- og skólaþjónusta Snæfellinga auglýsir laus til umsóknar eftirtalin störf í Ásbyrgi, hæfingar- og vinnustað fólks með skerta starfsgetu. Forstöðumaður - 1 stöðugildi • Leitað er einstaklings er hafi þroskaþjálfa- eða iðjuþjálfamenntun ellegar sambærilega menntun og reynslu er nýtist í starfinu. Hafi góða sam- vinnu- og samskiptahæfileika og áhuga fyrir starfi með fólki með skerta starfsgetu og til að leiða markvert þjónustuhlutverk Ásbyrgis. Starfsmaður - 2 stöðugildi • Leitað er einstaklinga sem hafa lokið og eða eru í starfstengdu námi félagsliða eða stuðningfulltrúa eða sambærilegu námi og reynslu er nýtist í starfi. Hafi góða samvinnu- og samskiptahæfileika og áhuga fyrir starfi með fólki með skerta starfsgetu. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélaga. Skriflegar umsóknir um störf þessi er tilgreini menntun, starfsferil og umsagnaraðila ásamt próf- skírteini og sakavottorði berist undirrituðum sem jafnframt veitir frekari upplýsingar. Umsóknarfrestur er til 25. maí 2019. Sveinn Þór Elinbergsson, forstöðumaður, Klettsbúð 4, 360 Snæfellsbær, sveinn@fssf.is. ATVINNA Tækifæri á Akureyri Nettó Glerártorgi leitar að jákvæðum, ábyrgðarfullum og kraftmiklum verslunarstjóra sem hefur gaman af mannlegum samskiptum. Allar nánari upplýsingar veitir Hallur Heiðarsson rekstrarstjóri Nettó - hallur@samkaup.is Umsóknir skulu berast í gegnum heimasíðu Samkaupa – www.samkaup.is (Mannauður – Atvinnuumsóknir) Umsóknarfrestur er til 12. maí 2019. Starfssvið:  Ábyrgð á rekstri verslunar.  Samskipti við viðskiptavini og birgja.  Umsjón með ráðningu starfsmanna og almennri starfsmannastjórnun í verslun.  Ábyrgð á vöruframsetningu og áfyllingum.  Ábyrgð á birgðahaldi í verslun.  Önnur tilfallandi störf. Hæfniskröfur:  Marktæk reynsla af stjórnun og starfsmannahaldi hjá verslunar- og/eða þjónustufyrirtækjum.  Styrkleiki í mannlegum samskiptum, sjálfstæð vinnubrögð, skipulagshæfni, reglusemi og árvekni í hvívetna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.