Morgunblaðið - 22.08.2019, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 22.08.2019, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. ÁGÚST 2019 Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Ævintýratími er nú runninn upp í Vestmannaeyjum. Helsta skemmt- un krakka í bænum er að leita uppi pysjur sem nú á síðsumars- kvöldum sveima úr klettum og fjöllum að ljósunum í bænum, en fatast þar flugið. Síðustu daga hafa pysjur, sem eru ungar lund- ans, fundist víða um bæinn, þá ekki síst niðri við höfn, og þaðan er ekki langt í pysjueftirlitið sem er í gömlu Fiskiðjuhúsunum. Þar er sýningin Sea life trust með mjöldrunum víðfrægu, en í einu rými hússins er eftirlitið þar sem pysjurnar eru vegnar og væng- mældar af vísindafólki. Að því búnu fá krakkarnir pysjurnar aft- ur og koma til sjávar, með því að kasta þeim upp í loftið til dæmis við sjávarhamra vestast á Heima- ey. Á hraðri uppleið „Lundinn hér í Vestmanna- eyjum virðist vera að styrkjast, en skortur á sandsíli sem var mikil- væg æta hans var talin ein helsta ástæða þess hve veikt stofninn stóð,“ segir Margrét Lilja Magnúsdóttir, sem starfar hjá Sea life trust. Hún stóð vaktina í eft- irlitinu síðastliðinn mánudag þegar krakkarnir komu þangað, gjarnan með foreldrum sínum, með pysjur sem þau höfðu náð fyrr um daginn eða þá kvöldið áður. „Árið 2016 var komið með 3.600 pysjur hingað í eftirlitið til okkar, 4.800 árið eftir og 5.600 í fyrra. Í ár væntum við þess að krakkarnir komi með um 10.000 pysjur. Þetta er allt á mjög hraðri uppleið,“ sagði Margrét Lilja í samtali við Morgunblaðið. Fjölskyldusport Í eftirlitinu er tekið á móti pysj- um í eftirmiðdaginn og verður svo næstu 4-6 vikur að minnsta kosti. „Að fara í pysjuleit hefur alltaf verið mikið sport hér í Eyjum. Það nær langt aftur hefðin er sterk. Oft fara krakkar í svona leiðangra seint á kvöldin og svo er þetta líka skemmtun þar sem fjöl- skyldur sameinast. Það skilar okk- ur í eftirlitinu líka mikilvægri þekkingu að fá pysjur til að mæla en veikburða fuglum hlúum við að svo þeir geti tekið flugið seinna,“ segir Margrét Lilja um þessa skemmtilegu náttúrumenningu í Eyjum. Pysjum fjölgar og stofninn styrkist  Ungar lundans  Ævintýri á síðsumarskvöldum í Eyjum  Ljósin í bænum villa  Vegið og vængmælt  Eftirlitið væntir þess að fá 10 þúsund pysjur í ár Morgunblaðið/Sigurður Bogi Flug Birnir Hólm Bjarnason fór með afa sínum, Ólafi Gíslasyni, að hömr- unum vestast á Heimaey og saman komu þeir pysju á flug út á sjóinn. Áhugasöm Birna María og Erna Hrönn Unnarsdætur og Birnir Hólm Bjarnason með Margréti Lilju Magnúsdóttur í pysjueftirlitinu. Pysjustúlka Elísabet Inga Þóris- dóttir með fallegan fugl. Er stærsti framleiðandi sportveiðarfæra til lax- silungs- og sjóveiða. Flugustangir og fluguhjól í úrvali. Gott úrval af fylgihlutum til veiða stólar, töskur, pilkar til sjóveiða, spúnabox margar stærðir, veiðihnífar og flattningshnífar. Abulon nylon línur. Gott úrval af kaststanga- settum, fyrir veiðimenn á öllum aldri, og úrval af „Combo“ stöng og hjól til silungsveiða, lax veiða og strandveiða. Flugustanga sett stöng hjól og lína uppsett. Kaststangir, flugustangir, kast- hjól, fluguhjól, gott úrval á slóðum til sjóveiða. Lokuð kasthjól. Úrval af flugustöngum, tvíhendur og hjól. Balance Lippa, mjög góður til silungsveiða „Original“ Fireline ofurlína, gerfi- maðkur sem hefur reynst sérstaklega vel, fjölbreitt gerfibeita fyrir sjóveiði og vatnaveiða, Berkley flattnings- hnífar í úrvali og úrval fylgihluta fyrir veiðimenn. Flugnanet, regnslár, tjaldhælar, og úrval af ferðavörum Helstu Útsölustaðir eru: Veiðivon Mörkinni Vesturröst Laugavegi Veiðiportið Granda Veiðiflugur Langholtsvegi Kaupfélag Borgfirðinga Borgarnesi Kassinn Ólafsvík Söluskáli ÓK Ólafsvík Skipavík Stykkishólmi Smáalind Patreksfirði Vélvikinn Bolungarvík Kaupfélag Steingrímsfjarðar Hólmavík Kaupfélagi V-Húnvetninga Hvammstanga Kaupfélag Skagfirðinga Sauðárkróki SR-Bygginavöruverslun Siglufirði Útivist og Veiði Hornið Akureyri Veiðiríkið Akureyri Hlað Húsavík Ollasjoppa Vopnafirði Veiðiflugan Reyðarfirði Krían Eskifirði Þjónustustöðvar N1 um allt land. Axelsbúð Akranesi Dreifing: I. Guðmundsson ehf. Nethyl 1, 110 Reykjavík. Nánari upplýsingar um þessar vörur má fá á eftirfarandi vefsíðum: www.purefishing.com - www.abugarcia.se - www.kuusamonuistin.fl - www.coghlans.com. Þekktustu veiðivörumerkin eru seld í öllum „Betri sportvöruverslunum landsins“ Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.