Morgunblaðið - 22.08.2019, Page 36
36 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. ÁGÚST 2019
HEYRNARSTÖ‹INKringlunni • Sími 568 7777 • heyra.is
Hlustaðu
á hjartað þitt
Beltone Trust™ heyrnartækin gera þér kleift að heyra jafnvel minnstu smáatriði
– sem stundum reynast þau mikilvægustu. Við hjá Heyrnarstöðinni leggjum allan
okkar metnað í að veita góða þjónustu og bjóða upp á hágæða heyrnartæki.
Komdu í ókeypis heyrnarmælingu og fáðu heyrnartæki lánuð til reynslu.
Beltone Trust
™
MS er langvinnur
bólgusjúkdómur í mið-
taugakerfinu (heila og
mænu) þar sem skila-
boð um hreyfingu, tal
eða hugsun truflast og
ná illa eða ekki fram
til viðeigandi líkams-
hluta og einkenni sjúk-
dómsins koma fram.
Einkennin eru
margbreytileg og ein-
staklingsbundin, ýmist
líkamleg eða hugræn, sýnileg eða
ósýnileg, tímabundin eða varanleg.
Sýnileg einkenni MS geta verið:
jafnvægisleysi, erfiðleikar við gang,
spasmi og vöðvaspenna, mátt-
minnkun og máttleysi, skerðing á
samhæfðum hreyfingum og skjálfti.
Sýnileg einkenni eru flestum
skiljanleg og njóta samúðar sam-
félagsins en því miður virðist hið
sama ekki gilda um ósýnileg ein-
kenni. Þau einkenni eru þó ekki síð-
ur erfið að takast á við, jafn mikið
til staðar og jafn óþægileg og haml-
andi í daglegu lífi og hin sýnilegu
einkenni.
Ósýnileg einkenni MS geta verið:
breytingar á persónuleika og hátta-
lagi, sjóntaugabólga, tvísýni, augn-
tin, skyntruflanir, dofi, náladofi,
þvagblöðruvandamál, hugrænir
erfiðleikar, tilfinningasveiflur,
hægðavandamál, lamandi þreyta,
talerfiðleikar, svefnröskun, þung-
lyndi, verkir, svimi.
Þeir einstaklingar
sem þjást af ósýni-
legum einkennum eru
líklegri til að mæta
skilningsleysi og for-
dómum frá fjölskyldu,
vinum og vinnu-
félögum.
Fræðsla eykur
skilning og minnk-
ar fordóma
Lamandi þreyta er
algengt einkenni MS
og er stundum ruglað
saman við leti áður en
sjúkdómurinn er greindur. Ásak-
anir um leti geta reynst þungbærar
þegar einstaklingurinn er þjakaður
af lamandi þreytu og ófær um verk.
MS-þreyta er ekki venjuleg þreyta
sem eðlilegt er að fólk finni fyrir
eftir áreynslu eða erfiðan dag held-
ur er um íþyngjandi þreytu að ræða
sem gerir einstaklingi erfitt fyrir í
daglegum athöfnum. Þreytan hverf-
ur yfirleitt ekki eftir stutta hvíld og
er ekki auðveldlega hrist af sér.
MS-þreyta er ein helsta ástæða
þess að MS-greindir hverfa
snemma af vinnumarkaðnum.
Þá geta taugaverkir, sem geta
komið fram hvar sem er í líkam-
anum, verið mjög sársaukafullir og
þreytandi og haft mikil áhrif á líðan
og virkni í daglegu lífi. Taugaverkir
koma oft í bylgjum, allt að 100 sinn-
um á dag.
Hugrænir erfiðleikar eru ekki
óalgengir meðal MS-greindra og
geta verið mjög hamlandi. Þeir eru
sérstaklega erfiðir viðureignar,
bæði fyrir þann sem þjáist af þeim
og einnig fyrir hans nánustu. For-
dómar og lítill skilningur ríkja al-
mennt í samfélaginu gagnvart hug-
rænum erfiðleikum.
Hugrænar breytingar geta til
dæmis valdið erfiðleikum með ein-
beitingu og athygli, nám og minni,
skipulagningu og lausn vandamála,
málskilning og málnotkun, sjón-
minni, sjónskynjun og fjarlægðar-
skyn, og persónuleikabreytingar,
eins og hömlulaust háttalag, minna
frumkvæði, tilfinningasveiflur, til-
finningadoði, brengluð sjúkdóms-
skynjun og þunglyndi, geta valdið
margvíslegum vandamálum í sam-
skiptum.
Hér má nefna, að meira er um
þunglyndi hjá einstaklingum með
MS borið saman við einstaklinga
með aðra alvarlega sjúkdóma, en
MS-skemmdir á ákveðnum stöðum í
heila geta valdið þunglyndi.
Skyntruflanir, sem einnig eru al-
gengar meðal MS-greindra, geta
verið vægar, frá dofa sem vart
truflar viðkomandi, upp í illþolan-
legan verk. Þær geta valdið mis-
miklum óþægindum og áhrifum á
athafnir daglegs lífs en skyntrufl-
anir geta til dæmis valdið vandræð-
um í kynlífi.
Vinkona mín, sem er með MS-
sjúkdóminn, fullyrðir að prinsessan
á bauninni hafi ábyggilega verið
með MS og þjáðst af skyntrufl-
unum. Eins og svo margir MS-
greindir þjáðist prinsessan í ævin-
týrinu vegna ofurnæms líkama síns
þegar hún fann fyrir agnarsmárri
baun undir mörgum dýnum. Ofur-
næmi er ein tegund skyntruflana.
Að lokum
Að meðaltali greinist einn ein-
staklingur á tveggja vikna fresti
með MS á Íslandi. Flestir eru á
aldrinum 20-40 ára. Allt að þrisvar
sinnum fleiri konur en karlar fá
sjúkdóminn en ástæða þess er
óþekkt.
MS er enn ólæknandi en lyf geta
tafið framgang sjúkdómsins hjá
flestum og hægt er að meðhöndla
mörg MS-einkenni með góðum ár-
angri. Í dag lifa flestir nýgreindir
tiltölulega óbreyttu lífi áfram eftir
greiningu.
Mikinn fróðleik er að finna á vef-
síðunni msfelag.is og hvet ég MS-
greinda, aðstandendur og áhuga-
sama til að renna í gegnum síðuna
til að fræðast um sjúkdóminn og
nálgast upplýsingar um hvernig
takast megi á við einkenni hans.
MS-sjúkdómurinn er áskorun –
fræðsla eykur skilning.
Var prinsessan á bauninni með MS?
– Hin ósýnilegu einkenni MS
Eftir Bergþóru
Bergsdóttur
»MS er enn ólækn-
andi en lyf geta tafið
framgang sjúkdómsins
hjá flestum og hægt er
að meðhöndla mörg
MS-einkenni með
góðum árangri.
Bergþóra
Bergsdóttir
Höfundur er fræðslufulltrúi MS-
félagsins.
bbergsdottir@gmail.com