Morgunblaðið - 21.08.2019, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 21.08.2019, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. ÁGÚST 2019 9VIÐTAL nokkrum hætti brotið af sér. „Sveinn Andri er drifinn áfram af ákveðnum kröfuhafa sem er í hefndarhug gagnvart mér. Skiptastjóri fékk afar undarlegan dóm í undirrétti en ég verð að trúa því og treysta að Landsréttur snúi þessum dómi við og komist að réttri lagalegri niðurstöðu,“ segir Skúli. En hvernig kemur þetta mál til og hver er for- saga þess? „Ég kem inn í rekstur heildsölunnar Eggerts Kristjánssonar í kringum áramótin 2013-’14 þeg- ar félagið átti í talsverðum rekstrarörðugleikum. Það tókst því miður ekki að bjarga félaginu frá gjaldþroti, en heildsalan hafði átt í vandræðum um langt árabil. Þetta var þrátt fyrir að ég hefði lagt félaginu til hátt á annað hundrað milljónir króna á árinu 2014. Í ársbyrjun 2014 var tekin ákvörðun um að færa stóra fasteign í Skútuvogi 3 inn í fasteignafélag mitt, Sjöstjörnuna ehf. Gegn því að selja eignina í félagið mitt var eigendum ýmist greitt með yfirtöku skulda eða með útgáfu nýrra hlutabréfa í Sjöstjörnunni. Á þessum tíma hafði ég þó gert kaupsamning sem var undirrit- aður og þinglýstur en kom aldrei til framkvæmda enda var búið að skipta eigninni og samningurinn hafði því ekkert gildi. Sveinn Andri finnur hins vegar þennan samning, bókstaflega ofan í skúffu, og fer fram á að ég greiði aftur fyrir sömu fast- eignina. Þetta getur náttúrlega engan veginn gengið enda á seljandinn ekki lengur fasteignina auk þess sem umræddur kaupsamningur fellur úr gildi við skiptingu enda jafngildir sú skipting því að greiðsla hafi farið fram.“ Skúli segist furða sig á því hversu auðveldlega Sveinn Andri kemst upp með að tæma þrotabú án nokkurra haldbærra skýringa. Nú þegar hafi Sveinn Andri greitt sjálfum sér um 120 milljónir króna úr þrotabúi EK, sem jafnframt þýðir að ekkert er eftir í búinu. Þá hafi hann rukkað tæpar 50 þúsund krónur á klukkustund fyrir vinnu skiptanna, en til samanburðar megi nefna að hann taki lægri taxta við skiptingu eigna WOW air, þar sem hann er annar skiptastjóra. „Það vita allir hvernig Sveinn Andri er enda hefur þessi maður vaðið uppi í þjóðfélaginu og komist upp með ótrúlegustu hluti. Hann er til dæmis búinn að skrá á sig 2.400 klukkustundir vegna meintrar vinnu í tengslum við skiptin þannig að hann er búinn að hirða hverja einustu krónu sem til var í búinu. Þess utan tók hann það út í reiðufé og er hvergi nærri hættur. Nú bindur hann vonir við að Landsréttur staðfesti að ég eigi að greiða tvívegis fyrir sömu fasteignina til að hann geti náð enn meiri fjármunum úr búinu,“ segir Skúli. Hvers vegna telur Skúli að Sveinn Andri fari fram með þessum hætti? „Ég mun útskýra ástæðuna þar að baki nánar síðar. Það er ákveðinn kröfuhafi sem fór fram á að ég greiddi skuld beint við hann framhjá þrota- búinu við gjaldþrot EK. Ég hafnaði því eðlilega og þá sór hann að hann myndi ná fram hefndum.“ Eldfjallaferðir njóta mikilla vinsælda Við segjum þetta gott af umræðu um þrotabú EK og færum okkur yfir í öllu skemmtilegri mál. Í dag er Skúli í veigamiklum fjárfestingum í fjölda atvinnugreina, en auk veitingageirans hefur hann m.a. fjárfest talsvert í fasteignum og ferðaþjónustu. Meðal eigna sem eru, að fullu eða að hluta til, í eigu félaga á vegum Skúla er Hilton Reykjavík Konsúlat hótelið í Hafnarstræti, Lava Tunnel, Lava Center á Hvolsvelli auk fjölda ann- arra verðmætra eigna. Tvö síðastnefndu fyrir- tækin hafa verið í miklum vexti síðustu ár, en að sögn Skúla hefur aðsóknin aukist stöðugt síðustu ár. „Gestir hafa verið himinlifandi með upplifunina og það er að skila sér. Þrátt fyrir fall WOW air hefur þeim fjölgað hjá okkur sem segir manni að þetta fellur vel í kramið hjá ferðamönnum. Rekst- ur á báðum stöðum hefur gengið mjög vel og það er ljóst að þetta er farið að vekja aukna athygli. Mér líst vel á stöðuna í ferðaþjónustunni og er bjartsýnn á framhaldið,“ segir Skúli sem vakti á sínum tíma talsverða athygli fyrir aðkomu sína að uppbyggingu Hamborgarafabrikkunnar. Að- spurður segir Skúli að rekstur fyrrnefnds veit- ingastaðar gangi vel. „Samstarf okkar eig- endanna, mín, Jóa Ásbjörns, Guðmundar Auðunssonar og Jóa í Múlakaffi, er mjög gott. Þess utan hefur reksturinn gengið betur en hann gerði áður, en okkur hefur tekist að gera hann stöðugri og öflugri með því t.d. að minnka yfir- bygginguna,“ segir Skúli. Með spennandi verkefni í bígerð Það er ljóst að í nógu er að snúast hjá fjárfest- inum enda fátt sem bendir til þess að skortur á verkefnum sé að plaga Skúla. Spurður hvað fram- tíðin beri í skauti sér segir Skúli að tíminn einn muni leiða það í ljós. Fram undan séu þó spenn- andi tímar. „Það er alltaf eitthvað í pípunum, en eins og venjulega getur maður ekki alveg sagt frá því. Það sem ég get þó sagt er að það eru áhuga- verðir hlutir í veitingahúsageiranum sem hugsan- lega fara af stað á næsta ári,“ segir Skúli. En megum við eiga von á því að Skúli verði enn eigandi Subway að fimmtán árum liðnum? „Já, það ætla ég svo sannarlega að vona. Ég er ekki að sjá fram á að hætta þessu. Þetta hefur verið virkilega skemmtilegur og krefjandi tími og verður það örugglega áfram.“ Karakter samstarfsmanna aðalatriði Að lokum spyr blaðamaður Skúla hvaða ráð hann myndi einna helst vilja veita ungum frum- kvöðlum sem setja vilja á stofn fyrirtæki. Að sögn Skúla er mikilvægast að velja rétta samstarfs- fólkið. „Ég hef oftast verið afar lánsamur í þessum efnum en til að mynda hefur sami maðurinn, Sig- fús Jónas Guðnason, byggt upp hvern einasta Subway-stað frá 1994 og séð um öll mín fast- eignaverkefni. Hann starfar ennþá með mér ald- arfjórðungi seinna og tel ég hann til góðra vina ásamt fleiri lykilstarfsmönnum, sem margir hafa starfað með mér vel á annan áratug. Að mínu mati þarf maður alltaf að velja gott fólk til að fara í verkefni með sér. Ég ráðlegg fólki að hlusta vel á eigið innsæi og fara eftir því en ég hef sjálfur brennt mig á því að gera það ekki. Það er mikil- vægt að gera karakter fólks að aðalatriði enda hef ég lært það í gegnum tíðina að það sem skiptir öllu máli er að starfa með traustu og heiðarlegu fólki,“ segir Skúli. Morgunblaðið/Eggert draumnum um Subway Skúli Gunnar Sigfús- son, eigandi og stofn- andi Subway á Íslandi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.