Morgunblaðið - 22.08.2019, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 22.08.2019, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. ÁGÚST 2019 5 hagvangur.is Upplýsingar veita: Katrín S. Óladóttir, framkvæmdastjóri Hagvangs katrin@hagvangur.is Bergþóra Þorkelsdóttir, forstjóri Vegagerðarinnar bergthora.thorkelsdottir@vegagerdin.is Sigurbjörg J. Narby Helgadóttir, mannauðsstjóri Vegagerðarinnar, sigurbjorg.helgadottir@vegagerdin.is eða í síma 522 1000. Umsóknarfrestur er til og með 2. september 2019. Umsóknir óskast fylltar út á www.hagvangur.is Umsókn skal fylgja ítarleg ferilskrá og kynningarbréf þar sem fram kemur rökstuðningur um hæfi til að gegna umræddu starfi. Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi ríkisins og viðkomandi stéttarfélags. Tekið skal fram að umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. FRAMKVÆMDASTJÓRI NÝS ÞJÓNUSTUSVIÐS Stöðugar umbætur þjónustunnar með tækniþróun og markvissri endurskoðun verklags verða ekki hvað síst áskorun fyrir nýjan framkvæmdastjóra. Framundan eru stór verkefni við þróun þjónustu og upplýsingagjafar. Um er að ræða áhugavert og spennandi starf þar sem viðkomandi gefst tækifæri til að þróa nýtt svið þjónustu á tímum mikilla tæknibreytinga og stafrænna umbreytinga, innleiða nýja ferla og hagnýta upplýsinga- tækni við innri og ytri þjónustu Vegagerðarinnar. Menntunar- og hæfniskröfur • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, framhaldsmenntun æskileg • Stjórnunarreynsla • Farsæl og árangursrík reynsla af rekstri • Haldgóð þekking á fjármálum • Reynsla af þjónustustýringu og upplýsingamiðlun • Reynsla og þekking á stafrænum lausnum • Reynsla af þróun og innleiðingu nýrra ferla • Framúrskarandi samskiptafærni og rík þjónustulund • Frumkvæði, metnaður og árangursdrifni • Sjálfstæð og öguð vinnubrögð • Góð kunnátta í talaðri og ritaðri íslensku og ensku Vegagerðin er þjónustumiðuð stofnun sem nýtir tækniþekkingu til umferðarstýringar og bætts samgönguöryggis á sjó og landi. Starfsemi Þjónustusviðs Vegagerðarinnar tekur til þjónustu við vegakerfið allt árið og upplýsingamiðlunar til veg- og sjófarenda. Vegagerðin er eftirsóknarverður vinnustaður sem hentar jafnt báðum kynjum. Við leitum að framkvæmdastjóra til að leiða öflugt starf á nýju Þjónustusviði Vegagerðarinnar. Starfsstöðin er í Reykjavík. Starfið heyrir beint undir forstjóra og framkvæmdastjórinn tekur sæti í yfirstjórn Vegagerðarinnar. MARKAÐSSTJÓRI S4S S4S ehf óskar eftir að ráða árangursdrifinn og metnaðarfullan einstakling í starf markaðsstjóra. Starfið felur í sér umsjón með markaðsmálum fimmtán verslana og þriggja netverslana. Umsóknir berist fyrir 2. september á atvinna@s4s.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.