Morgunblaðið - 27.08.2019, Page 10
þú ferð svo í háskóla út breytist það,
þar sem þú ert úti meiri hluta ársins.
Þá getur þú verið á Íslandi á sumrin
og á jólunum. Það er mikið um
keppnir á sumrin þegar maður er
heima, svo þetta breytist aðeins eftir
því sem maður verður eldri,“ sagði
Ólafía sem viðurkennir að kaldir vet-
ur á Íslandi hafi stundum verið erf-
iðir. „Fyrst vorum við mikið inni á
Korpúlfstöðum og gerðum allt þar.
Þegar Básarnir komu voru þetta síð-
an oft mjög köld kvöld á veturna,“
sagði hún og hló.
Krefjandi en gekk upp
Ólafía var alltaf ákveðin í að ná langt
í golfi og æfði hún aukalega. Hún
viðurkennir að það hafi stundum
tekið á. „Það var krefjandi að ætla
sér að æfa aukalega, að reyna að fá
góðar einkunnir og að hafa eitthvert
félagslíf. Það er krefjandi, en þetta
gekk einhvern veginn upp. Maður
verður að vera skilningsríkur við
sjálfan sig og sætta sig við að það er
ekki hægt að gera allt 100 prósent.
Þú ert bara með ákveðið marga
klukkutíma. Þú verður að fórna
sums staðar á meðan þú leggur allt í
annars staðar. Þú verður að komast
að því sjálfur hvað hentar best fyrir
þig,“ sagði Ólafía. Hún segir próf-
vikur vera eina tímann sem hún tók
sér hlé frá golfi, en meira að segja þá
fór hún í golf til þess að dreifa hug-
anum.
„Ég var alltaf mjög dugleg að æfa
mig í golfi. Einu skiptin sem ég
hvíldi mig aðeins frá golfi var í próf-
vikum. Þá var líka gott að taka mér
pásu og fara t.d. í Bása í hálftíma.
Það voru einu tímarnir sem ég slak-
aði aðeins á, en golfið var alltaf of-
arlega í forgangsröðinni. Ég þurfti
stundum að fórna skólatíma þegar
ég fór út í æfingaferðir. Ég lagði
mikið á mig fyrir golfið, því stundum
þurfti ég að vinna upp þegar ég
missti t.d. úr skóla. Þetta var krefj-
andi en rosalega gaman,“ sagði
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir.
Jóhann Ingi Hafþórsson
johanningi@mbl.is
Ó
lafía Þórunn Krist-
insdóttir, fyrsti Íslend-
ingurinn til að keppa á
risamóti í golfi, tók sín
fyrstu skref í golfinu hjá
Golfklúbbi Mosfellsbæjar þegar
hún var tíu ára. Hún skipti hins-
vegar fljótlega yfir í GR, þar sem
hún hefur verið alla tíð síðan. Ólafía
er eini Íslendingurinn sem unnið
hefur sér inn fullan keppnisrétt á
LPGA-mótaröðinni, þeirri sterk-
ustu í heimi. Hún hefur tekið þátt á
sjö risamótum og orðið Evr-
ópumeistari blandaðra liða með Ís-
landi. Hún var kjörin íþróttamaður
ársins árið 2017. Ólafía hóf atvinnu-
mannaferilinn árið 2014.
„Ég flutti ung úr Mosó og í Graf-
arholtið. Við fluttum rétt hjá golf-
vellinum og þá færðu mamma og
pabbi mig í GR. Það var alltaf gam-
an í Mosó, en ég var mjög spennt að
fara yfir í GR, því ég hafði alltaf æft
með strákum. Í GR fékk ég að vera
í stelpuhóp og David (Barnwell) var
að þjálfa. Það var mjög gaman að fá
að æfa með stelpunum,“ rifjaði
Ólafía upp í samtali við Morg-
unblaðið. Þrátt fyrir að það séu ansi
mörg ár síðan, man Ólafía nákvæm-
lega á hvaða skori hún lék 18 holu
hring í fyrsta skipti. Hún segist svo
hafa öðlaðist fína reynslu, mjög
snemma á ferlinum.
Fyrsti hringur á 116 höggum
„Ég byrjaði fljótlega að keppa á
unglingamótum og ég spilaði fyrsta
18 holu hringinn minn á 116 högg-
um, ég man enn þá eftir því, það var
á Korpu. Svo fór ég að keppa meira
og það var gaman að taka þátt í
sveitakeppni með liði, meist-
aramótum og alls konar þannig. Ég
fékk mikla reynslu sem krakki.“
Ólafía segir mikið fjölskylduum-
hverfi ríkja hjá GR. Eins og gefur að
skilja breyttist umhverfið þegar
Ólafía fór í háskóla í Bandaríkjunum
og var lítið heima á Íslandi. „Þegar
þú kemst á unglingsaldurinn og áður
en þú ferð t.d. út í háskóla, ertu enn
þá mikið með hópnum hjá GR. Þetta
er mikið fjölskylduumhverfi. Þegar
„Ég fékk mikla reynslu sem krakki“
Einu skiptin sem Ólafía
hvíldi sig frá golfi var í
prófvikum
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir í Einvíginu á Nesinu fyrr í ágúst. Hún dregur að áhorfendur þegar hún keppir hér heima.
Morgunblaði/Arnþór Birkisson
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
H
araldur Franklín Magnús, fyrsti ís-
lenski karlinn til að leika á risamóti
í golfi, byrjaði í golfi fyrir algera til-
viljun. Haraldur var á fullu í knatt-
spyrnunni með KR þegar hann féll
kylliflatur fyrir golfíþróttinni 12 ára gamall.
Fyrir framúrskarandi íþróttamenn þá telst
það ekki sérstaklega snemmt að byrja í íþrótt-
inni 12 ára. Framfarirnar komu því fremur
hratt hjá Haraldi enda segist hann hafa verið
allan daginn á golfvellinum eða æfingasvæð-
inu.
„Hjá mér hófst golfiðkunin þannig að ég
kynntist golfinu á Snæfellsnesi. Afi átti bústað
á Barðastöðum á sunnanverðu Snæfellsnesi.
Við fórum iðulega þangað á sumrin þegar ég
var krakki. Golfvöllur var þar nálægt en eng-
inn í okkar ætt var í golfi. Við ákváðum eitt
sumarið að kíkja í golf þegar ég var 12 ára. Ég
vissi ekkert um golf um fram það að vita hver
Tiger Woods væri. Ég man hvað ég var sjokk-
eraður á fyrstu holu sem var rúmlega 300
metra hola. Okkur var bent á að kíkja daginn
eftir vegna þess að þá væri Maggi Birgis
(Magnús Birgisson golfkennari) með nám-
skeið. Þarna varð ekki aftur snúið. Ég vil
meina að ég hafi ekki verið dekrað barn en eft-
ir námskeiðið krafðist ég þess að fá golfsett,“
sagði Haraldur og hlær.
„Árið eftir fór ég í GR og fékk barnaaðild en
þá gat maður spilað á ákveðnum tímum. Ég
var mestmegnis uppi á golfvelli næstu árin.
Golfvöllurinn er einhver besta barnapía sem til
er. Mér var skutlað á golfvöllinn með nesti á
morgnana og var sóttur á kvöldin. Foreldrar
mínir þurftu því ekki að hafa neinar áhyggjur
af mér á sumrin. Ég datt fyrir vikið út úr fót-
boltanum. Fram að þessu ætlaði ég mér að
verða rosalegur fótboltamaður eða þangað til
ég fór á golfnámskeiðið. Það má því alveg segja
að Maggi Birgis hafi verið áhrifavaldur. Hjá
GR var gott unglingastarf. Derrick (Moore),
David (Barnwell) og Halli Þórðar (Haraldur
Þórðarson) voru þjálfarar á þeim tíma. Þeir
voru algerir snillingar með krakka. Á þeim
tíma var þetta það skemmtilegasta sem ég
gerði. Þetta sýnir líka að það er sniðugt að
leyfa krökkum að prófa mismunandi íþróttir.“
Hugsaði raunsætt og fór í nám
Ungu framúrskarandi íþróttafólki býðst gjarn-
an að taka háskólanám í Bandaríkjunum á
skólastyrk gegn því að keppa fyrir hönd skól-
ans í NCAA. Á það við um golf eins og körfu-
knattleikinn, knattspyrnuna, sundið og frjálsar
svo eitthvað sé nefnt. Haraldur nýtti sér það og
státar af háskólagráðu frá Lousiana Lafayette.
„Ég byrjaði reyndar í öðrum skóla, Miss-
issippi State en skipti yfir í Lousiana. Er hann
stundum kallaður Íslendingaskólinn því þar
höfðu verið Úlfar Jónsson, Örn Ævar Hjart-
arson og Ottó Sigurðsson svo ég nefni ein-
hverja. Var þetta rosalega góð reynsla. Ég
hugsaði dæmið raunsætt. Gott væri að fara til
Bandaríkjanna og sjá hvar ég stæði í golfinu. Í
framhaldi af því myndi ég ákveða hvort ég vildi
verða atvinnumaður eða ekki. Ég rölti í stutt-
buxum í skólann og gat spilað golf allt árið. En
þetta er mjög krefjandi. Til dæmis er maður
það langt frá heimahögum að maður þyrfti að
taka þrjú flug heim. Slíkt getur verið erfitt.
Auk þess þarf maður að sinna náminu og
íþróttinni. En ég mæli með þessu fyrir alla sem
eru í íþróttum,“ sagði Haraldur Franklín.
10 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. ÁGÚST 2019
Golfvöllurinn
besta barnapía
sem til er
Skellti sér á golfnámskeið í
sumarfríi á Snæfellsfesi og
hefur ekki litið um öxl
Morgunblaði/Arnþór Birkisson
Haraldur Franklín
Magnús í Einvíginu á
Nesinu fyrr í ágúst.