Jólatíðindin - 01.12.1931, Side 5
JÓLATÍÐINDIN
5
Vörubúðin.
(Qeorg Finnsson).
Nærfatnaður, karla og kvenna. Vinnufatnaður, Peysur,
Húfur, Milliskyrtur, Treflar, Hálstau og annað til
klæðnaðar, á unga og gamla.
Sængurfatnaður, Fiður, Hálf- og aldúnn. Og öll smávara.
Hvergi ódýrari vörur.
Heildsala. Smasala.
Sendum með eftirkröfu.
Laugaveg 53, Reykjavík. Box 421.
Veríu áualt glaður!
Vertu (jlabur í dag. Láttu morgun-
daginn eiga sig. Vertu glaður í dag!
Ef þér hefir yfirsést í gær, þá bætir
sorg og gremja út af því ekki vitund
úr skákinni. Það er búið, sem búið er,
eins fyrir því.
Ef þú sér þig ófæran til að gegna
þeim þungu og mikilvægu kröfum, sem
morgundagurinn mun hafa í för með
sér, þá getur óttinn og áhyggjan ekki
orðið þér úrræði. Þess háttar kröfum
verður þú að mæta með skynsamlegri
íhugun — en sorgir og áhyggjur veita
hvorki vit né krafta til starfs.
Gjör þú í dag, það sem þér er unt.
Láttu reynsluna frá undanfarandi degi
kenna þér. Njót þú sólskins góðra
vona, er þú horfir fram á morgundag-
inn og leystu af hendi þáð starf, sem
fyrir hendi er í dag. Morgundagurinn
hefir sett lás og loku fyrir gæði sín.
Vér getum þegar í dag uppskorið
það, sem vér sáðum í gær. Sá þáttur
lundernis vors, sem vér látum ná
þroska í dag, fylgir oss á morgun. Sæð-
ið, sem sáð er, deyr aldrei, heldur er
uppskeran vís. Það getur ekki hjá því
farið, að við uppskerum fyr eða síðar
á einn eða annað hátt ávöxtinn af því,
sem vér höfum sáð.
Barátta vekur baráttu, sorg veldur
sorg, tár vekja tár, kærleikur vekur
kærleika í móti, gleðin vekur gleði.
Dagurinn í dag er partur af eilífð-
inni.
Vertu glaður í dag!
»Verið ávalt glaðir, vegna samfélags-
ins við Drottin; eg segi aftur: Verið
glaðir!« (Fil. 4, 4).
Hafnarstræti 103.
Selur ódýrasta og vandað-
asta dívana, fjaðradýnur,
stoppdýnur, bílsæti o. m. fl.
Tekur til aðgeðar og setur
upp ný húsgögn eftir
pöntun.
Sendir gegn póstkröfu
hvert sem óskað er.
Virðingarfyllst
Vigfús P. Jónsson,
mdlarameistari.
Sími 68. Pósthólf 123.
^■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■»^
^ ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■++
■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ \
■■■ ■■■
■■■ ■■■
■■■
■■■
■■■
IVII
Tr. Stefánssonar,
Strandgötu 23
hefir ávalt fyrirliggjandi
og imíðar eftir pöntun:
leðurstígvél og bússur,
Allar skóaðgerðir fljótt
og vel af hendi leystar.
KOMIÐ OG REYNIÐ.
■ ■■
■ ■■
■ ■■
■ ■■
■ ■■
■ ■■
■ ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ »
■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ Jt
**■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■+
Blaðamaður í Kristjaníu
segir um Herópið.
Eg hefi lesið Herópið nú í nokkur ár
og á þeim árum hefir margt breytst.
En áhugi manna á hinu margbreytta
starfi Hjálpræðishersins virðist eigi
hafa dofnað. Þvert á móti. Þessu veld-
ur ekki síst það, hversu málgagn Hers-
ins hefir verið undir góðri ritstjórn,
bæði fjölbreytt að efni og snoturt að
ytra frágangi. Og fagnaðarefni er það,
að Herópið skuli hafa fengið svona
mikla útbreiðslu á þessum árum, þegar
heilt syndaflóð af slæmum ritum og
blöðum flæðir yfir löndin og flytja með
sér synd og eyðileggingu. Herópið talar
um hreinleika í lífi og siðum, minnir
oss á, að vér eigum að gæta bræðra
vorra, kennir oss, að svo elskaði Guð
heiminn, að hann gaf sinn eingetinn
son, til þess, að hver sem á hann trúir
glatist ekki heldur hafi eilíft líf. —
Eg óska að Guð blessi Herópið á
komandi árum, og varðveiti dálka þess
frá öllu illu og að Jesús Kristur megi
verða vegsamaður þar og hafinn yfir
alt annað«.
Ummœli frœgs prédikara.
Lúther sagöi:
»Þegar eg prédika, þá set eg mig í
lága sessinn. Eg tek ekki nokkurt tillit
til doktora og meistara, þó að þeir séu
að öllum jafnaði ekki færri en fjóri'r
tugir í kirkjunni. Eg beini allri athygli
minni að hinum mikla fjölda ungra
manna, barna og þjóna; þeir eru eigi
færri en 2000 í kirkjunni. Eg beini
prédikun minni til þeirra, sem hennar
þurfa við«.