Vikan - 04.11.1928, Page 1
*
ARP
\ i 1 Veslmannacyínga
^ Laugardaginn 4. Novemb. ev ákveÖið að nýtt blað, „Vikan“ hefji göngu sína hér í bœ. Því er ávarpið #
T Tm langan aldur hafa blöð
og tímarit aukið kynningu
þjóða, og staða.
Blöðin hafa verið hrópendur, sem
borið hafa hverja nýja hugsjón
milli skyldra og óskyldra; þau hafa
ætlað sér það hlutverk að gera
menningu samtíðarinnar víðlendari
og altækari. Að því hafa þau unnið
hvort á sína vísuog með misjöfnum
árangri. — En enginn er sá, er eigi
telur þau vera talandi vott um
menningarvöxt þjóðanna. Blaða
fjöldi borga eða landa gefur gestum
öruggasta sýnishornið af þroska-
stígi þeirrá, Um nokkurt skeið
hafa þau verið einn máttkasti
valdhafinn í lífi þjóðanna.konungum
og keisurum voldugri, — borið
ofurliði þing og þjóðhöfðingja, því
á bak við þau rís múgurinn ósigr-
andi og almáttkur. — Pví verður
ekki neitað, að þau hafa oft mis-
beitt valdi sínu hræðilega, skamm-
sýni og eigingirni, — öfgar og
valdsæði hafa leitt þau útí ógöng-
ur fávisku og hermdarverka. —
En þrátt fyrír alt eru þau bjartasta
bálið sem brennur á strönd tuttug-
ustu aldarinnar.
Ekkert land, enginn bær, getur
verið án þeirra, nema missa
mikils; — það er sjálfsagður metn-
aður að eiga mikinn og góðann
blaðakost.
V estm annaeyingar
Baarinn ykkar er annar stærsti
kaupstaðurinn á íslandi, — einhver
auðugasti staðurinn og sá sem
virðist eiga glæsilegasta framtíð.
þjóðin hefut' horft tilykkar í undrun
og aðdáan, er hún sá hinn hrað
stíga vöxt og viðgang, — hið
þróttauðg? framtak ykkar og djarf
lega baráttu. Með viljasterkri atorku
og möguleikum þeim sem mennirtg
nýrra tíma gaf ykkur, hafið þið
breitt fátæku, einangruðu kotbýlun
um í framtíðarríkann bæ, sem
veitir „afli þeirra hluta sem geia
skal" inn í viðskiftastraum þjóðar-
innar. Þér hafið ankið vellíðan
hennar og ausið gulli til beggja
handa.
Yður finst ef til vill óg íara með
hátiðleg glamuryrði og gullhamra-
En ég hefi aðeins sagtsannleikann.
Og þessi auðugi tuttugustu aldar
bær, hefur ekkert blað ekkert tíma>
rít nema að láni. Aðrir íslenskir
bæjir, alt að helmingi fólksfærri
og getuminni, bera uppi eitt, og
jafnvel, tvö, blöð. — Seyðisfjörður
með c. 900 íbúa hefur altaf barist
fyrir því að „halda út“ blaðinu
sinu, þrátt fyrir óvanalega slæm
skilyrði og margskonar örðugleika
Margs annars, sem nauðsylegt þykir
í bæjum hafa þeir orðið að fara
á mis við, en líf blaðsins hafa þeir
viljað umfram alt þó skift hafi um
menn og skoðanir
ísafjörður skipar tveimur velrit-
uðum blöðum undir menningar-
merki þjóðarinnar og hefur þó eigi
nema um 5000 íbúa.
Norðfirðingar eiga eitt.
Á Akureyri koma út fjögur blöð,
og eitt þeirra annan hvorn dag;
þó eru þar nokkur hundruð íbúum
færra en hér.
í>ér Yestmannaeyingar! Margar
tilraunir hafið þér gert til blaðaut-
gáfu hér í eyjum, en með þeim
árangri að eigi væri undrunarefni
þó þér hefðuð sjálfir mist trúna á
möguleikana. Þó hefur nú verið
ákveðið að byrja enn á nýjan leik,
— og eitt. er ábýggjanlegt: mögu-
leikarnir eru fyrir hendi; hin
fyrri grip hafa ekki verið fáliniaus.
Annan laugardag hér frá heilsar
nýtt blað með nafninu:
V I K A N
Til „Vikuntiar verður stofnað á
nokkuð annan hátt en verið hefur
um önrtur blöð hér. Skjöldur, Skeggi
Þór og Eyjablaðið hafa öll verið
einhliða og einlituð flokkablöð, sem
hafa borið fram tilgang sinna póli«
tísku hugsjóna á sverðsoddum.
Pví hefur ekkert þeirra átt ósundr^
aðri samúð allra eyjarskeggja að
fagna. En með Vikunni skal stefnt
í aðra átt. — Því er ætlað að
verða Vestmannaeyjablað fyrir
Vestmannaeyinga, og sem slíkt
mun það engann þátt taka í reip-
togi og skinnaleik flokkanna, æsing
og víggleði hefur ofmjög blindað
sýn stríðsmanna í baráttu stefna
og stétta.
Aftur á móti vill blaðið, svo
sem föng eru til, færa fréttir af
því sem gerist utan og ofan við
þras dægurmálanna; segja frá því
helsta sem við ber á atvinnusvið-
um í listum, bókmentum, o. s. fr.
Hefur það aflað sér aðstoð ýmsra
prýðilega ritfærra manna, sem
munu, er fram líða stundir, skrifa
í blaðið greinar margvísslegs efnis.
í’ó að „Vikan“ ætli ekki að
skipa sér í ætiórnmálaflokk, tekur
það fúslega til birtingar, greinar
um bæjarmál Vestmannaeya þó
að skoðanir hinna tveggja ríkjandi
flokka komi þar glögglega í ljós
en að sjálfsögðu verða slíkar grein-
ar að vera prúðmannlega ritaðar
og lausar við persónuleg meiðyrði.
Væri mér, sem með blaðið fer,
VETEAEFRAKKATAU
N Ý K O M I ð.
F R A K K A JR saumaðir eftir
máli kosta aðeins kr. 120,00
ST0L2ENWALD k i
LÆÐSKEKI
það afarmikil ánægja, ef menn
vildu leita til þess með það sem
þeir hefðu að segja í velferðarmál-
um bæjarins, þar eð ég kem hér
sent gestur og þekki lítt lil staðar
hátta og hagsmuna.
Annars mun blaöið auglýsa sjálft
efni sitt.
En sem óg hefi áður sagt væri
það dularfult fyrirbrigði, gæti eigi
eitt blað þrifist hér meðal nær
4000 íbúa, auk aðkomumanna og
virðist mér að allir ættu að sjá
sæmd sína í að styrkja það tíl
lífs ef þeim félli það í geð.
„Vikan" verður 4 síður af svip-
aðri slærð og „Lögrétta" og kem-
ur út hvern laugardag. — Auka
blöð munu og koma út öðruhvóru
ef eigi liggja önnur verkefni fyrir
í prentsmiðju blaðsins og auglýs
íngar berast að. Aukablöð tnunu
þó aldrei verðá meira en tvær
síður.
Verð blaðsins verður 15 au f
lausasölu og 1,75 fyrir ársfjórðung.
Verður strax á morgun farið að
veita áskrifendum móttöku á af-
greiðslu blaðsins, Vestmannabraut
13 (Miðgarði.)
Er það trú mín að hver einasta
fjölskylda í bænum skrifi sig fyrir
blaðinu og það strax á morgunn.
Reynslan mun skera úrhvortkött-
urinn hefur verið keyptur í sekkn-
um. Eru menn vinsamlegast beðnir
að greiða áskriftatgjaldið fyrirfram
til að létta undir með blaðinu í
byrjun og er þá gjaldið eigi nenta
1,50.
Og þér auglýsendur, það þarf
ekki að lýsa fyrir yður gildi aug-
lýsinga. Pað er óhrekjandi stað-
reynd að áhrif þeirra eru ótak
mörkuð. Og auk þess að sjá með
því sinn hag bestann, er þess að
vænta að þeir vilji og gera sifct til
að styrkja eina blaðið í bænum.
Augiýsingum verður veitt mót„
taka í prentsmiðjunni eða á afgr.
blaðsins Skulu þær vera komnar
til blaðsins eigi síðar en kl. 2 á
föstudaga.
Vestmannaeyingar! í von um
góða viðkynning og samvinnu,
kveð ég ykkur.
Steindór Sigurðsson.
# # AFEKMINGARDAGINN ##
A V E X T i R uýjir og niðursoðnir.
Súkkulaði o g Konfekt.
öl Og gosdrykkir
að ógJeymdu indæla k a f f i n u
Ennfremur: E g g glæný. — Grænar baunir. — Picldes —
Ostar. — Sardínur — o. m. fl. — Minnist þess ávalt að
verð á öllum matvörum er lángsamlega lægst lijá okkur.
X
X
X
X
X
X
X
X
á ^öruRúsié
X
X
X
X
X
X
X
X
X
Simi liö
tssmpsm.ojs vMtjttfim
TEKUR ALSKOlsr A.R